{"id":67,"date":"2001-09-18T14:00:27","date_gmt":"2001-09-18T14:00:27","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/?p=67"},"modified":"2017-08-25T11:49:51","modified_gmt":"2017-08-25T11:49:51","slug":"ljosmyndarinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/","title":{"rendered":"Lj\u00f3smyndarinn"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-full wp-image-839\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg\" alt=\"\" width=\"2956\" height=\"1948\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg 2956w, https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496-300x198.jpeg 300w, https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496-768x506.jpeg 768w, https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496-1024x675.jpeg 1024w, https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496-455x300.jpeg 455w\" sizes=\"auto, (max-width: 2956px) 100vw, 2956px\" \/><\/a>Hann stendur vi\u00f0 gluggann og horfir \u00e1 leiki krakkanna. Str\u00e1karnir \u00e1 k\u00f6rfuboltavellinum, stelpurnar verpa eggi og hoppa \u00ed teygjutvist og sn\u00fasn\u00fa. Litlu b\u00f6rnin leika s\u00e9r hinum megin vi\u00f0 sk\u00f3lann en h\u00e9r er leiksv\u00e6\u00f0i unglinganna. \u00c1r eftir \u00e1r hefur hann sta\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 gluggann og fylgst me\u00f0 stelpunum hoppa, hlaupa og losa sand \u00far sk\u00f3num s\u00ednum \u00e1 g\u00f3\u00f0vir\u00f0risd\u00f6gum. N\u00fa eru \u00fe\u00e6r or\u00f0nar st\u00f3rar. Komnar me\u00f0 \u00e1v\u00f6l brj\u00f3st og kvenlegar mja\u00f0mir. Fallegar stelpur, margar hverjar en S\u00f3ley ber af \u00feeim, tv\u00edm\u00e6lalaust. H\u00fan er ekkert barn lengur, h\u00fan er tilb\u00fain, hugsar hann. Hann tekur myndav\u00e9lina og gengur \u00fat \u00e1 tr\u00f6ppurnar.<!--more--><\/p>\n<p>Hann horfir \u00e1 stelpurnar litla stund. S\u00f3ley hl\u00e6jandi, hoppar yfir bandi\u00f0 og d\u00f6kkt h\u00e1ri\u00f0 dansar yfir axlirnar. Rau\u00f0 h\u00e1rsp\u00f6ng heldur h\u00e1rinu fr\u00e1 andlitinu og l\u00edtil, \u00fer\u00fdstin brj\u00f3st hennar d\u00faa undir bl\u00e1um stuttermabol \u00ed hverju hoppi. \u201eHreinn er kominn me\u00f0 helv\u00edtis myndav\u00e9lina\u201c kallar ein telpnanna en hann veit a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6lin vi\u00f0 myndat\u00f6kunni eru einungis til m\u00e1lamynda. \u00de\u00e6r vita vel a\u00f0 engar hryllingsmyndir ver\u00f0a til s\u00fdnis fyrir almenning og \u00feykir hverri um sig skemmtilegast a\u00f0 sko\u00f0a myndirnar af sj\u00e1lfri s\u00e9r. Hann myndar \u00ed gr\u00ed\u00f0 og erg, ekki bara S\u00f3leyju heldur allar st\u00falkurnar. Hann myndar str\u00e1kana au\u00f0vita\u00f0 l\u00edka. Bestu myndirnar fara \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u sk\u00f3lans. Sumum heldur hann fyrir sj\u00e1lfan sig. En \u00fea\u00f0 r\u00e6\u00f0ir hann ekki vi\u00f0 a\u00f0ra.<\/p>\n<p>***<\/p>\n<p>Gangar barnask\u00f3lans bera merki um lj\u00f3smynda\u00e1huga h\u00fasvar\u00f0arins. Upp um alla veggi eru pappaspj\u00f6ld me\u00f0 myndum \u00far sk\u00f3lal\u00edfinu. Ekki a\u00f0eins fr\u00e1 \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0 og litlu j\u00f3lum heldur \u00far hinu daglega l\u00edfi kennslustofu og fr\u00edm\u00edn\u00fatna. Myndir fr\u00e1 10 \u00e1ra t\u00edmabili vista\u00f0ar \u00e1 heimas\u00ed\u00f0unni og eftir a\u00f0 stafr\u00e6na v\u00e9lin var keypt hefur \u00feeim fj\u00f6lga\u00f0 til muna. Hreinn er meira en gangav\u00f6r\u00f0ur. N\u00f3gu laghentur til a\u00f0 spara sveitarf\u00e9laginu grei\u00f0slur til i\u00f0na\u00f0armanna \u00feegar eitthva\u00f0 bilar og hefur \u00fev\u00ed hloti\u00f0 \u00feann vir\u00f0ulega titil h\u00fasv\u00f6r\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er l\u00edka hann sem tekur sk\u00f3lamyndirnar og h\u00e6ttir ekki fyrr en hann n\u00e6r mynd \u00fear sem enginn er asnalegur.