{"id":620,"date":"2006-08-20T17:59:03","date_gmt":"2006-08-20T17:59:03","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/?p=620"},"modified":"2017-08-25T11:35:40","modified_gmt":"2017-08-25T11:35:40","slug":"saga-handa-anonymusi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/","title":{"rendered":"Saga handa Anonymusi"},"content":{"rendered":"<p>Einu sinni var l\u00edti\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki sem h\u00e9t Af\u00fev\u00edbaraborg. \u00cd Af\u00fev\u00edbaraborg giltu l\u00f6g og reglur eins og \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkjum. Afar sanngj\u00f6rn l\u00f6g og fullkomin. Ein greinin \u00ed l\u00f6gum um r\u00e9tt manna til atvinnu, kva\u00f0 t.d. \u00e1 um a\u00f0 menn m\u00e6ttu byggja lj\u00f3tar og illalyktandi s\u00edldarbr\u00e6\u00f0sluverksmi\u00f0jur \u00ed almenningsg\u00f6r\u00f0um, ef \u00fe\u00e1 langa\u00f0i \u00ed n\u00fdjan fjallajeppa. \u00cd l\u00f6gum um gagnkv\u00e6ma framf\u00e6rsluskyldu hj\u00f3na sag\u00f0i a\u00f0 menn m\u00e6ttu beita maka s\u00edna &#8222;l\u00edkamlegum hvatningara\u00f0ger\u00f0um innan h\u00f3flegra marka&#8220; ef \u00feeir legg\u00f0u ekki n\u00f3gu miki\u00f0 til heimilisins. Svona var n\u00fa r\u00e9ttarfari\u00f0 fullkomi\u00f0 \u00ed Af\u00fev\u00edbaraborg. Allt skr\u00e1\u00f0 \u00ed b\u00f3kina me\u00f0 milligreinum, regluger\u00f0um og \u00f6llu.<!--more--><\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt flestir \u00edb\u00faar Af\u00fev\u00edbaraborgar, v\u00e6ru allajafna fri\u00f0elskandi, var \u00fe\u00f3 eitt sem olli st\u00f6\u00f0ugum deilum: Menn voru bara alls ekkert samm\u00e1la um \u00fea\u00f0 hvers konar hvatningara\u00f0ger\u00f0ir teldust &#8222;innan h\u00f3flegra marka&#8220;. M\u00e1lmfr\u00ed\u00f0ur sag\u00f0i t.d. mj\u00f6g h\u00f3flegt a\u00f0 reka n\u00fdbr\u00fdnda n\u00f6gl \u00ed anna\u00f0 auga eiginmanns s\u00edns, hans K\u00e1ra \u00feegar vonir hennar um a\u00f0 hann fengi launah\u00e6kkun brug\u00f0ust. Hann yr\u00f0i \u00e1rei\u00f0anlega ekki blindur af \u00fev\u00ed, allavega ekki nema \u00e1 \u00f6\u00f0ru auganu, svo \u00fea\u00f0 hlyti a\u00f0 teljast &#8222;h\u00f3flegt&#8220;. \u00deegar allt kom til alls langa\u00f0i hana \u00ed n\u00fdjan pels. Magni \u00e1leit e\u00f0lilegt a\u00f0 beita \u00f6llum r\u00e1\u00f0um, svo framarlega sem hann skildi ekki eftir sig s\u00fdnilega \u00e1verka. Hann nota\u00f0i \u00fe\u00e1 a\u00f0fer\u00f0 a\u00f0 d\u00fdfa h\u00f6f\u00f0i \u00c1rd\u00edsar, konu sinnar, \u00ed vatn \u00feegar hann langa\u00f0i \u00ed n\u00fdjan jeppa sem h\u00fan vildi ekki vinna fyrir. Hann g\u00e6tti \u00feess alveg a\u00f0 h\u00fan drukkna\u00f0i ekki, \u00feetta var bara hans a\u00f0fer\u00f0 til a\u00f0 n\u00e1 fram meiri framlei\u00f0ni. Flestir \u00ed Af\u00fev\u00edbaraborg h\u00f6f\u00f0u fullan skilning \u00e1 \u00feessum a\u00f0fer\u00f0um enda voru flestir \u00ed g\u00f3\u00f0um tengslum vi\u00f0 raunveruleikann.