{"id":324,"date":"2011-02-17T14:15:53","date_gmt":"2011-02-17T14:15:53","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/?p=324"},"modified":"2020-04-25T06:57:50","modified_gmt":"2020-04-25T06:57:50","slug":"stulkan-sem-spann","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/","title":{"rendered":"St\u00falkan sem spann"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-full wp-image-805\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg\" alt=\"\" width=\"736\" height=\"947\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg 736w, https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and-233x300.jpg 233w\" sizes=\"auto, (max-width: 736px) 100vw, 736px\" \/><\/a>-\u00de\u00fa m\u00e1tt \u00fea\u00f0 ekki, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn.<br \/>\n-Nei, \u00fea\u00f0 m\u00e1ttu ekki, \u00e1t drottningin upp eftir honum.<br \/>\n-\u00dea\u00f0 er h\u00e6ttulegt fyrir ungar prinsessur, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn<br \/>\n-J\u00e1, \u00fea\u00f0 er nefnilega st\u00f3rh\u00e6ttulegt, sag\u00f0i drottningin.<br \/>\nEn m\u00e6rin k\u00e6r\u00f0i sig koll\u00f3tta og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 samt.<!--more--><\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i veri\u00f0 \u00fe\u00e6g, l\u00edtil telpa en n\u00fa var h\u00fan or\u00f0in b\u00fdsna st\u00f3r og var b\u00fain a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sumt sem foreldarar hennar t\u00f6ldu h\u00e6ttulegt ungum st\u00falkum, var \u00ed raun ekkert s\u00e9rlega l\u00edklegt til a\u00f0 ska\u00f0a hana. H\u00fan haf\u00f0i ekki enn\u00fe\u00e1 reki\u00f0 fingurinn \u00ed heilann vi\u00f0 a\u00f0 bora \u00ed nefi\u00f0 og \u00fe\u00f3 ger\u00f0i h\u00fan \u00fea\u00f0 oft, h\u00fan l\u00e9t bara ekki a\u00f0ra sj\u00e1 \u00fea\u00f0. Fingur hennar h\u00f6f\u00f0u ekki stir\u00f0na\u00f0 og or\u00f0i\u00f0 l\u00edkastir eldsp\u00fdtum \u00fe\u00f3tt h\u00fan vanr\u00e6kti p\u00edan\u00f3\u00e6fingarnar og hef\u00f0i ekki sauma\u00f0 eitt spor \u00ed heila 9 daga \u00e1 me\u00f0an drottningin var \u00e1 fer\u00f0alagi til a\u00f0 b\u00e6ta \u00edmynd lands og \u00fej\u00f3\u00f0ar \u00ed n\u00e1grannar\u00edkjunum. Sj\u00f3n hennar haf\u00f0i heldur ekki hraka\u00f0 \u00fe\u00f3tt h\u00fan sofna\u00f0i ekki me\u00f0 hendurnar ofan \u00e1 s\u00e6nginni og h\u00fan haf\u00f0i ekki fengi\u00f0 garnafl\u00e6kju af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feiggja trj\u00e1kvo\u00f0u af hir\u00f0meyjunum. H\u00fan haf\u00f0i m.a.s. drukki\u00f0 sig \u00f6lva\u00f0a af kirsiberjav\u00edni me\u00f0 hinum hj\u00e1r\u00e6nulega syni ekilsins, og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i ekki or\u00f0i\u00f0 til \u00feess a\u00f0 h\u00fan fengi svartagallseitrun e\u00f0a \u00e6ldi innyflum og haf\u00f0i h\u00fan \u00fe\u00f3 \u00e6lt heilan helling, a\u00f0allega gulu galli en ekki einum dropa af sv\u00f6rtu. Reyndar h\u00f6f\u00f0u foreldrar hennar ekki komist a\u00f0 \u00fev\u00ed, \u00fev\u00ed ekillinn sem \u00f3tta\u00f0ist a\u00f0 missa vinnuna, haf\u00f0i bori\u00f0 hana upp til dyngju sinnar og elskulega, gamla f\u00f3stran hennar, sem \u00fevo\u00f0i \u00e6luna \u00fat f\u00f6tum hennar, sag\u00f0i konungnum a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri me\u00f0 magapest. Svo snupra\u00f0i h\u00fan st\u00falkuna og h\u00f3ta\u00f0i henni skammarkr\u00f3knum