<\/p>\n<p>Kannski kemur \u00fea\u00f0 einhverjum \u00e1 \u00f3vart a\u00f0 ma\u00f0ur sem vir\u00f0ist svona upptekinn af lj\u00f3smyndun og hefur auk \u00feess vari\u00f0 t\u00edma og fj\u00e1rmunum til n\u00e1ms \u00ed \u00feeirri grein skuli velja s\u00e9r starf gangavar\u00f0ar \u00ed grunnsk\u00f3la. E\u00f0a h\u00fasvar\u00f0ar, r\u00e9ttara sagt. Hann tekur myndir fyrir B\u00e6jarbla\u00f0i\u00f0 sem kemur \u00fat m\u00e1na\u00f0arlega (og \u00e6tti kannski frekar a\u00f0 heita \u00deorpsbla\u00f0i\u00f0) og f\u00e6r st\u00f6ku sinnum einhver \u00f6nnur myndaverkefni en sjaldan neitt s\u00e9rlega \u00e1hugavert. Hann er me\u00f0 l\u00edti\u00f0 lj\u00f3smyndast\u00fad\u00ed\u00f3 \u00ed b\u00edlsk\u00farnum hj\u00e1 s\u00e9r en hann hefur ekki tekjur af \u00fev\u00ed nema nokkra \u00fe\u00fasundkalla \u00ed kringum fermingar. Mestur hluti t\u00edma hans fer \u00ed a\u00f0 sk\u00fara sk\u00f3lann og hj\u00e1lpa \u00feeim yngstu \u00ed sk\u00f3 og vettlinga. \u201e\u00c9g kann vel vi\u00f0 mig h\u00e9r,\u201c\u00a0segir hann \u00feegar hann er spur\u00f0ur hvort hann langi aldrei a\u00f0 n\u00fdta n\u00e1mi\u00f0 sitt betur. \u201e\u00dea\u00f0 er meira \u00f6ryggi a\u00f0 vinna hj\u00e1 hreppnum en a\u00f0 vera \u00ed fullum rekstri og \u00fea\u00f0 er ekki grundv\u00f6llur fyrir lj\u00f3smyndastofu \u00e1 svona litlum sta\u00f0 svo \u00e9g hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 fara eitthvert anna\u00f0.\u201c \u00dea\u00f0 hlj\u00f3mar sannf\u00e6randi. Sennilega vinna f\u00e6stir vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00feeir hefa mestan \u00e1huga \u00e1 hvort sem er og hann er \u00e1n\u00e6g\u00f0ur svo hverjum er ekki sama?<\/p>\n<p>***<\/p>\n<p>Hann sko\u00f0ar myndirnar sem hann t\u00f3k \u00ed fr\u00edm\u00edn\u00fatunum. Flestar \u00feeirra eru af S\u00f3leyju. F\u00e6star \u00feeirra fara samt \u00e1 heimas\u00ed\u00f0una, \u00fear eru ekki fleiri myndir af henni en \u00f6\u00f0rum kr\u00f6kkum. Hann vistar bestu myndirnar og setur \u00e1 sinn sta\u00f0. J\u00e1 t\u00edminn er kominn, hugsar hann. \u00c1rei\u00f0anlega. H\u00fan hefur \u00fe\u00f3 alltaf brosa\u00f0 til hans \u00e1 g\u00f6ngunum, \u00feessu \u00edbyggna brosi sem tengir \u00feau saman. Sennilega hefur h\u00fan be\u00f0i\u00f0 \u00feessarar stundar ekkert s\u00ed\u00f0ur en hann sj\u00e1lfur.<\/p>\n<p>Hann man fyrsta daginn hennar \u00ed sk\u00f3lanum. Man enn\u00fe\u00e1 hva\u00f0 h\u00fan var f\u00edn, \u00ed bl\u00e1um skokk og hv\u00edtri peysu, me\u00f0 litla sk\u00f3lat\u00f6sku og slaufu \u00ed br\u00fanu h\u00e1rinu. Man hvernig h\u00fan horf\u00f0i \u00e1 hann \u00feegar \u00feau m\u00e6ttust \u00ed anddyrinu. Beint \u00ed augun \u00e1 honum. Og \u00fe\u00f3tt mamma hennar n\u00e1nast dr\u00e6gi hana \u00e1fram, sneri h\u00fan s\u00e9r vi\u00f0 og vinka\u00f0i honum. \u00dea\u00f0 var strax \u00fe\u00e1, \u00e1 \u00fev\u00ed augnabliki sem hann vissi \u00fea\u00f0. Vissi a\u00f0 \u00f6rl\u00f6gin h\u00f6f\u00f0u \u00e6tla\u00f0 \u00feeim a\u00f0 hittast. Vissi a\u00f0 hann yr\u00f0i bara a\u00f0 b\u00ed\u00f0a. Fara a\u00f0 engu \u00f3\u00f0slega, bara a\u00f0 \u00ferauka \u00fear til h\u00fan yr\u00f0i n\u00f3gu g\u00f6mul.<\/p>\n<p>***<\/p>\n<p>Bjallan hringir \u00fat \u00far s\u00ed\u00f0ustu kennslustund dagsins og krakkarnir ry\u00f0jast \u00fat \u00ed einni \u00fev\u00f6gu, skr\u00e6kja, hrinda, kitla og kippa \u00ed buxnastrengi. L\u00f3a heldur \u00e1 bolta og kastar honum til S\u00f3leyjar \u00feegar einn str\u00e1kanna \u00e6tlar \u00ed h\u00e1lfk\u00e6ringi a\u00f0 n\u00e1 honum af henni. Drengurinn \u00e6\u00f0ir \u00ed \u00e1tt til S\u00f3leyjar sem aftur hendir boltanum til vinkonu sinnar. Leikurinn berst inn ganginn og boltinn lendir \u00f3vart \u00ed andlitinu \u00e1 telpu \u00far 8. bekk. Hreinn kemur fram \u00ed sama bili, byrstir sig og kallar \u00e1 st\u00falkurnar. \u00de\u00e6r vita vel a\u00f0 \u00fea\u00f0 er banna\u00f0 a\u00f0 vera \u00ed boltaleikjum innanh\u00fass en \u00feetta var saklaust, n\u00e1nast \u00f3vart, telpan \u00f3meidd og hann er ekki vanur a\u00f0 vera sm\u00e1munasamur. \u00de\u00e6r tr\u00edtla \u00f3lundarlega \u00e1 eftir honum inn \u00ed h\u00fasvar\u00f0arkompuna og tauta athugasemdir um \u00fe\u00e1tt piltsins \u00ed hinum \u00f3v\u00e6nta boltaleik .