Það er út af fyrir sig ánægjulegt að fyrirtæki eins og ÁTVR skuli hefja siðvæðinguna hjá sjálfu sér og nú þegar hefur siðanefndin afstýrt tveimur stórslysum; annarsvegar því að klámsíderinn Tempt 9 yrði markaðssettur á Íslandi og nú nýverið var rauðvíni með nafni hljómsveitarinnar Motörhead hafnað.
Þessum ákvörðunum ber að fagna. Það er nefnilega regla fremur en undantekning að ofbeldisverk séu framin undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna, væntanlega vegna áhrifa umbúða og nafns drykkjarins. Sjaldgæft er talið að fólk hefji fíkniefnaneyslu, nema hafa fyrst vanist áfengi og má ætla að þar hafi nöfn og vörumerki úrslitaáhrif. Það sér því hver maður að drekki menn ávaxtavín úr dós með svo klámfenginni mynd, má fastlega reikna með því að klámframleiðsla aukist til muna og búast má við hrinu kynferðisofbeldis í kjölfarið. Eins er varhugavert að bjóða heim hættunni á því að ungt fólk leiðist út í amfetamínneyslu eftir að hafa drukkið rauðvín með nafni rustahljómsveitar.
Annars veit ég eiginlega ekki hvort er verra að boða, klám eða klausturlíf. Getur ÁTVR virkilega verið þekkt fyrir að hvetja konur til þess að gefa kynfrelsi sitt og framtíðarmöguleika upp á bátinn með því að selja vín með þessu nafni? Hversu margar konur hafa ekki fallið fyrir þessu subliminal áróðursbragði og gengið í klaustur eftir að hafa neytt hvítvíns? Auk þess er hér um að ræða hatursáróður gagnvart trúfélögum sem hvetja til klausturlífs, þar sem gefið er til kynna að klaustur séu í raun dulbúin vændishús. ÁTVR hefur því minnst þrjár ástæður til þess að taka þennan ófögnuð úr sölu hið snarasta, eða í versta falli að bjóða ókeypis límmiða með hverri flösku.
Blái engilinn er ekki skárri en það nafn er ekki hið einasta vísun í klám, heldur einnig í eiturlyfið Englaryk. Auk þess hvetur nafnið til fríkvæðingar kvenna sem kynvera, en sterk hefð fyrir því í skáldskap að kalla konur „engla“. Hver kannast ekki við ástarljóð Páls Ólafssonar sem orti t.d. vísuna:
Ragnhildur mín björt á brá
ber af öllum sýnum.
Hvítasunnuengil á
enginn líkan mínum.
Athyglisvert er að Páll, sem var alræmdur drykkjumaður, talar um „sýnir“ rétt eins og engillinn kalli fram ofsjónir. Vel má velta því fyrir sér hvort forspárgildi felist í ljóðinu því haldi menn að það að kalla konu engil sé bara eitthvert 19. aldar fyrirbæri, þá ætti sá hinn sami að kynna sér boðskap nútímahljómsveita. Hér er dæmi frá CocoRosie en þar vísar engillinn í senn til fíkniefnaneyslu og konu auk þess sem hæglega má túlka textann sem táknsögu um kynlíf með fiðurfé.
Það er í öllu falli verðugt verkefni fyrir siðvæðingarnefnd að kafa ofan í tákngildi engla, dýrlinga og annarra trúarvísana á áfengisflöskum, því það veit hver maður sem eitthvað hefur kynnt sér heim eiturlyfja og ólifnaðar að trúartákn eru svo sannarlega hluti af undirheimakúltúrnum.
Annað siðferðisvandamál Sódómu nútímans, snertir kynþáttahyggju, en þar hefur siðvæðingarnefnd ÁTVR enn ekki látið til sín taka. Í minni barnæsku voru súkkulaðihjúpaðar krembollur seldar undir nafninu „negrakossar“ og má ætla að ásókn ungra kvenna í útlendinga, á hippatímanum, standi í beinu sambandi við þau skilaboð sem í því felast. Ég hef varla verið eldri en 13 ára þegar sælgætisframleiðendur aflögðu þennan ósóma og fundu vörunni siðlegra nafn. Hjá vínbúðinni er þó enn, árið 2012, fáanlegt mikið úrval af allskyns „negravínum“. Þarna gefur t.d. að líta Negro Brut, en það nafn gefur til kynna orsakasamband á milli ruddamennsku og hörundslitar. Legg ég til að ÁTVR hreinsi þegar í stað úr hillum sínum negravínin og önnur vörumerki sem kunna að fela í sér hvatningu til kynþáttamismununar og ala á staðalmyndum um kynþætti og þjóðir, þ.m.t. líkjörinn Irish Mist, sem gefur þá mynd af Írum að þeir séu allajafna þokukenndir í hugsun sakir áfengisneyslu.
Af öllum þeim ósóma sem enn sést í hillum ÁTVR, tel ég þó brýnast að fjarlægja klámdrykki þá sem kenndir eru við brunalosta og karlmannslim í senn. Á ég þar við hið vinsæla vörumerki Cockburn’s sem vafalaust er einhver stærsti hvati kláms og kynferðisofbeldis sem ÁTVR hefur ennþá upp á að bjóða. Það má reyndar furðu sæta að fyrirtæki sem telur sig ekki geta verið þekkt fyrir að bjóða upp á vöru með rósanafni yfir amfetamínneytanda, skuli leggja sig niður við að bjóða viðskiptavinum sínum upp á vöru sem ber heiti sem á Íslensku útleggst „Tittlingsbruni“ á sama tíma og alræmdasti graðnagli Íslands, sætir ákærum vegna kynferðisofbeldis.