<\/p>\n<p>Langt \u00ed burtu fr\u00e1 Af\u00fev\u00edbaraborg bj\u00f3 h\u00f3pur af hassreykjandi lopapeysuhippum. \u00deeir \u00feurftu ekkert a\u00f0 vinna. \u00deeir fengu bara styrki fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum hassreykjandi lopapeysuhippum sem \u00feurftu heldur ekkert a\u00f0 vinna. Hassreykjandi lopapeysuhipparnir voru ekki \u00ed neinu sambandi vi\u00f0 raunveruleikann. \u00deeir voru vanir \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edta \u00e1 l\u00edkamlegar hvatningara\u00f0ger\u00f0ir sem ofbeldi og skildu ekki nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 kn\u00fdja fram n\u00f3gu mikla framlei\u00f0ni til a\u00f0 Magni g\u00e6ti eignast n\u00fdjan jeppa og M\u00e1lmfr\u00ed\u00f0ur fleiri lo\u00f0feldi. Svona voru \u00feeir heimskir. Og latir. Auk \u00feess voru sumir \u00feeirra kynvillingar, lengi getur vont versna\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feessum atvinnulausa skr\u00edl var fari\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0ast a\u00f0ger\u00f0aleysi\u00f0, flykktust \u00feeir til Af\u00fev\u00edbaraborgar og m\u00f3tm\u00e6ltu hinum sanngj\u00f6rnu og skynsamlegu l\u00f6gum um gagnkv\u00e6ma framf\u00e6rsluskyldu hj\u00f3na. \u00dev\u00ed nenntu \u00feeir \u00fe\u00f3tt \u00feeir nenntu ekki a\u00f0 vinna. \u00deeir m\u00f3\u00f0gu\u00f0u r\u00edkisstj\u00f3rnina me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kalla l\u00f6gin &#8222;si\u00f0laust sam\u00feykki stj\u00f3rnvalda \u00e1 heimilisofbeldi&#8220; og sumir \u00feeirra gengu svo langt a\u00f0 krefjast \u00feess a\u00f0 &#8222;hvetjandi a\u00f0ger\u00f0ir til framlei\u00f0sluaukningar&#8220;, eins og \u00fea\u00f0 var or\u00f0a\u00f0 \u00ed l\u00f6gunum, yr\u00f0u einfaldlega banna\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00dear sem Af\u00fev\u00edbaraborg var l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki var hassreykjandi lopapeysuhippum a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u heimilt a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la. R\u00edkisstj\u00f3rnin haf\u00f0i fullan skilning \u00e1 \u00fev\u00ed og \u00fatvega\u00f0i \u00feeim m.a.s. m\u00f3tm\u00e6lasv\u00e6\u00f0i, langt fr\u00e1 mannabygg\u00f0um, setti \u00fear upp ruslag\u00e1ma undir m\u00f3tm\u00e6laspj\u00f6ld og veitti \u00feeim styrk til a\u00f0 kaupa g\u00edtar. Svona var n\u00fa l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i\u00f0 mikilsmeti\u00f0 \u00ed Af\u00fev\u00edbaraborg.<\/p>\n<p>Eeen, lopapeysul\u00fd\u00f0urinn var b\u00e6\u00f0i \u00fatlenskur og \u00f3raka\u00f0ur og kunni ekkert \u00feakkl\u00e6ti. \u00deegar \u00feessir skr\u00e6lingjar voru b\u00fanir a\u00f0 sitja \u00ed m\u00f6rg \u00e1r uppi \u00e1 h\u00e1lendinu og syngja \u201cgiv p\u00eds a tsjens\u201d f\u00f3r \u00fe\u00e1 a\u00f0 gruna a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i ekki s\u00e9rlega mikil \u00e1hrif. \u00deeim fannst ekki n\u00f3g a\u00f0 hafa r\u00e9tt til a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la, \u00feeir vildu l\u00edka a\u00f0 yr\u00f0i hlusta\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1. Svona fara n\u00fa eiturlyf me\u00f0 ungvi\u00f0i\u00f0. \u00deeir ruddust \u00feessvegna inn \u00ed Af\u00fev\u00edbaraborg me\u00f0 h\u00e1va\u00f0a og \u00f6\u00f0rum hry\u00f0juverkum og kr\u00f6f\u00f0ust \u00feess a\u00f0 l\u00f6gunum yr\u00f0i breytt.