og vendinum ef h\u00fan fyndi hana \u00ed sama \u00e1standi aftur. Sonur ekilsins haf\u00f0i reyndar for\u00f0ast hana s\u00ed\u00f0an en alvarlegri h\u00f6f\u00f0u aflei\u00f0ingarnar af \u00feessu fyllir\u00edi ekki or\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p><em>\u00cd dag fer \u00e9g upp \u00ed turninn\u00a0<\/em>hugsa\u00f0i st\u00falkan, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 konungurinn v\u00e6ri margb\u00fainn a\u00f0 banna \u00fea\u00f0 og ekki dr\u00f3 bergm\u00e1l drottningarinnar \u00far henni heldur. \u00deetta var fyrsti dagur sumars og \u00fea\u00f0 var k\u00e1tt \u00ed h\u00f6llinni, \u00fev\u00ed drottningin taldi a\u00f0 \u00e1n\u00e6gt hir\u00f0f\u00f3lk s\u00fdndi henni meiri hollustu. Hir\u00f0in var \u00fev\u00ed a\u00f0 skemmta s\u00e9r \u00ed annarri \u00e1lmu a\u00f0 undanskildum tveimur kerlingum, r\u00e1\u00f0skonunni og f\u00f3stru prinsessunnar sem b\u00e1\u00f0ar h\u00f6f\u00f0ust vi\u00f0 \u00ed \u00e1lmu konungsfj\u00f6lskyldunnar. K\u00f3ngurinn var \u00e1 r\u00edkisr\u00e1\u00f0sfundi, \u00fev\u00ed \u00f3vina\u00fej\u00f3\u00f0ir l\u00e1ta tyllidaga ekkert trufla herna\u00f0ar\u00e1form s\u00edn. Drottningin \u00feurfti a\u00f0 l\u00e1ta sj\u00e1 sig \u00e1 einhverri g\u00f3\u00f0ger\u00f0asamkomu, enda miklu \u00f3d\u00fdrara fyrir konungsr\u00edki\u00f0 a\u00f0 stinga nokkrum kr\u00f3num \u00ed \u00f6lmususj\u00f3\u00f0 kirkjunnar en a\u00f0 halda eymingjum uppi. Kerlingarnar tv\u00e6r yr\u00f0u ekki vandam\u00e1l. F\u00f3stra hennar afg\u00f6mul var or\u00f0in svo miki\u00f0 hr\u00f3 a\u00f0 h\u00fan svaf st\u00f3ran hluta eftirmi\u00f0dagsins og r\u00e1\u00f0skonan var utan vi\u00f0 sig og skildi lyklahringinn i\u00f0ulega eftir \u00e1 gl\u00e1mbekk. H\u00fan gat au\u00f0veldlega sloppi\u00f0 fram hj\u00e1 \u00feessum tveimur kerlingum en hugsanlega fengi h\u00fan aldrei sl\u00edkt t\u00e6kif\u00e6ri framar.<\/p>\n<p>\u00c1 me\u00f0an f\u00f3stra hennar blunda\u00f0i, narra\u00f0i h\u00fan r\u00e1\u00f0skonuna til a\u00f0 setja upp n\u00fdja svuntu &#8222;\u00ed tilefni sumarsins&#8220; og t\u00f3kst \u00feannig a\u00f0 f\u00e1 hana til a\u00f0 leggja lyklahringinn fr\u00e1 s\u00e9r. H\u00fan \u00feekkti \u00feann r\u00e9tta og n\u00e1\u00f0i honum af hringnum \u00e1 me\u00f0an r\u00e1\u00f0skonan d\u00e1\u00f0ist a\u00f0 n\u00fdju svuntunni. H\u00fan haf\u00f0i eiginlega \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 geyma n\u00fdju svuntuna fram a\u00f0 J\u00f3nsmessu en eins og telpan sag\u00f0i var engan veginn h\u00e6gt a\u00f0 \u00fatiloka a\u00f0 h\u00fan yr\u00f0i \u00fe\u00e1 dau\u00f0 e\u00f0a str\u00ed\u00f0 skolli\u00f0 \u00e1 og l\u00edti\u00f0 um h\u00e1t\u00ed\u00f0ah\u00f6ld, svo h\u00fan l\u00e9t til lei\u00f0ast. St\u00falkan h\u00e6ldi svuntunni \u00e1 hvert reipi en sag\u00f0ist svo \u00e6tla a\u00f0 ganga til dyngju sinnar og sinna hannyr\u00f0um. \u00dea\u00f0 taldi r\u00e1\u00f0skonan \u00feroskamerki en h\u00fan haf\u00f0i allt eins reikna\u00f0 me\u00f0 a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 reka hana til \u00feess, enda varla h\u00e6gt a\u00f0 leggja \u00fea\u00f0 \u00e1 f\u00f3struna lengur a\u00f0 halda \u00feessum letihaug a\u00f0 verki.