<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feessum 10 \u00e1rum S\u00f3leyjar \u00ed sk\u00f3lanum hafa kennarar komi\u00f0 og fari\u00f0. Sk\u00f3lastj\u00f3raskipti or\u00f0i\u00f0 einu sinni og h\u00fan man eftir \u00feremur sk\u00f3lab\u00edlstj\u00f3rum. En Hreinn, hann hefur alltaf veri\u00f0 h\u00e9r, n\u00e6stum eins og hann s\u00e9 hluti af sk\u00f3lanum sj\u00e1lfum, gjarnan me\u00f0 myndav\u00e9lina \u00e1 lofti en oftar \u00fe\u00f3 me\u00f0 g\u00f3lf\u00fevegil og r\u00e6stingavagninn \u00ed eftirdragi. Hann er g\u00f3\u00f0i h\u00fasv\u00f6r\u00f0urinn, hefur raunverulegan \u00e1huga \u00e1 nemendum. Alltaf rei\u00f0ub\u00fainn a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0a. Spjallar vi\u00f0 \u00fe\u00e6r vinkonurnar \u00ed fr\u00edm\u00edn\u00fatum, spyr hvort \u00fe\u00e6r \u00e6tli \u00e1 sk\u00f3laballi\u00f0, hvort \u00fe\u00e6r hafi fengi\u00f0 vinnu \u00ed sumar, hvernig gangi \u00ed fimleikunum. Alltaf hefur hann \u00f3ska\u00f0 henni til hamingju me\u00f0 afm\u00e6li\u00f0. Alltaf hefur hann m\u00e6tt me\u00f0 myndav\u00e9l \u00e1 t\u00f3nleika t\u00f3nlistarsk\u00f3lans \u00fe\u00f3tt hann eigi ekkert barn \u00fear sj\u00e1lfur og seti\u00f0 \u00feolinm\u00f3\u00f0ur undir klukkustundardagskr\u00e1 af <em>G\u00f3\u00f0a mamma gef\u00f0u m\u00e9r, g\u00f3\u00f0a mj\u00f3lk a\u00f0 drekka <\/em>og \u00e1l\u00edka d\u00e1samlegum mel\u00f3d\u00edum leiknum \u00e1 blokkflautu e\u00f0a p\u00edan\u00f3 af takmarka\u00f0ri snilld grunnsk\u00f3labarna, teki\u00f0 myndir af hinum ungu t\u00f3nlistarm\u00f6nnum og hr\u00f3sa\u00f0 \u00ed h\u00e1stert. Alltaf m\u00e6tir hann til a\u00f0 horfa \u00e1 fimleikam\u00f3t, ekki bara til a\u00f0 mynda sigurvegarana me\u00f0 medal\u00edur og ver\u00f0launagripi fyrir B\u00e6jarbla\u00f0i\u00f0, heldur til a\u00f0 fylgjast me\u00f0. S\u00f3ley tr\u00fair \u00fev\u00ed varla a\u00f0 \u00feessi almennilegi h\u00fasv\u00f6r\u00f0ur \u00e6tli a\u00f0 fara a\u00f0 vera me\u00f0 lei\u00f0indi \u00feennan s\u00ed\u00f0asta dag fyrir vorpr\u00f3f. Stelpan meiddi sig ekki einu sinni.<\/p>\n<p>H\u00fasvar\u00f0arkompan er l\u00edti\u00f0 afdrep en notalegt og \u00fej\u00f3nar einnig sem a\u00f0sta\u00f0a sk\u00f3las\u00e1lfr\u00e6\u00f0ings og hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ings sem heims\u00e6kja sk\u00f3lann nokkrum sinnum yfir veturinn og fundaherberbergi fyrir foreldra og kennara. T\u00f6lvubor\u00f0 \u00ed einu horninu, hillur me\u00f0 verf\u00e6rakassa, sj\u00fakrakassa og nokkrum m\u00f6ppum, kaffibor\u00f0 og 3 st\u00f3lar. H\u00fan hefur komi\u00f0 \u00feanga\u00f0 \u00e1\u00f0ur me\u00f0 Hreini. Fyrir l\u00f6ngu.\u00a0Var kannski 8 e\u00f0a 9 \u00e1ra. Datt kyllifl\u00f6t \u00ed st\u00f3ran drullupoll \u00ed fr\u00edm\u00edn\u00fatunum og f\u00f3r a\u00f0 gr\u00e1ta. Hann s\u00e1 \u00fea\u00f0 strax og hlj\u00f3p til hennar \u00e1 undan kennaranum. T\u00f3k hana \u00ed fangi\u00f0 og sag\u00f0ist mundu hafa samband heim til a\u00f0 f\u00e1 \u00feurr f\u00f6t.<\/p>\n<p>***<\/p>\n<p>Hann bar hana inn \u00ed h\u00fasvar\u00f0arkompuna. Hl\u00fdna\u00f0i a\u00f0 innan vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 \u00feetta t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 halda henni \u00ed fa\u00f0mi s\u00e9r og skeytti \u00fev\u00ed engu \u00fe\u00f3tt hans eigin f\u00f6t yr\u00f0u blaut. Man enn\u00fe\u00e1 ilminn \u00far h\u00e1ri hennar og a\u00f0 h\u00fan sk\u00e6ldi og kvarta\u00f0i um s\u00e1rsauka \u00ed hn\u00e9nu. Hann hugga\u00f0i hana. Tala\u00f0i \u00ed sefandi t\u00f3n og \u00feerra\u00f0i t\u00e1rin af andliti hennar. H\u00fan sat \u00e1 bor\u00f0inu hans og hann kl\u00e6ddi hana \u00far rennblautri \u00falpunni. \u00dea\u00f0 var gat \u00e1 buxnask\u00e1lminni og hann bretti henni upp til a\u00f0 sj\u00e1 s\u00e1ri\u00f0. \u00dea\u00f0 var lj\u00f3tt s\u00e1r og buxurnar blautar. Hann f\u00e6r\u00f0i hana \u00far og setti f\u00f6tin \u00e1 ofninn. Hreinsa\u00f0i s\u00e1ri\u00f0 af n\u00e6rg\u00e6tni og setti \u00e1 \u00fea\u00f0 pl\u00e1stur. Hl\u00fdja\u00f0i litlu t\u00e1num milli st\u00f3rra handa sinna og vaf\u00f0i hana inn \u00ed