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 undarlega var a\u00f0 nokkir af g\u00f3\u00f0borgurum Af\u00fev\u00edbaraborgar l\u00fdstu sig samm\u00e1la lopapeysul\u00fd\u00f0num. Til voru \u00feeir sem h\u00f6f\u00f0u verulegar \u00e1hyggjur af f\u00f3lki eins og K\u00e1ra og \u00c1rd\u00edsi og s\u00f6g\u00f0u a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri bara t\u00edmaspursm\u00e1l hven\u00e6r einhver yr\u00f0i fyrir \u00f3afturkr\u00e6fum ska\u00f0a. Sennilega hafa \u00feeir l\u00edka veri\u00f0 \u00e1 kafi \u00ed eiturlyfjum og haldnir lopapeysufetissi, en \u00fear sem \u00feeim t\u00f3kst a\u00f0 halda \u00feessu \u00f3e\u00f0li s\u00ednu leyndu, h\u00f6f\u00f0u or\u00f0 \u00feeirra \u00e1hrif. Fleiri og fleiri t\u00f3ku undir \u00fea\u00f0 vi\u00f0horf a\u00f0 \u00fe\u00f3tt K\u00e1ri v\u00e6ri letihaugur og aumingi, m\u00e6tti samt ekki stinga \u00far honum augun. Hann \u00e6tti nefnilega b\u00f6rn sem hann \u00feyrfti a\u00f0 sj\u00e1 fyrir og \u00fea\u00f0 g\u00e6ti hann ekki sem \u00f6ryrki.<\/p>\n<p>\u00c1 endanum voru l\u00f6gin endursko\u00f0u\u00f0. Svona geta n\u00fa hry\u00f0juverk sveigt og buga\u00f0 r\u00e9tt kj\u00f6rin stj\u00f3rnv\u00f6ld. \u00cd l\u00f6gum um gagnkv\u00e6ma framf\u00e6rsluskyldu var teki\u00f0 fram a\u00f0 ekki m\u00e6tti beita maka sinn &#8222;heilsuspillandi \u00fevingunara\u00f0ger\u00f0um&#8220;, nema bera \u00fea\u00f0 fyrst undir heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0 Af\u00fev\u00edbaraborgar.<\/p>\n<p>N\u00fa g\u00e6ti ma\u00f0ur haldi\u00f0 a\u00f0 \u00fear me\u00f0 v\u00e6ri m\u00e1li\u00f0 afgreitt og allir s\u00e1ttir. En \u00fea\u00f0 var n\u00fa ekki svo. \u00cd heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0i Af\u00fev\u00edbaraborgar, \u00e1ttu nefnilega s\u00e6ti nokkrar gamlar \u00feurrkuntur sem voru tilb\u00fanar til a\u00f0 n\u00ed\u00f0ast \u00e1 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0um r\u00e9tti f\u00f3lks til a\u00f0 aga maka sinn til meiri framlei\u00f0ni. \u00deurrkunturnar \u00farskur\u00f0u\u00f0u \u00feegar \u00ed sta\u00f0 a\u00f0 ekki m\u00e6tti kaff\u00e6ra f\u00f3lk \u00ed vatni e\u00f0a reka beitta hluti \u00ed l\u00edff\u00e6ri \u00feess. \u00de\u00e1 ur\u00f0u hipparnir gla\u00f0ir. Og \u00c1rd\u00eds. L\u00edka K\u00e1ri og nokkrir a\u00f0rir vitleysingar sem voru ekki \u00ed sambandi vi\u00f0 raunveruleikann.<\/p>\n<p>Stuttu s\u00ed\u00f0ar var \u00c1rd\u00edsi drekkt og auga\u00f0 stungi\u00f0 \u00far K\u00e1ra. \u00dei\u00f0 spyrji\u00f0 l\u00edklega hvernig \u00fea\u00f0 gat gerst eftir a\u00f0 l\u00f6gunum var breytt. \u00dea\u00f0 er n\u00fa reyndar ekki eins dularfullt og \u00fea\u00f0 hlj\u00f3mar. M\u00e1lmfr\u00ed\u00f0ur og Magni h\u00f6f\u00f0u nefnilega b\u00e6\u00f0i skila\u00f0 inn greinarger\u00f0 \u00c1\u00d0UR en l\u00f6gunum var breytt. \u00cd \u00feeim sk\u00fdrslum kom fram a\u00f0 \u00fear sem makar \u00feeirra hef\u00f0u gj\u00f6rsamlega brug\u00f0ist vonum \u00feeirra um fleiri fjallajeppa og lo\u00f0feldi, hef\u00f0u \u00feau hvort um sig \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 beita augnstungu og kaff\u00e6ringu, \u00ed von um a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef\u00f0i hvetjandi \u00e1hrif \u00e1 framlei\u00f0ni \u00feeirra. Eins og gefur a\u00f0 skilja n\u00e1 n\u00fdsett l\u00f6g ekki til \u00feess sem \u00feegar hefur veri\u00f0 \u00e1kve\u00f0i\u00f0, svo \u00feau voru \u00ed fullum r\u00e9tti.