<\/p>\n<p>En d\u00f3ttir konungsins settist ekki vi\u00f0 sauma. \u00deess \u00ed sta\u00f0 l\u00e6ddist h\u00fan hringstigann, upp \u00ed h\u00e6sta turn hallarinnar, sem af \u00e1st\u00e6\u00f0um sem h\u00fan haf\u00f0i aldrei fengi\u00f0 sk\u00fdringu \u00e1, var henni forbo\u00f0inn me\u00f0 \u00f6llu. H\u00fan haf\u00f0i be\u00f0i\u00f0 \u00feessa dags me\u00f0 \u00f3\u00fereyju og l\u00edklega b\u00faist vi\u00f0 a\u00f0 finna dularfullt leyndarm\u00e1l. Hugsanlega hryllilegt l\u00edka. En \u00fea\u00f0 var ekkert \u00e1hugavert \u00ed \u00feessum turnherbergjum, a\u00f0allega g\u00f6mul h\u00fasg\u00f6gn og anna\u00f0 drasl, \u00feaki\u00f0 k\u00f3ngul\u00f3arvef og ryki. H\u00fan var vonsvikin. \u00dea\u00f0 var ekki fyrr en h\u00fan kom upp \u00e1 efsta stigapallinn sem h\u00fan kom loks a\u00f0 l\u00e6stri hur\u00f0 og ekki n\u00f3g me\u00f0 a\u00f0 hur\u00f0in v\u00e6ri l\u00e6st, heldur barst taktfast hlj\u00f3\u00f0 a\u00f0 innan. Hjarta hennar t\u00f3k aukaslag og h\u00fan beyg\u00f0i sig ni\u00f0ur a\u00f0 skr\u00e1argatinu og g\u00e6g\u00f0ist inn.<\/p>\n<p>H\u00fan s\u00e1 hj\u00f3l sn\u00faast.\u00a0<em>L\u00edklega rokkur\u00a0<\/em>hugsa\u00f0i h\u00fan en \u00feessh\u00e1ttar t\u00f3l haf\u00f0i h\u00fan a\u00f0eins s\u00e9\u00f0 \u00e1 myndum. H\u00fan vissi a\u00f0 rokkar voru st\u00f3rh\u00e6ttulegir. Ma\u00f0ur gat stungi\u00f0 sig \u00e1 sn\u00e6ldunni og fengi\u00f0 bl\u00f3\u00f0eitrun. \u00dea\u00f0 gat leitt til dau\u00f0a, e\u00f0a allavega langvarandi d\u00e1svefns. J\u00e1, spunarokkar voru sannarlega vi\u00f0sj\u00e1rver\u00f0ir fyrir ungar prinsessur en h\u00fan kunni vel vi\u00f0 hi\u00f0 vi\u00f0sj\u00e1rver\u00f0a, svo h\u00fan stakk lyklinum \u00ed skr\u00e1na og h\u00e9lt ni\u00f0r\u00ed s\u00e9r andanum \u00e1 me\u00f0an h\u00fan sneri honum.<\/p>\n<p>Hur\u00f0in hr\u00f6kk upp me\u00f0 l\u00e1gum smelli. Fyrir innan sat kerling og steig rokk. Ullarkambar l\u00e1gu \u00ed k\u00f6rfu vi\u00f0 hli\u00f0 hennar og upp vi\u00f0 vegginn gegnt glugganum st\u00f3\u00f0 vefst\u00f3ll. Gamla konan leit ekki upp en bau\u00f0 samt g\u00f3\u00f0an daginn, r\u00e9tt eins og d\u00f3ttir konungshj\u00f3nanna v\u00e6ri daglegur gestur \u00ed kytru hennar.<\/p>\n<p>St\u00falkan horf\u00f0i \u00e1 hana um stund og h\u00fan var heillu\u00f0. Henni \u00fe\u00f3tti eitthva\u00f0 svo hr\u00edfandi vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 hj\u00f3li\u00f0 sn\u00faast og hv\u00edta ullina ver\u00f0a a\u00f0 gr\u00f6nnum \u00fer\u00e6\u00f0i. Henni fannst sn\u00fa\u00f0urinn og sn\u00e6ldan minna \u00e1 dansandi br\u00fa\u00f0hj\u00f3n og s\u00f3lin skein inn um gluggann og ba\u00f0a\u00f0i \u00feau geislum s\u00ednum.<\/p>\n<p>-Er \u00feetta erfitt? spur\u00f0i st\u00falkan loks.<br \/>\n-Nei, ekki beint erfitt. \u00deetta getur or\u00f0i\u00f0 \u00fereytandi og \u00fea\u00f0 er svekkjandi ef manni ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00e1 toga of fast og sl\u00edta \u00fer\u00e1\u00f0inn. \u00dea\u00f0 tefur mann nefnilega. En erfitt, nei, \u00fea\u00f0 get \u00e9g ekki sagt.<br \/>\n-En \u00feetta er h\u00e6ttulegt, er \u00fea\u00f0 ekki?<br \/>\n-Nei, svara\u00f0i s\u00fa gamla og hl\u00f3 vi\u00f0. Ekki nema \u00fe\u00fa teljir \u00fea\u00f0 \u00f3gurlega \u00e1h\u00e6ttu a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a sj\u00e1lf hvernig kl\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed kj\u00f3lana \u00fe\u00edna ver\u00f0ur \u00fatlits og vi\u00f0komu.<br \/>\n-Getur ma\u00f0ur r\u00e1\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed? spur\u00f0i st\u00falkan forvi\u00f0a.