fl\u00edsteppi. H\u00e1rspennan haf\u00f0i gengi\u00f0 \u00far skor\u00f0um og hann fjarl\u00e6g\u00f0i hana og greiddi h\u00e1r hennar. Laga\u00f0i svo handa henni SwissMiss-kak\u00f3 sem h\u00fan drakk \u00e1 me\u00f0an h\u00fan bei\u00f0 eftir a\u00f0 mamma hennar k\u00e6mi me\u00f0 \u00feurr f\u00f6t. \u00deau spj\u00f6llu\u00f0u saman \u00e1 me\u00f0an og h\u00fan var \u00ed besta skapi \u00feegar m\u00f3\u00f0ir hennar \u00feakka\u00f0i \u00feurrlega fyrir a\u00f0sto\u00f0ina og leiddi hana aftur til kennslustofunnar. Hann minnti hana ekki \u00e1 a\u00f0 taka h\u00e1rspennuna s\u00edna \u00feegar h\u00fan f\u00f3r, heldur geymdi hana til minja.<\/p>\n<p>***<\/p>\n<p>L\u00f3a hlassar s\u00e9r ni\u00f0ur \u00ed st\u00f3l og fn\u00e6sir. \u201e\u00deetta var \u00f3vart\u201c segir h\u00fan h\u00e1lf \u00f6nuglega. \u201eAf hverju talar\u00f0u ekki vi\u00f0 Sigurj\u00f3n l\u00edka? \u00dea\u00f0 var eiginlega hann sem byrja\u00f0i.\u201c Hreinn r\u00e9ttir a\u00f0 \u00feeim s\u00e6lg\u00e6tissk\u00e1l og \u00fe\u00e6r taka einn mola hvor. J\u00e6ja sennilega \u00e6tlar hann n\u00fa ekki a\u00f0 gera m\u00e1l \u00far \u00feessu fyrst hann gefur \u00feeim nammi. \u201e\u00dei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 a\u00f0 passa ykkur stelpur m\u00ednar. \u00dei\u00f0 viti\u00f0 vel a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e1 ekki vera \u00ed boltaleikjum inni.\u201c segir hann og sest. L\u00f3a hefur yfir \u00fatsk\u00fdringar \u00e1 \u00fev\u00ed hvernig atviki\u00f0 vildi til og Hreinn hlustar og kinkar kolli. \u201e\u00de\u00fa m\u00e1tt fara n\u00fana en \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 bi\u00f0ja \u00feig a\u00f0 ver\u00f0a eftir S\u00f3ley,\u201c segir hann. S\u00f3ley m\u00f3tm\u00e6lir: \u201e\u00dea\u00f0 var ekki \u00e9g sem kasta\u00f0i \u00ed hana. \u00dea\u00f0 var heldur ekki \u00e9g sem byrja\u00f0i. Af hverju \u00e6tlar\u00f0u \u00fe\u00e1 a\u00f0 halda m\u00e9r lengur?\u201c En Hreinn hlustar ekki \u00e1 neinar m\u00f3tb\u00e1rur, heldur stuggar L\u00f3u \u00fat.<\/p>\n<p>***<\/p>\n<p>Hann sest gegnt henni vi\u00f0 bor\u00f0i\u00f0. Horfir \u00e1 hana, einkennilegu augnar\u00e1\u00f0i og r\u00e6skir sig.<br \/>\n\u201eErtu b\u00fain a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a \u00ed hva\u00f0a framhaldssk\u00f3la \u00fe\u00fa \u00e6tlar?\u201c J\u00fa, h\u00fan er b\u00fain a\u00f0 \u00fev\u00ed og segir honum fr\u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un sinni en horfir tortryggnislega \u00e1 hann. Kannski finnst henni ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 komi honum neitt vi\u00f0? \u201e\u00de\u00fa ert mj\u00f6g falleg stelpa S\u00f3ley. Kl\u00e1r l\u00edka,\u201c segir hann og h\u00fan \u00feakkar h\u00f3li\u00f0 feimnislega. \u201eVi\u00f0 hittumst sennilega ekki h\u00e9r \u00ed sk\u00f3lanum eftir \u00feessa viku en \u00e9g get ekki hugsa\u00f0 til \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 \u00feig ekki framar. Mig langar til a\u00f0 \u00fe\u00fa heims\u00e6kir mig st\u00f6ku sinnum. \u00de\u00fa ert n\u00fa or\u00f0in \u00fea\u00f0 st\u00f3r a\u00f0 \u00fe\u00fa r\u00e6\u00f0ur \u00fe\u00e9r a\u00f0 mestu leyti sj\u00e1lf,\u201c segir hann og \u00fea\u00f0 ve\u00f0ur d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00e1 honum eins og hann s\u00e9 a\u00f0 fl\u00fdta s\u00e9r a\u00f0 koma \u00feessu fr\u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>St\u00falkan starir undrandi \u00e1 hann. Hann hefur a\u00f0 v\u00edsu alltaf veri\u00f0 almennilegur og s\u00fdnt merki \u00feess a\u00f0 hann kunni vel vi\u00f0 hana en er \u00feetta ekki einum of? \u201eAf hverju viltu a\u00f0 \u00e9g komi \u00ed heims\u00f3kn?\u201c spyr h\u00fan fremur kuldalega.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u201eM\u00e9r \u00feykir mj\u00f6g v\u00e6nt um \u00feig S\u00f3ley.