{"id":1299,"date":"2007-01-21T12:55:52","date_gmt":"2007-01-21T12:55:52","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/?p=1299"},"modified":"2017-08-28T09:03:09","modified_gmt":"2017-08-28T09:03:09","slug":"saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/","title":{"rendered":"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum"},"content":{"rendered":"<p>Einu sinni var prinsessa. H\u00fan var galin. H\u00fan var me\u00f0 kj\u00f3la \u00e1 heilanum og st\u00f3r hluti dagsins f\u00f3r \u00ed a\u00f0 sko\u00f0a kj\u00f3la, m\u00e1ta kj\u00f3la, afskrifa kj\u00f3la sem henni l\u00edku\u00f0u ekki, reyna a\u00f0 \u00fer\u00f6ngva kj\u00f3lum sem h\u00fan var hrifin af en p\u00f6ssu\u00f0u henni ekki upp \u00e1 systur s\u00ednar og reyna a\u00f0 f\u00e1 saumakonu hir\u00f0arinnar til a\u00f0 breyta kj\u00f3lum \u00feannig a\u00f0 \u00feeir f\u00e9llu henni betur \u00ed ge\u00f0. Og \u00fea\u00f0 var ekki n\u00f3g me\u00f0 a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri me\u00f0 kj\u00f3la \u00e1 heilanum, h\u00fan haf\u00f0i l\u00edka svo h\u00f6rmulegan smekk og h\u00fan ger\u00f0i s\u00e9r m.a.s. grein fyrir \u00fev\u00ed sj\u00e1lf og kl\u00e6ddist \u00feessvegna sjaldan \u00fev\u00ed sem h\u00fan helst hef\u00f0i vilja\u00f0 \u00fe\u00f3tt h\u00fan g\u00e6ti au\u00f0veldlega fengi\u00f0 allt sem h\u00fan benti \u00e1.<!--more--><\/p>\n<p>Dagsdaglega kl\u00e6ddist prinsessan helst kj\u00f3lum sem henni \u00fe\u00f3ttu \u00fe\u00e6gilegir. H\u00fan \u00e1tti \u00fea\u00f0 til a\u00f0 hir\u00f0a gamla kj\u00f3la sem systur hennar e\u00f0a jafnvel hir\u00f0meyjarnar voru b\u00fanar a\u00f0 henda \u00ed rusli\u00f0, anna\u00f0hvort af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir voru gamlir og slitnir, e\u00f0a af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir voru bara alls ekkert fallegir \u00fe\u00f3tt h\u00fan me\u00f0 sinn vonda smekk s\u00e6i eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem enginn annar gat komi\u00f0 auga \u00e1. Gallinn var bara s\u00e1 a\u00f0 trosna\u00f0ar spjarir af vinnukonunum voru yfirleitt ekki gjaldgengar \u00e1 mannam\u00f3tum og \u00fe\u00f3tt h\u00fan g\u00e6ti kannski leyft s\u00e9r a\u00f0 druslast um \u00ed \u00fe\u00e6f\u00f0um b\u00f3mullarkj\u00f3l \u00ed sinni eigin dyngju, hef\u00f0i henni ekki li\u00f0i\u00f0 vel \u00ed honum vi\u00f0 h\u00e1degisver\u00f0arbor\u00f0i\u00f0. Auk \u00feess var\u00f0 k\u00f3ngurinn \u00e6fur \u00feegar hann s\u00e1 hana \u00ed sl\u00edkri m\u00fanderingu. B\u00f3mullardulur hri\u00f0meyjanna ur\u00f0u \u00fev\u00ed a\u00f0 frekar \u00f3merkilegu leyndarm\u00e1li enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan skamma\u00f0ist s\u00edn ekkert fyrir \u00fe\u00e6r sj\u00e1lf.