<br \/>\n-A\u00f0 \u00fev\u00ed marki sem ma\u00f0ur hefur r\u00e9tt hr\u00e1efni og r\u00e9tt verkf\u00e6ri, j\u00e1. \u00dea\u00f0 eiga ekki allar st\u00falkur kost \u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00ednum a\u00f0st\u00e6\u00f0um en ef \u00fe\u00fa ert me\u00f0 g\u00f3\u00f0a ull, er \u00feykkt og \u00e1fer\u00f0 kl\u00e6\u00f0isins undir \u00fev\u00ed komin hvernig h\u00fan er unnin. Hvernig ullin er kembd, hvernig rokkurinn er stiginn og vefurinn sleginn. Og svo getur\u00f0u lita\u00f0 kl\u00e6\u00f0i\u00f0 me\u00f0 \u00feeim jurtum sem \u00fe\u00e9r sj\u00e1lfri l\u00edst best.<\/p>\n<p>Enda \u00fe\u00f3tt prinsessan \u00e6tti fleiri og fegurri kj\u00f3la en nokkur \u00f6nnur st\u00falka \u00ed r\u00edkinu, \u00fe\u00f3tti henni \u00fea\u00f0 svo heillandi hugmynd a\u00f0 geta stj\u00f3rna\u00f0 \u00fev\u00ed sj\u00e1lf hvernig kl\u00e6\u00f0i h\u00fan fengi \u00ed kj\u00f3linn sinn, a\u00f0 h\u00fan ba\u00f0 um a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 reyna. H\u00fan settist vi\u00f0 rokkinn og nei \u00fea\u00f0 var satt, \u00fea\u00f0 var ekki rassgat erfitt og h\u00fan stakk sig ekkert \u00e1 sn\u00e6ldunni.<\/p>\n<p>H\u00fan \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 listinni a\u00f0 spinna en til a\u00f0 f\u00e1 fri\u00f0 til \u00feess, \u00feurfti h\u00fan a\u00f0 for\u00f0ast v\u00f6kul augu foreldra sinna og hir\u00f0arinnar og \u00fea\u00f0 er n\u00fa ekki alltaf k\u00e1tt \u00ed h\u00f6llinni. Lausina \u00e1 \u00fev\u00ed vandam\u00e1li f\u00e9kk h\u00fan einnig hj\u00e1 spunakonunni. H\u00fan sag\u00f0i henni a\u00f0 \u00feyrnir\u00f3sager\u00f0i\u00f0 sem umlyki hallargar\u00f0inn v\u00e6ri til margra hluta nytsamlegt. \u00deyrnarnir innih\u00e9ldu d\u00e1l\u00edti\u00f0 af slj\u00f3vgandi efnum og me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00f3\u00f0a af \u00feeim sey\u00f0i, m\u00e6tti au\u00f0veldlega sv\u00e6fa alla hir\u00f0ina. Og prinsessan klippti r\u00f3sir til a\u00f0 skreyta dyngju s\u00edna, \u00fev\u00ed prinsessur mega gjarnan t\u00edna bl\u00f3m, en \u00feyrnana geymdi h\u00fan og lauma\u00f0i \u00feeim \u00fat \u00ed s\u00fapuna.<\/p>\n<p>Hir\u00f0in var\u00f0 slj\u00f3 og l\u00f6t. Var\u00f0menn sofnu\u00f0u \u00e1 vaktinni, p\u00edan\u00f3kennarinn h\u00e6tti a\u00f0 halda henni a\u00f0 \u00e6fingum og f\u00f3stran hennar gamla var\u00f0 h\u00e1lf r\u00e6nulaus, jafnvel \u00feann t\u00edma sem h\u00fan \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0 vakti. Drottningin t\u00f3k upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 sofa til h\u00e1degis og k\u00f3ngurinn h\u00e9kk t\u00edmunum saman yfir sk\u00e1k og haf\u00f0i engar \u00e1hyggjur af d\u00f3ttur sinni \u00ed allri \u00feessari fri\u00f0semd sem r\u00edkti \u00ed h\u00f6llinni. En \u00e1 me\u00f0an hir\u00f0in svaf, vandi st\u00falkan komur s\u00ednar upp \u00ed turninn. H\u00fan n\u00e1\u00f0i flj\u00f3tt t\u00f6kum \u00e1 spunanum og \u00e1 \u00f6rf\u00e1um vikum l\u00e6r\u00f0i h\u00fan einnig a\u00f0 kemba, vefa og sj\u00f3\u00f0a l\u00f6g af jurtum til a\u00f0 lita kl\u00e6\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>Fyrsti kl\u00e6\u00f0isstranginn sem h\u00fan lauk vi\u00f0, var langt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera fullkominn. \u00dea\u00f0 voru \u00e1 honum hn\u00f6krar og liturinn var \u00f3jafn. Reyndar haf\u00f0i saumakonan