\u201c svarar hann og h\u00fan s\u00e9r ekki betur en \u00fea\u00f0 fari sm\u00e1viprur um munnvik hans. \u201e\u00dea\u00f0 er \u00fe\u00edn vegna sem \u00e9g hef veri\u00f0 h\u00e9r \u00f6ll \u00feessi \u00e1r. Ekki eing\u00f6ngu \u00fe\u00edn vegna en a\u00f0allega \u00fe\u00edn vegna. Bara til a\u00f0 geta fylgst me\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<\/p>\n<p>H\u00fan situr sem l\u00f6mu\u00f0 \u00ed st\u00f3lnum. Kverkarnar \u00feorna. Hn\u00e9n eins og deig. H\u00fan \u00feegir litla stund en kve\u00f0ur svo upp \u00farskur\u00f0 sinn me\u00f0 hneykslan b\u00e6\u00f0i \u00ed svipnum og m\u00e1lr\u00f3mnum: \u201e\u00de\u00fa ert klikka\u00f0ur! \u00de\u00fa ert snarklikka\u00f0ur!\u201c H\u00fan stendur upp og s\u00fdnir \u00e1 s\u00e9r fararsni\u00f0 en fer \u00fe\u00f3 ekki heldur horfir \u00e1 hann eins og h\u00fan v\u00e6nti sk\u00fdringa. Hann finnur s\u00e1rsaukann heltaka sig. Hefur hann \u00fe\u00e1 oft\u00falka\u00f0 bros hennar? Oft\u00falka\u00f0 allar hl\u00fdju kve\u00f0jurnar s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rin? J\u00f3lakortin sem h\u00fan sendi honum og virtust \u00f6ll einhvernvegin innilegri en kort hinna barnanna? Nei, hann tr\u00fair \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 henni standi \u00e1 sama um hann. Tr\u00fair \u00fev\u00ed bara ekki. Nei, \u00fea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera \u00f6nnur sk\u00fdring. Kannski veit h\u00fan ekki a\u00f0 \u00feau eru eil\u00edflega tengd? Er \u00fea\u00f0 sk\u00fdringin \u00e1 \u00feessum \u00f3v\u00e6ntu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um? Hann gengur \u00far a\u00f0 glugganum, horfir \u00fat me\u00f0 hendur \u00ed v\u00f6sum.<\/p>\n<p>\u201eS\u00f3ley. Manstu \u00feegar \u00fe\u00fa varst p\u00ednul\u00edtil. Tveggja \u2013 \u00feriggja \u00e1ra?\u201c H\u00fan svarar ekki.<br \/>\n\u201eManstu fyrsta daginn \u00feinn \u00ed sk\u00f3lanum?\u201c<br \/>\n\u201eJ\u00fa \u2013 eitthva\u00f0 held \u00e9g. \u00c9g man allavega a\u00f0 vi\u00f0 keyptum sk\u00f3lat\u00f6sku og \u00fea\u00f0 var tyggj\u00f3klessa undir bor\u00f0inu m\u00ednu&#8230; Af hverju spyr\u00f0u a\u00f0 \u00fev\u00ed?\u201c<br \/>\n\u201e\u00de\u00fa manst ekki eftir m\u00e9r?\u201c H\u00fan hugsar sig um litla stund.<br \/>\n\u201eNeeei&#8230; Hvernig \u00fe\u00e1?\u201c<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 s\u00fdna \u00fe\u00e9r d\u00e1l\u00edti\u00f0\u201c segir hann og sn\u00fdr s\u00e9r a\u00f0 henni aftur. Hann bi\u00f0ur hana a\u00f0 setjast vi\u00f0 t\u00f6lvuskj\u00e1inn og opnar m\u00f6ppu sem er merkt honum pers\u00f3nulega. H\u00fan sest, treglega. Veit a\u00f0 h\u00fan \u00e6tti a\u00f0 koma s\u00e9r burt fr\u00e1 \u00feessum skr\u00fdtna manni en hann er ekki \u00f3kunnugur og forvitni hennar er vakin. Hann dregur st\u00f3l a\u00f0 t\u00f6lvubor\u00f0inu og sest hj\u00e1 henni. \u00dea\u00f0 eru myndir \u00ed m\u00f6ppunni. Fyrst mynd sem var tekin um morguninn. Af henni. H\u00fan hoppar yfir band og brosir. G\u00f3\u00f0 mynd. Fleiri myndir \u00far sk\u00f3lanum. Allar af henni. \u00c1 sumum \u00feeirra eru fleiri krakkar en h\u00fan vir\u00f0ist allsta\u00f0ar vera a\u00f0almyndefni\u00f0. Mynd af henni \u00ed hlutverki \u00e1 \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0inni. Mynd af henni \u00e1 sk\u00f3laballi. Myndir fr\u00e1 fyrri \u00e1rum. S\u00f3ley \u00e1 fimleikam\u00f3ti. S\u00f3ley \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0it\u00edma. S\u00f3ley a\u00f0 losa sand \u00far sk\u00f3num. S\u00f3ley 8 \u00e1ra me\u00f0 tannlaust bros. S\u00f3ley \u00e1 litlu j\u00f3lunum \u00ed bleikum kj\u00f3l.<\/p>\n<p>\u201e\u00c1ttu l\u00edka svona myndam\u00f6ppur me\u00f0 hinum kr\u00f6kkunum?\u201c spyr h\u00fan og stendur greinilega ekki \u00e1 sama. \u201eNei, au\u00f0vita\u00f0 ekki.\u201c segir Hreinn. \u201e\u00de\u00fa manst ekkert eftir m\u00e9r e\u00f0a hva\u00f0?\u201c b\u00e6tir hann svo vi\u00f0 og \u00fea\u00f0 er eins og d\u00e1l\u00edtill kv\u00ed\u00f0abroddur \u00ed r\u00f6ddinni.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g man \u00feegar \u00fe\u00fa t\u00f3kst \u00feessa!