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt prinsessan hef\u00f0i b\u00e6\u00f0i sl\u00e6man smekk og v\u00e6ri l\u00edka frekar galin, var h\u00fan ekki n\u00f3gu heimsk til a\u00f0 velja s\u00e9r \u00f3prakt\u00edska kj\u00f3la. H\u00fan var glysgj\u00f6rn og \u00fe\u00f3tti \u00e6gilega gaman a\u00f0 sko\u00f0a kj\u00f3la sem hef\u00f0u kannski veri\u00f0 vi\u00f0eigandi \u00ed afm\u00e6lisveislu yngstu systurinnar. H\u00fan var t.d. mj\u00f6g hrifin af kr\u00fattlegum kj\u00f3lum, svona bleikum p\u00edfukj\u00f3lum me\u00f0 hv\u00edtum slaufum e\u00f0a lj\u00f3sbl\u00e1um tjullkj\u00f3lum me\u00f0 pall\u00edettum og bl\u00fandum. H\u00fan gat g\u00f3nt \u00e1 \u00fe\u00e1 t\u00edmunum saman. H\u00fan safna\u00f0i br\u00fa\u00f0um sem voru kl\u00e6ddar \u00ed \u00feessh\u00e1ttar kj\u00f3la. En s\u00e6tu bl\u00fandukj\u00f3larnir voru svo \u00f3\u00fe\u00e6gilegir a\u00f0 henni hef\u00f0i aldrei komi\u00f0 til hugar a\u00f0 l\u00e1ta sauma einn af \u00fev\u00ed tagi \u00e1 sj\u00e1lfa sig. H\u00fan gat kannski \u00e1tt \u00fea\u00f0 til a\u00f0 m\u00e1ta sl\u00edkan kj\u00f3l einu sinni en henni var\u00f0 strax kalt, fannst h\u00fan ekki geta hreyft sig og auk \u00feess hef\u00f0i h\u00fan ekki geta\u00f0 m\u00e6tt \u00e1 r\u00edkisr\u00e1\u00f0sfund kl\u00e6dd eins og smj\u00f6rkremsterta. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i ekki nokkur ma\u00f0ur teki\u00f0 mark \u00e1 henni \u00ed svo \u00f3vir\u00f0ulegum kl\u00e6\u00f0na\u00f0i og h\u00fan haf\u00f0i hreint ekki hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 vera sykurr\u00f3fa hir\u00f0arinnar a\u00f0 eil\u00edfu, h\u00fan \u00e6tla\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 ver\u00f0a drottning \u00fe\u00f3tt h\u00fan v\u00e6ri reyndar ekki elst \u00ed systrah\u00f3pnum.<\/p>\n<p>Saumakona hir\u00f0arinnar var \u00f6ll af vilja ger\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00f3knast duttlungum prinsessunnar. H\u00fan sauma\u00f0i og sauma\u00f0i en \u00fe\u00f3tt prinsessan yr\u00f0i himinlifandi yfir hverjum n\u00fdjum kj\u00f3l, li\u00f0u sjaldan meira en 3-4 klst. \u00fear til h\u00fan var b\u00fain a\u00f0 finna eitthva\u00f0 a\u00f0 honum og komin \u00ed einhvern b\u00f3mullargarminn aftur. Ef henni var bo\u00f0inn d\u00e1samlegur silkikj\u00f3ll me\u00f0 opnu baki, sag\u00f0i h\u00fan a\u00f0 s\u00e9r yr\u00f0i kalt \u00ed honum. Ef h\u00fan f\u00e9kk s\u00ed\u00f0erma ullarkj\u00f3l sag\u00f0ist h\u00fan vera eins og upp\u00feornu\u00f0 piparkerling. V\u00ed\u00f0ir kj\u00f3lar huldu v\u00f6xtinn, \u00fer\u00f6ngir kj\u00f3lar s\u00fdndu bumbuna sem mynda\u00f0ist ef h\u00fan k\u00fdldi sig \u00fat af fasanakj\u00f6ti og vanillurj\u00f3ma. Ef saumakonan bau\u00f0 henni gl\u00e6silegan svartan sat\u00ednkj\u00f3l sem henta\u00f0i vi\u00f0 \u00f6ll t\u00e6kif\u00e6ri, sag\u00f0i h\u00fan a\u00f0 \u00fea\u00f0 vanta\u00f0i bara alla gle\u00f0i \u00ed \u00feennan annars \u00e1g\u00e6ta kj\u00f3l, hvort m\u00e6tti ekki setja mynd af Svampi Sveinssyni \u00e1 brj\u00f3ststykki\u00f0 til a\u00f0 l\u00edfga a\u00f0eins upp \u00e1 hann.