aldrei s\u00e9\u00f0 lj\u00f3tara kl\u00e6\u00f0i nota\u00f0 \u00ed konunglegan kj\u00f3l og spur\u00f0i \u00ed hva\u00f0a f\u00e1t\u00e6krahverfi h\u00fan hef\u00f0i grafi\u00f0 \u00feennan hrylling upp en prinsessunni var sama. H\u00fan haf\u00f0i sj\u00e1lf spunni\u00f0 ullina og ofi\u00f0 kl\u00e6\u00f0i\u00f0 og vissi n\u00fa or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 eina h\u00e6ttan sem \u00ed \u00fev\u00ed f\u00f3lst, var m\u00f6guleikinn \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 einhver teldi \u00fatkomuna ekki h\u00e6fa prinsessu.<\/p>\n<p>H\u00fan kl\u00e6ddist kj\u00f3l \u00far s\u00ednum eigin vefna\u00f0i \u00feegar prinsinn kom til a\u00f0 bi\u00f0ja um h\u00f6nd hennar. \u00dear sem gar\u00f0yrkjuma\u00f0urinn haf\u00f0i sofi\u00f0 lungann \u00far sumrinu var \u00feyrniger\u00f0i\u00f0 \u00far s\u00e9r vaxi\u00f0. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i breitt \u00far s\u00e9r og vafi\u00f0 sig utan um \u00f6ll hli\u00f0 inn \u00ed hallargar\u00f0inn, svo eina lei\u00f0in fyrir prinsinn til a\u00f0 komast a\u00f0 h\u00f6llinni, var a\u00f0 h\u00f6ggva s\u00e9r lei\u00f0 inn. Hann br\u00e1 sver\u00f0i s\u00ednu \u00e1 loft og hj\u00f3 r\u00f3sager\u00f0i\u00f0 \u00e1 b\u00e1\u00f0a b\u00f3ga svo rau\u00f0 bl\u00f3min f\u00e9llu til jar\u00f0ar. \u00dar fjarl\u00e6g\u00f0 var \u00feetta tilkomumikil sj\u00f3n, l\u00edkast \u00fev\u00ed sem hann st\u00e6\u00f0i \u00ed orystu \u00e1 bl\u00f3\u00f0i drifinni j\u00f6r\u00f0.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum taldi hann n\u00f3g h\u00f6ggvi\u00f0. Hann settist \u00e1 bak hesti s\u00ednum og rei\u00f0 inn um opi\u00f0 \u00e1 bl\u00f3\u00f0rau\u00f0u \u00feyrniger\u00f0inu. Hann rispa\u00f0i sig \u00e1 \u00feyrnum og reif kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og einn \u00feyrnir stakkst \u00ed v\u00f6rina \u00e1 honum. Hann skeytti \u00fev\u00ed engu \u00fev\u00ed hann haf\u00f0i n\u00e1\u00f0 markmi\u00f0i s\u00ednu. J\u00e1, \u00fearna fyrir innan \u00feyrniger\u00f0ir\u00f0 st\u00f3\u00f0 h\u00f6llin og \u00fear l\u00e1 prinsessan \u00ed dyngju sinni og bei\u00f0 hans, e\u00f0a svo sag\u00f0i sagan af hinni sofandi h\u00f6ll.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var enginn \u00ed h\u00f6llinni me\u00f0 n\u00e6gilegri r\u00e6nu til a\u00f0 veita honum \u00fe\u00e6r m\u00f3tt\u00f6kur sem hann \u00e1tti a\u00f0 venjast svo hann gekk \u00f3bo\u00f0inn inn og leita\u00f0i a\u00f0 dyngju k\u00f3ngsd\u00f3tturinnar. Hann fann hana liggjandi \u00ed b\u00e6linu um mi\u00f0jan dag, en h\u00fan svaf ekki, heldur l\u00e1 h\u00fan \u00fear fullkl\u00e6dd, og \u00ed \u00feetta sinn allavega me\u00f0 hendurnar ofan \u00e1 s\u00e6nginni. \u00der\u00e1tt fyrir fegur\u00f0 st\u00falkunnar br\u00e1 prinsinum nokku\u00f0 \u00ed br\u00fan \u00feegar hann s\u00e1 \u00e1 henni \u00fatganginn. H\u00fan var \u00ed kj\u00f3l \u00far mislitu kl\u00e6\u00f0i og hn\u00f6kru\u00f0u og ekki a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 h\u00fan skamma\u00f0ist s\u00edn hi\u00f0 minnsta. Hann gekk samt til hennar, tyllti s\u00e9r \u00e1 r\u00famstokkinn og \u00fer\u00fdsti kossi \u00e1 h\u00f6nd hennar, eins og prinsum er tamt. \u00de\u00e1 reis h\u00fan upp og ba\u00f0 hann a\u00f0 sl\u00ed\u00f0ra sver\u00f0i\u00f0. Lag\u00f0i svo varir s\u00ednar a\u00f0 v\u00f6rum hans. Hann fann fyrir d\u00e1litlum svi\u00f0a \u00ed v\u00f6rinni \u00feegar h\u00fan l\u00e6sti t\u00f6nnum s\u00ednum \u00ed enda \u00feyrnisins og beit hann \u00far bl\u00f3\u00f0r\u00edku holdinu. Hann fann s\u00e6tt brag\u00f0 af eigin bl\u00f3\u00f0i blandast ilmi st\u00falkunnar. Svo fann hann svefninn f\u00e6rast yfir sig.