<\/p>\n<p>Enn m\u00f3tm\u00e6lti lopapeysuli\u00f0i\u00f0. \u00cd \u00feetta sinn f\u00f3ru \u00feessir \u00f3r\u00f6ku\u00f0u atvinnuleysingjar inn \u00e1 einkal\u00f3\u00f0 Magna og skr\u00fafu\u00f0u fyrir vatnslagnir. \u00de\u00e1 kom l\u00f6ggan og fjarl\u00e6g\u00f0i lopag\u00f6ndlana sem voru me\u00f0 fullkomlega \u00f3l\u00f6glegum skr\u00edlsh\u00e6tti a\u00f0 reyna a\u00f0 stoppa Magna \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 drekkja \u00c1rd\u00edsi. \u00dea\u00f0 var a\u00f0 v\u00edsu or\u00f0i\u00f0 \u00f3l\u00f6glegt <strong>n\u00fana<\/strong> en hann Magni haf\u00f0i tilkynnt \u00feessa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un me\u00f0 fyrirvara og \u00fe.a.l. var \u00fea\u00f0 gott, r\u00e9tt, si\u00f0samlegt og \u00fe\u00f3 fyrst og fremst l\u00f6glegt. Auk \u00feess g\u00e6tu kaff\u00e6ringar ekki flokkast sem &#8222;heilsuspillandi a\u00f0ger\u00f0ir&#8220;, sag\u00f0i hann. \u00dea\u00f0 v\u00e6ru engir s\u00fdklar \u00ed vatni svo ekki var hann a\u00f0 spilla heilsu hennar og \u00fe.a.l. \u00fat \u00ed h\u00f6tt a\u00f0 gefa heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0i vald til a\u00f0 stoppa hann \u00ed \u00feessari nau\u00f0synlegu a\u00f0ger\u00f0. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri ekki einu sinni v\u00edst a\u00f0 \u00c1rd\u00eds myndi drukkna.<\/p>\n<p>R\u00edkisstj\u00f3rn Af\u00fev\u00edbaraborgar l\u00fdsti yfir skilningi \u00e1 \u00feessu sj\u00f3narmi\u00f0i. H\u00fan gaf Magna formlegt leyfi til a\u00f0 hefjast handa vi\u00f0 a\u00f0 kaff\u00e6ra konu s\u00edna, \u00e1 me\u00f0an v\u00e6ri veri\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta hugmyndina um hva\u00f0 teldist &#8222;heilsuspillandi&#8220; og hva\u00f0 ekki. \u00deegar allt kom til alls langa\u00f0i Magna \u00ed n\u00fdjan jeppa og til \u00feess a\u00f0 svo m\u00e6tti ver\u00f0a \u00feurfti \u00c1rd\u00eds a\u00f0 skila heimilinu meiri hagna\u00f0i. &#8222;Framlei\u00f0sluhvetjandi a\u00f0ger\u00f0ir&#8220; voru eina lei\u00f0in til a\u00f0 auka tengsl hennar vi\u00f0 raunveruleikann og r\u00edkisstj\u00f3rn Af\u00fev\u00edbaraborgar haf\u00f0i fullan skilning \u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einu sinni var l\u00edti\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki sem h\u00e9t Af\u00fev\u00edbaraborg. \u00cd Af\u00fev\u00edbaraborg giltu l\u00f6g og reglur eins og \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkjum. Afar sanngj\u00f6rn l\u00f6g og fullkomin. Ein greinin \u00ed l\u00f6gum um r\u00e9tt manna til atvinnu, kva\u00f0 t.d. \u00e1 um a\u00f0 menn m\u00e6ttu &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-620","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allt-efni","category-sogur"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.5 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Saga handa Anonymusi - Birta<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Saga handa Anonymusi - Birta\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Einu sinni var l\u00edti\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki sem h\u00e9t Af\u00fev\u00edbaraborg. \u00cd Af\u00fev\u00edbaraborg giltu l\u00f6g og reglur eins og \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkjum. Afar sanngj\u00f6rn l\u00f6g og fullkomin. Ein greinin \u00ed