<\/p>\n<p>Prinsessan sko\u00f0a\u00f0i allar hugmyndir sem t\u00edskuh\u00f6nnu\u00f0ir heimsins l\u00f6g\u00f0u fram. H\u00fan eyddi heilu vikunum \u00ed b\u00fa\u00f0um, h\u00fan leita\u00f0i og leita\u00f0i en \u00ed hvert sinn sem h\u00fan fann kj\u00f3l sem n\u00e1lga\u00f0ist \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera fullkominn, \u00feurfti \u00fea\u00f0 endilega a\u00f0 vera kj\u00f3ll sem einhver \u00f6nnur prinsessa \u00e1tti. H\u00fan var a\u00f0 v\u00edsu r\u00edk og hef\u00f0i au\u00f0veldlega geta\u00f0 fengi\u00f0 \u00fe\u00e1 kj\u00f3la keypta en henni fannst a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti aldrei \u00ed alv\u00f6runni \u00e1tt kj\u00f3l sem \u00f6nnur kona hef\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 af hendi h\u00e1lfvegis gegn vilja s\u00ednum.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum var kj\u00f3ladella prinsessunnar ekki lengur \u00e1hugam\u00e1l heldur \u00fer\u00e1hyggja. Eiginlega vandam\u00e1l. H\u00fan st\u00f3\u00f0 \u00ed s\u00edfelldum kj\u00f3laskiptum daginn \u00fat og daginn inn, n\u00f6ldra\u00f0i st\u00f6\u00f0ugt \u00ed saumakonunni, \u00fea\u00f0 vanta\u00f0i rennil\u00e1s h\u00e9r e\u00f0a vasa \u00fear, e\u00f0a liturinn var ekki r\u00e9ttur e\u00f0a sni\u00f0i\u00f0 a\u00f0eins of \u00fer\u00f6ngt yfir rassinn&#8230; H\u00fan var vans\u00e6l og var hreinlega a\u00f0 gera saumakonuna ge\u00f0veika.<\/p>\n<p>\u00dear kom a\u00f0 a\u00f0 saumakonan f\u00e9kk n\u00f3g af \u00feessum duttlunugum. H\u00fan gekk \u00e1 fund k\u00f3ngsins og sag\u00f0i honum a\u00f0 h\u00fan g\u00e6ti ekki sta\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00feessari vitleysu lengur, prinsessan v\u00e6ri me\u00f0 hinn fullkomna kj\u00f3l gj\u00f6rsamlega \u00e1 s\u00e1linni og vildi helst fl\u00edk sem h\u00fan g\u00e6ti nota\u00f0 sem n\u00e1ttkj\u00f3l, samkv\u00e6miskl\u00e6\u00f0na\u00f0 og br\u00fa\u00f0arkj\u00f3l allt \u00ed senn. Kr\u00f6furnar v\u00e6ru fullkomlega \u00f3raunh\u00e6far og a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i bara a\u00f0 f\u00e1 einhvern til a\u00f0 koma vitinu fyrir stelpuna. K\u00f3ngurinn var sj\u00e1lfur a\u00f0 ver\u00f0a b\u00fdsna \u00fereyttur \u00e1 ge\u00f0b\u00f3lgu d\u00f3ttur sinnar og skildi saumakonuna vel. Hann sendi \u00fev\u00ed eftir besta ge\u00f0l\u00e6kni r\u00edkisins og ba\u00f0 hann a\u00f0 gr\u00edpa til hverra \u00feeirra a\u00f0ger\u00f0a sem hann teldi \u00e1rangursr\u00edkastar til a\u00f0 l\u00e6kna prinsessuna af \u00feessari \u00fer\u00e1hyggju og fyrir alla muni a\u00f0 s\u00e6tta hana vi\u00f0 r\u00edkjandi hugmyndir um \u00fea\u00f0 hverskonar kj\u00f3lar h\u00e6f\u00f0u st\u00e9tt