Þegar Dísa kynnist Míu breytist líf hennar því Mía kennir henni bæði að fela átröskunina fyrir mömmu og pabba og gefur henni góð ráð um það hvaða fæðu sé auðveldast að æla.
Falleg saga um óvenjulega vináttu og góð ráð handa ungum stúlkum sem vilja halda sér grönnum.
Afi hans Edda Þórs er eldhress klæðskiptingur sem starfar sem skemmtikraftur í gæsaveislum og fær sér jafnan feita jónu til að ná sér niður eftir vinnudaginn.
Kötturinn Faggi, sem er skilgetið afkvæmi feðraveldisins, er ekkert alltof ánægður með lífsstíl afa og það kemur í hlut Edda Þórs að útskýra fyrir Fagga hvernig staðalmyndir eyðileggja líf okkar.
Litlu gríslingarnir vita að pabbi er ekki vondur göltur, hann er bara með sjúkdóm sem heitir alkóhólismi. Þeir vita líka að mamma gylta er ekki aumingi þótt hún fari ekki frá honum, hún er nefnilega með sjúkdóm sem heitir meðvirkni.
Hugljúf saga sem kennir börnunum að lifa við alkóhólisma án þess að láta fordóma og reiði stjórna lífi sínu.
– Finnst þér of erfitt að rífa þig upp á laugardagsmorgni til að banna þeim að borða 600 grömm af sælgæti yfir morgunsjónvarpinu?
Það er óþarfi að örvænta. Offita er nefnilega æðisleg svo nú getur þú haldið áfram að ala krakkana á mæjónesi og pítsum, ef þú bara kennir þeim að virða líkama sinn eins og hann er.
Á meðan mamma leggur sig, vinnur Svenni litli heimaverkefnin sín alveg sjálfur og lærir sjálfur að elda sér hafragraut og hengja upp þvottinn. Hann fer hljóðlega að öllu og gætir þess að trufla ekki mömmu sína svo hún vakni nú ekki í fúlu skapi.
Lærdómsrík bók sem eflir sjálfstæði barna og kennir þeim tillitssemi gagnvart foreldrum sínum.
Lappi er hræddur við að deyja og flýr lengst upp í sveit.
Lína litla, sem er ljómandi falleg og góð stúlka, deyr ekki ráðalaus. Hún stelur mótorhjóli og fer sjálf upp í sveit og sækir Lappa.
Lína hjálpar Lappa að sætta sig við örlög sín og fer með hann til dýralæknisins sem gefur honum sprautu.
Kalli setur upp kynjagleraugun og fær þannig innsýn í kynjaveröld feminismans, þar sem orð eru merkingarlaus og hugarburður flokkaður sem vísindi.
*Myndir sem voru endurnýttar við gerð þessara bóka má sjá hér:
Dísa litla og lotugræðgin, Eldhessi afi minn, Pabbi er bara svo veikur, Ég elska hvern einasta kepp, Mamma þarf að leggja sig, Það á að lóga honum Lappa, Kalli, Stína og kynjagleraugun