<\/p>\n<p>Kl\u00e6\u00f0i hins unga konungssonar voru rifin en \u00fea\u00f0 ger\u00f0i ekkert til. N\u00fa \u00feekkti hann konu sem kunni b\u00e6\u00f0i a\u00f0 spinna og b\u00edta honum sven\u00feorn \u00far v\u00f6r. Hann svaf lengi og \u00e1 me\u00f0an hann svaf f\u00f3r st\u00falkan upp \u00ed turnherbergi\u00f0. H\u00fan spann honum \u00fer\u00e1\u00f0, h\u00fan sl\u00f3 honum vef og a\u00f0 endingu safna\u00f0i h\u00fan saman r\u00f3sunum sem hann haf\u00f0i h\u00f6ggvi\u00f0 og lita\u00f0i kl\u00e6\u00f0i\u00f0 r\u00f3srautt. Og \u00fear sem h\u00fan haf\u00f0i \u00feegar fengi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 \u00e6fa sig, var\u00f0 \u00fea\u00f0 hi\u00f0 fegursta kl\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<div><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>-\u00de\u00fa m\u00e1tt \u00fea\u00f0 ekki, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn. -Nei, \u00fea\u00f0 m\u00e1ttu ekki, \u00e1t drottningin upp eftir honum. -\u00dea\u00f0 er h\u00e6ttulegt fyrir ungar prinsessur, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn -J\u00e1, \u00fea\u00f0 er nefnilega st\u00f3rh\u00e6ttulegt, sag\u00f0i drottningin. En m\u00e6rin k\u00e6r\u00f0i sig koll\u00f3tta og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 samt.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[54],"class_list":["post-324","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allt-efni","category-sogur","tag-orsogur"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.5 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>St\u00falkan sem spann - Birta<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"St\u00falkan sem spann - Birta\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"-\u00de\u00fa m\u00e1tt \u00fea\u00f0 ekki, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn. -Nei, \u00fea\u00f0 m\u00e1ttu ekki, \u00e1t drottningin upp eftir honum. -\u00dea\u00f0 er h\u00e6ttulegt fyrir ungar prinsessur, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn -J\u00e1, \u00fea\u00f0 er nefnilega st\u00f3rh\u00e6ttulegt, sag\u00f0i drottningin. En m\u00e6rin k\u00e6r\u00f0i sig koll\u00f3tta og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 samt.\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Birta\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2011-02-17T14:15:53+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2020-04-25T06:57:50+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"11 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"St\u00falkan sem spann\",\"datePublished\":\"2011-02-17T14:15:53+00:00\",\"dateModified\":\"2020-04-25T06:57:50+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/\"},\"wordCount\":2243,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2011\\\/02\\\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg\",\"keywords\":[\"\u00d6rs\u00f6gur\"],\"articleSection\":[\"Allt efni\",\"S\u00f6gur\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/\",\"name\":\"St\u00falkan sem spann - Birta\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2011\\\/02\\\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg\",\"datePublished\":\"2011-02-17T14:15:53+00:00\",\"dateModified\":\"2020-04-25T06:57:50+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/#primaryimage\",\"url\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2011\\\/02\\\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg\",\"contentUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/4\\\/2011\\\/02\\\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg\"},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/stulkan-sem-spann\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"St\u00falkan sem spann\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\",\"name\":\"Birta\",\"description\":\"Evukv\u00e6\u00f0i\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"St\u00falkan sem spann - Birta","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"St\u00falkan sem spann - Birta","og_description":"-\u00de\u00fa m\u00e1tt \u00fea\u00f0 ekki, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn. -Nei, \u00fea\u00f0 m\u00e1ttu ekki, \u00e1t drottningin upp eftir honum. -\u00dea\u00f0 er h\u00e6ttulegt fyrir ungar prinsessur, sag\u00f0i k\u00f3ngurinn -J\u00e1, \u00fea\u00f0 er nefnilega st\u00f3rh\u00e6ttulegt, sag\u00f0i drottningin. En m\u00e6rin k\u00e6r\u00f0i sig koll\u00f3tta og ger\u00f0i \u00fea\u00f0 samt.","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/","og_site_name":"Birta","article_published_time":"2011-02-17T14:15:53+00:00","article_modified_time":"2020-04-25T06:57:50+00:00","og_image":[{"url":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg","type":"","width":"","height":""}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"11 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"St\u00falkan sem spann","datePublished":"2011-02-17T14:15:53+00:00","dateModified":"2020-04-25T06:57:50+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/"},"wordCount":2243,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg","keywords":["\u00d6rs\u00f6gur"],"articleSection":["Allt efni","S\u00f6gur"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/","name":"St\u00falkan sem spann - Birta","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg","datePublished":"2011-02-17T14:15:53+00:00","dateModified":"2020-04-25T06:57:50+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/#primaryimage","url":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg","contentUrl":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-content\/uploads\/sites\/4\/2011\/02\/3ee1bd45cb9eb0473451f1388fd9d5e9-spinning-wheels-art-and.jpg"},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/stulkan-sem-spann\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"St\u00falkan sem spann"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/","name":"Birta","description":"Evukv\u00e6\u00f0i","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/324","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=324"}],"version-history":[{"count":5,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/324\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1555,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/324\/revisions\/1555"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=324"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=324"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=324"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}