hennar og st\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>Ge\u00f0l\u00e6knir r\u00edkisins var vitur ma\u00f0ur. Hann var ekki lengi a\u00f0 finna \u00fat a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00feessum erfi\u00f0leikum prinsessunnar var hreinlega s\u00fa a\u00f0 \u00feegar h\u00fan horf\u00f0i \u00ed spegil, s\u00e1 h\u00fan \u00ed raun ekki sj\u00e1lfa sig, heldur bara kj\u00f3linn sem h\u00fan kl\u00e6ddist. \u00deegar h\u00fan kl\u00e6ddist litr\u00edkum samkv\u00e6miskj\u00f3l fann h\u00fan fyrir svo mikilli gle\u00f0i \u00ed sm\u00e1stund en \u00feegar h\u00fan leit \u00ed spegilinn s\u00e1 h\u00fan konu sem gat ekki teki\u00f0 neinu alvarlega og var\u00f0 mi\u00f0ur s\u00edn af \u00fev\u00ed a\u00f0 henni fannst h\u00fan \u00e1byrg\u00f0arlaus. \u00deegar h\u00fan var \u00ed s\u00ed\u00f0um vetrarkj\u00f3l var henni hl\u00fdtt en samt\u00edmis lei\u00f0 henni eins og h\u00fan \u00e6tti aldrei aftur eftir a\u00f0 hlaupa \u00e1 engi e\u00f0a sn\u00faast \u00ed hringi \u00e1 dansg\u00f3lfi. \u00dear sem h\u00fan var margbrotinn karakter en \u00f3f\u00e6r um a\u00f0 gera greinarmun \u00e1 sj\u00e1lfri s\u00e9r og kj\u00f3lnum sem h\u00fan kl\u00e6ddist, var ekki von a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri s\u00e1tt vi\u00f0 nokkurn \u00feeirra.<\/p>\n<p>Ge\u00f0l\u00e6knirinn sag\u00f0i k\u00f3nginum a\u00f0 l\u00edklega hef\u00f0i d\u00f3ttir hans bara fleiri valkosti en h\u00fan r\u00e9\u00f0i vi\u00f0 og a\u00f0 besta lei\u00f0in til a\u00f0 l\u00e6kna prinsessuna af kj\u00f3las\u00fdkinni, v\u00e6ri f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 finna hentugustu tengslin milli kj\u00f3ls og karakters. Hann r\u00e1\u00f0lag\u00f0i k\u00f3nginum a\u00f0 senda d\u00f3ttur s\u00edna me\u00f0 alla kj\u00f3la sem hef\u00f0u veri\u00f0 sauma\u00f0ir \u00e1 hana \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina \u00ed vist til galdranornarinnar Fata Morgana sem bj\u00f3 \u00e1 fl\u00e6\u00f0iskeri langt langt fr\u00e1 r\u00edki konungsins. Fata gamla myndi sj\u00e1lfsagt finna r\u00e9tta kj\u00f3linn handa prinsessunni. K\u00f3ngurinn \u00feakka\u00f0i gott r\u00e1\u00f0 og sendi prinsessuna \u00e1 fl\u00e6\u00f0iskeri\u00f0 saumakonulausa en me\u00f0 12 koffort full af s\u00e6tum, hl\u00fdjum, hentugum og gl\u00e6silegum kj\u00f3lum, \u00fe\u00f3tt enginn \u00feeirra v\u00e6ri \u00feetta allt \u00ed senn.<\/p>\n<p>Fata Morgana t\u00f3k vel \u00e1 m\u00f3ti prinsessunni en strax \u00e1 fyrsta degi brenndi h\u00fan koffortin 12 me\u00f0 \u00f6llum f\u00ednu kj\u00f3lunum sem henni var \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 sko\u00f0a og velja \u00far. \u00deess \u00ed sta\u00f0 settist h\u00fan sj\u00e1lf vi\u00f0 sauma \u00e1 me\u00f0an prinsessan v\u00e6fla\u00f0ist um \u00ed upplita\u00f0ri b\u00f3mullardruslu og fyllti dagb\u00f3kina s\u00edna af hamrakl\u00e1mi.