\u201c segir h\u00fan allt \u00ed einu, l\u00edkt og h\u00fan hafi gert uppg\u00f6tvun. H\u00fan horfir \u00e1 mynd fr\u00e1 fyrsta sk\u00f3ladeginum, degi sem t\u00edminn hefur sveipa\u00f0 \u00feoku. H\u00fan stendur \u00e1 ganginum \u00ed bl\u00e1um skokk og hv\u00edtri peysu undir. Hefur sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r vi\u00f0 og horfir forvitnum augum \u00ed linsuna en vi\u00f0 hli\u00f0 hennar sn\u00fdr st\u00f3r mannvera baki vi\u00f0 v\u00e9linni, heldur \u00ed h\u00f6nd hennar og vill greinilega halda \u00e1fram. \u201e\u00de\u00fa snerir \u00fe\u00e9r vi\u00f0 til a\u00f0 horfa \u00e1 mig,\u201c segir Hreinn og flettir \u00e1fram.<\/p>\n<p>Myndirnar sem n\u00fa taka vi\u00f0 eru eldri. Eins og vanti t\u00edmabil \u00ed \u00e6vi hennar. Mynd af henni l\u00edklega tveggja \u00e1ra a\u00f0 leika s\u00e9r fyrir framan h\u00fas \u00f6mmu sinnar. Mynd af henni \u00ed sandkassa. Mynd fr\u00e1 j\u00f3lum \u00e1 fyrsta heimili hennar \u00ed Reykjav\u00edk. \u201eHvar f\u00e9kkstu \u00feessar myndir?\u201c spyr h\u00fan undrandi og heldur \u00e1fram a\u00f0 sko\u00f0a. Myndir \u00far \u00f6mmuh\u00fasi. Mynd af henni \u00ed fangi m\u00f3\u00f0ur sinnar \u00e1 eins \u00e1rs afm\u00e6linu. S\u00ed\u00f0asta myndin er af Hreini. miklu yngri en hann er \u00ed dag. Me\u00f0 meira h\u00e1r og skegglaus en \u00fe\u00f3 greinilega s\u00e1 sami. Hann heldur \u00e1 sm\u00e1barni. H\u00fan l\u00edtur \u00ed augu hans.<br \/>\n\u201eEr \u00feetta \u00e9g?\u201c<br \/>\n\u201eJ\u00e1.\u201c<br \/>\n\u201e\u00de\u00fa \u00feekktir \u00fe\u00e1 m\u00f6mmu \u00feegar \u00e9g var l\u00edtil?\u201c spyr h\u00fan og \u00fea\u00f0 er l\u00edkt og eitthva\u00f0 su\u00f0i fyrir eyrum hennar.<\/p>\n<p>Hreinn kiprar sig saman \u00ed st\u00f3lnum og spennir greipar undir h\u00f6ku. \u201e\u00dea\u00f0 hefur kannski veri\u00f0 \u00f3skhyggja hj\u00e1 m\u00e9r en \u00e9g var viss um a\u00f0 \u00fe\u00fa myndir eftir m\u00e9r, e\u00f0a a\u00f0 \u00fe\u00e9r hef\u00f0i allavega sagt \u00fe\u00e9r fr\u00e1 m\u00e9r eftir a\u00f0 \u00fe\u00fa byrja\u00f0ir \u00ed sk\u00f3lanum. \u201c segir Hreinn. &#8222;\u00de\u00fa varst bara nokkurra vikna \u00feegar vi\u00f0 f\u00f3rum a\u00f0 vera saman. Vi\u00f0 bjuggum saman \u00ed tv\u00f6 og h\u00e1lft \u00e1r og allan \u00feann t\u00edma var pabbi \u00feinn ekkert nema nafn \u00e1 bla\u00f0i. Vi\u00f0 hvorki s\u00e1um hann n\u00e9 heyr\u00f0um fr\u00e1 honum. Svo \u00feegar \u00fe\u00fa varst \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ri hittust \u00feau. Og mamma \u00fe\u00edn \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 fara til hans aftur. \u201c Hann tekur s\u00e9r m\u00e1lhv\u00edld og kveikir s\u00e9r \u00ed s\u00edgarettu enda \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 banna\u00f0 a\u00f0 reykja \u00ed sk\u00f3lanum, heldur svo \u00e1fram.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g er allavega alveg handviss um um a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00feekktir mig fyrsta daginn sem \u00fe\u00fa komst hinga\u00f0. \u00de\u00fa hefur kannski ekki komi\u00f0 m\u00e9r alveg fyrir \u00feig en \u00fe\u00fa horf\u00f0ir \u00feannig \u00e1 mig a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekkert vafam\u00e1l a\u00f0 eitthva\u00f0 rifja\u00f0ist upp. \u00c9g haf\u00f0i r\u00e1\u00f0i\u00f0 mig \u00ed vinnu hj\u00e1 hreppnum eiginlega af tilviljun. \u00c1rni br\u00f3\u00f0ir minn gat ekki selt \u00edb\u00fa\u00f0ina s\u00edna og mig vanta\u00f0i h\u00fasn\u00e6\u00f0i og \u00feannig lenti \u00e9g n\u00fa h\u00e9r. \u00c9g haf\u00f0i ekkert heyrt fr\u00e1 m\u00f6mmu \u00feinni \u00ed n\u00e6stum \u00ferj\u00fa \u00e1r og haf\u00f0i ekki hugmynd um a\u00f0 \u00fei\u00f0 v\u00e6ru\u00f0 flutt hinga\u00f0. \u00c9g \u00e6tla\u00f0i aldrei a\u00f0 vera h\u00e9r nema eitt \u00e1r \u00e1 me\u00f0an \u00e9g v\u00e6ri a\u00f0 koma m\u00e9r upp sm\u00e1 sj\u00f3\u00f0i til a\u00f0 opna lj\u00f3smyndastofu. Svo bara l\u00edka\u00f0i m\u00e9r vel h\u00e9r og \u00fe\u00fa varst h\u00e9r og \u00fe\u00f3tt mamma \u00fe\u00edn hef\u00f0i skipa\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 halda mig \u00ed h\u00e6filegri fjarl\u00e6g\u00f0 fr\u00e1 \u00fe\u00e9r, gat \u00e9g samt allavega fylgst me\u00f0 \u00fe\u00e9r. \u201c<\/p>\n<p>\u201e\u00deessvegna t\u00f3kstu svona margar myndir af m\u00e9r?