l\u00f6gum um r\u00e9tt manna til atvinnu, kva\u00f0 t.d. \u00e1 um a\u00f0 menn m\u00e6ttu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Birta\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2006-08-20T17:59:03+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-08-25T11:35:40+00:00\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"7 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"Saga handa Anonymusi\",\"datePublished\":\"2006-08-20T17:59:03+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-25T11:35:40+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/\"},\"wordCount\":1400,\"articleSection\":[\"Allt efni\",\"S\u00f6gur\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/\",\"name\":\"Saga handa Anonymusi - Birta\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\"},\"datePublished\":\"2006-08-20T17:59:03+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-25T11:35:40+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-anonymusi\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Saga handa Anonymusi\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\",\"name\":\"Birta\",\"description\":\"Evukv\u00e6\u00f0i\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Saga handa Anonymusi - Birta","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Saga handa Anonymusi - Birta","og_description":"Einu sinni var l\u00edti\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki sem h\u00e9t Af\u00fev\u00edbaraborg. \u00cd Af\u00fev\u00edbaraborg giltu l\u00f6g og reglur eins og \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edkjum. Afar sanngj\u00f6rn l\u00f6g og fullkomin. Ein greinin \u00ed l\u00f6gum um r\u00e9tt manna til atvinnu, kva\u00f0 t.d. \u00e1 um a\u00f0 menn m\u00e6ttu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/","og_site_name":"Birta","article_published_time":"2006-08-20T17:59:03+00:00","article_modified_time":"2017-08-25T11:35:40+00:00","author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"7 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"Saga handa Anonymusi","datePublished":"2006-08-20T17:59:03+00:00","dateModified":"2017-08-25T11:35:40+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/"},"wordCount":1400,"articleSection":["Allt efni","S\u00f6gur"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/","name":"Saga handa Anonymusi - Birta","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website"},"datePublished":"2006-08-20T17:59:03+00:00","dateModified":"2017-08-25T11:35:40+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-anonymusi\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Saga handa Anonymusi"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/","name":"Birta","description":"Evukv\u00e6\u00f0i","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/620","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=620"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/620\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":621,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/620\/revisions\/621"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=620"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=620"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=620"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}