<\/p>\n<p>N\u00fdju f\u00f6tin prinsessunnar voru ekki \u00ed neinu samr\u00e6mi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem h\u00fan \u00e1tti a\u00f0 venjast. V\u00ed\u00f0ar gallabuxur, \u00fer\u00f6ngur b\u00f3mullarbolur, jakki og derh\u00fafa. Prinsessan hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p><em>-\u00deetta er ekki alveg \u00e9g. M\u00e9r finnst \u00feetta ekki einu sinni fallegt,<\/em>\u00a0sag\u00f0i h\u00fan.<\/p>\n<p>En Fata Morgana sat vi\u00f0 sinn keip.<\/p>\n<p><em>-\u00de\u00fa veist ekkert hva\u00f0 \u00fe\u00fa vilt og \u00fe.a.l. veistu heldur ekki hva\u00f0 \u00fe\u00fa vilt ekki. \u00dea\u00f0 eru ekki f\u00f6tin sem skapa manninn, heldur ma\u00f0urinn sem skapar f\u00f6tin. N\u00fa skalt \u00fe\u00fa gj\u00f6ra svo vel a\u00f0 ganga \u00ed \u00feessu \u00fear til \u00fe\u00fa ert or\u00f0in s\u00e1tt vi\u00f0 sj\u00e1lfa \u00feig og \u00fe\u00e1 fyrst getum vi\u00f0 fundi\u00f0 kj\u00f3l sem hentar \u00fe\u00e9r,<\/em>\u00a0sag\u00f0i Fata Morgana. Prinsessan sag\u00f0i ekki eitt einasta or\u00f0. L\u00edklega var h\u00fan of mi\u00f0ur s\u00edn til a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la. Samt gr\u00e9t h\u00fan ekki og \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tti g\u00f6mlu norninni d\u00e1l\u00edti\u00f0 undarlegt.<\/p>\n<p>Dagar li\u00f0u, vikur li\u00f0u og sm\u00e1msaman f\u00f3r Fata Morgana a\u00f0 draga fram t\u00edskubl\u00f6\u00f0 og kj\u00f3lateikningar, marglit kj\u00f3laefni, bor\u00f0a og knipplinga. Prinsessan s\u00fdndi \u00feessu \u00fe\u00f3 engan \u00e1huga. \u00devert \u00e1 m\u00f3ti var engu l\u00edkara en a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri bara h\u00e6st\u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 \u00feennan \u00f3prinsessulega kl\u00e6\u00f0na\u00f0 sinn. A\u00f0 lokum spur\u00f0i Fata Morgana hana hvort g\u00e6ti veri\u00f0 a\u00f0 h\u00fan vildi alls engan kj\u00f3l. Hvort henni li\u00f0i kannski bara pr\u00fd\u00f0ilega \u00ed gallabuxum og b\u00f3mullarbol.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 leit prinsessan \u00e1 hana og svara\u00f0i:<\/p>\n<p><em>-J\u00e1, veistu \u00fea\u00f0, \u00e9g held a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 bara alveg \u00e9g, hreinlega. Nema \u00fea\u00f0 er bara \u00feetta eina. \u00dea\u00f0 er h\u00fafan. \u00c9g meina buxurnar sk\u00edtverka, bolurinn l\u00edka og jakkinn er f\u00ednn. Og deri\u00f0 veistu, \u00fea\u00f0 er n\u00fabara alveg DerI\u00d0 mitt me\u00f0 st\u00f3rum staf og greini. En h\u00fafan&#8230; veistu, m\u00e9r finnst einhvernveginn eins og h\u00fafan bara h\u00e6fi ekki derinu.