\u201c segir S\u00f3ley sem enn situr h\u00e1lfdolfallin og starir til skiptis \u00e1 h\u00fasv\u00f6r\u00f0inn og skj\u00e1inn. Hann kinkar kolli. \u201eEinmitt. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa varst n\u00fa barni\u00f0 mitt, hva\u00f0 sem \u00f6llum lagakr\u00f3kum l\u00ed\u00f0ur. \u00de\u00fa kalla\u00f0ir mig pabba en ekki hann. \u00dea\u00f0 var \u00e9g sem kl\u00e6ddi \u00feig og \u00feurrka\u00f0i horinn af nefinu \u00e1 \u00fe\u00e9r. \u00dea\u00f0 var \u00e9g sem sko\u00f0a\u00f0i me\u00f0 \u00fe\u00e9r myndab\u00e6kur og f\u00f3r me\u00f0 \u00feig \u00fat \u00e1 leikv\u00f6ll. \u00c9g \u00e9g t\u00f3k \u00fev\u00ed illa \u00feegar h\u00fan sag\u00f0i m\u00e9r upp \u00far \u00feurru a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri a\u00f0 flytja til fyrrverandi en \u00e9g veit ekki til \u00feess a\u00f0 \u00e9g hafi gert neitt sem r\u00e9ttl\u00e6tir \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hafi bein\u00ednis haldi\u00f0 tilvist minni leyndri fyrir \u00fe\u00e9r \u00f6ll \u00feessi \u00e1r. \u00c9g reyndi a\u00f0 semja um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 hitta \u00feig \u00feegar \u00e9g var b\u00fainn a\u00f0 jafna mig en \u00feau vildu ekki heyra \u00e1 \u00fea\u00f0 minnst. \u00deau \u00e1kv\u00e1\u00f0u a\u00f0 taka \u00feig fr\u00e1 m\u00e9r, svo einfalt var \u00fea\u00f0. Og l\u00f6gin eru n\u00fa bara \u00feannig a\u00f0 \u00e9g \u00e1tti ekkert tilkall til \u00fe\u00edn.<\/p>\n<p>\u201eHva\u00f0 \u00e1ttu vi\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir teki\u00f0 \u00fev\u00ed illa?\u201c Hann sest \u00e1 st\u00f3linn vi\u00f0 hli\u00f0 hennar, horfir \u00e1 hana \u00fe\u00fd\u00f0ingarmiklu augnar\u00e1\u00f0i og leggur l\u00f3fann \u00e1 \u00f6xl hennar. \u201e\u00c9g sl\u00f3 hana utan undir. \u00c9g \u00e6tla ekkert a\u00f0 reyna a\u00f0 afsaka \u00fea\u00f0 en \u00feetta var eitt andartak \u00ed miklu uppn\u00e1mi og \u00fea\u00f0 gerir mig ekki a\u00f0 neinum ofbeldismanni. H\u00fan nota\u00f0i \u00fea\u00f0 sem afs\u00f6kun en l\u00edklega hef\u00f0i \u00e9g hvort sem er aldrei fengi\u00f0 a\u00f0 hafa neitt af \u00fe\u00e9r a\u00f0 segja. Au\u00f0vita\u00f0 hef\u00f0i \u00feetta ekki \u00e1tt a\u00f0 koma m\u00e9r svona illilega \u00e1 \u00f3vart. H\u00fan var b\u00fain a\u00f0 vera t\u00f6lvert a\u00f0 heiman \u00e1n sannf\u00e6randi sk\u00fdringa \u00ed margar vikur svo \u00e9g hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 geta sagt m\u00e9r \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri einhver annar \u00ed spilinu. \u00deegar allt kemur til alls eru hlutirnir venjulega n\u00e1kv\u00e6mlega eins og \u00feeir l\u00edta \u00fat fyrir a\u00f0 vera.\u201c<\/p>\n<p>Hann f\u00e6rir l\u00f3fann af \u00f6xl hennar og snertir vanga hennar, ofurvarlega, me\u00f0 tveimur fingrum.\u00a0 Myndin \u00e1 t\u00f6lvuskj\u00e1num s\u00e9st ekki lengur.<\/p>\n<p>Skj\u00e1hv\u00edlan er sv\u00f6rt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hann stendur vi\u00f0 gluggann og horfir \u00e1 leiki krakkanna. Str\u00e1karnir \u00e1 k\u00f6rfuboltavellinum, stelpurnar verpa eggi og hoppa \u00ed teygjutvist og sn\u00fasn\u00fa. Litlu b\u00f6rnin leika s\u00e9r hinum megin vi\u00f0 sk\u00f3lann en h\u00e9r er leiksv\u00e6\u00f0i unglinganna. \u00c1r eftir \u00e1r hefur hann sta\u00f0i\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-67","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allt-efni","category-sogur"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.5 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Lj\u00f3smyndarinn - Birta<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Lj\u00f3smyndarinn - Birta\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Hann stendur vi\u00f0 gluggann og horfir \u00e1 leiki krakkanna. Str\u00e1karnir \u00e1 k\u00f6rfuboltavellinum, stelpurnar verpa eggi og hoppa \u00ed teygjutvist og sn\u00fasn\u00fa. Litlu b\u00f6rnin leika s\u00e9r hinum megin vi\u00f0 sk\u00f3lann en h\u00e9r er leiksv\u00e6\u00f0i unglinganna. \u00c1r eftir \u00e1r hefur hann sta\u00f0i\u00f0 &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Birta\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2001-09-18T14:00:27+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-08-25T11:49:51+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"17 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"Lj\u00f3smyndarinn\",\"datePublished\":\"2001-09-18T14:00:27+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-25T11:49:51+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/\"},\"wordCount\":3350,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2001\\\/09\\\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg\",\"articleSection\":[\"Allt efni\",\"S\u00f6gur\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/\",\"name\":\"Lj\u00f3smyndarinn - Birta\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2001\\\/09\\\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg\",\"datePublished\":\"2001-09-18T14:00:27+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-25T11:49:51+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/#primaryimage\",\"url\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2001\\\/09\\\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg\",\"contentUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2001\\\/09\\\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg\"},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/ljosmyndarinn\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Lj\u00f3smyndarinn\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\",\"name\":\"Birta\",\"description\":\"Evukv\u00e6\u00f0i\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Lj\u00f3smyndarinn - Birta","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Lj\u00f3smyndarinn - Birta","og_description":"Hann stendur vi\u00f0 gluggann og horfir \u00e1 leiki krakkanna. Str\u00e1karnir \u00e1 k\u00f6rfuboltavellinum, stelpurnar verpa eggi og hoppa \u00ed teygjutvist og sn\u00fasn\u00fa. Litlu b\u00f6rnin leika s\u00e9r hinum megin vi\u00f0 sk\u00f3lann en h\u00e9r er leiksv\u00e6\u00f0i unglinganna. \u00c1r eftir \u00e1r hefur hann sta\u00f0i\u00f0 &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/","og_site_name":"Birta","article_published_time":"2001-09-18T14:00:27+00:00","article_modified_time":"2017-08-25T11:49:51+00:00","og_image":[{"url":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg","type":"","width":"","height":""}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"17 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"Lj\u00f3smyndarinn","datePublished":"2001-09-18T14:00:27+00:00","dateModified":"2017-08-25T11:49:51+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/"},"wordCount":3350,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg","articleSection":["Allt efni","S\u00f6gur"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/","name":"Lj\u00f3smyndarinn - Birta","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg","datePublished":"2001-09-18T14:00:27+00:00","dateModified":"2017-08-25T11:49:51+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/#primaryimage","url":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg","contentUrl":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2001\/09\/photographer-camera-photo-photos-52496.jpeg"},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/ljosmyndarinn\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Lj\u00f3smyndarinn"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/","name":"Birta","description":"Evukv\u00e6\u00f0i","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/67","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=67"}],"version-history":[{"count":12,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/67\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":841,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/67\/revisions\/841"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=67"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=67"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=67"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}