<\/em><\/p>\n<p>Og prinsessan sem var ekki lengur me\u00f0 fullkominn kj\u00f3l \u00e1 heilanum sm\u00ed\u00f0a\u00f0i s\u00e9r fleka. H\u00fan sigldi flekanum s\u00ednum burt af fl\u00e6\u00f0iskerinu og veifa\u00f0i F\u00f6tu Morgana \u00ed kve\u00f0juskyni. Svo f\u00f3r h\u00fan heim \u00ed h\u00f6llina s\u00edna og kalla\u00f0i \u00e1 alla kl\u00e6\u00f0skera r\u00edkisins og alla fr\u00e6gustu t\u00edskuh\u00f6nnu\u00f0i \u00ed heimi. H\u00fan flutti dyngju s\u00edna \u00ed speglasalinn og fyllti hana af h\u00fafum. St\u00f3rum h\u00fafum og litlum h\u00fafum \u00ed \u00f6llum regnbogans litum. Og enn \u00ed dag situr prinsessan \u00ed speglasalnum, sta\u00f0r\u00e1\u00f0in \u00ed a\u00f0 n\u00e1 eina markmi\u00f0i s\u00ednu \u00ed l\u00edfinu; a\u00f0 finna r\u00e9ttu h\u00fafuna. \u00deessa einu h\u00fafu sem h\u00e6fir derinu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einu sinni var prinsessa. H\u00fan var galin. H\u00fan var me\u00f0 kj\u00f3la \u00e1 heilanum og st\u00f3r hluti dagsins f\u00f3r \u00ed a\u00f0 sko\u00f0a kj\u00f3la, m\u00e1ta kj\u00f3la, afskrifa kj\u00f3la sem henni l\u00edku\u00f0u ekki, reyna a\u00f0 \u00fer\u00f6ngva kj\u00f3lum sem h\u00fan var hrifin af en &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-1299","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allt-efni","category-sogur"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum - Birta<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum - Birta\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Einu sinni var prinsessa. H\u00fan var galin. H\u00fan var me\u00f0 kj\u00f3la \u00e1 heilanum og st\u00f3r hluti dagsins f\u00f3r \u00ed a\u00f0 sko\u00f0a kj\u00f3la, m\u00e1ta kj\u00f3la, afskrifa kj\u00f3la sem henni l\u00edku\u00f0u ekki, reyna a\u00f0 \u00fer\u00f6ngva kj\u00f3lum sem h\u00fan var hrifin af en &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Birta\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2007-01-21T12:55:52+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-08-28T09:03:09+00:00\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"10 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum\",\"datePublished\":\"2007-01-21T12:55:52+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-28T09:03:09+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/\"},\"wordCount\":1925,\"articleSection\":[\"Allt efni\",\"S\u00f6gur\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/\",\"name\":\"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum - Birta\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\"},\"datePublished\":\"2007-01-21T12:55:52+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-28T09:03:09+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\",\"name\":\"Birta\",\"description\":\"Evukv\u00e6\u00f0i\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum - Birta","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum - Birta","og_description":"Einu sinni var prinsessa. H\u00fan var galin. H\u00fan var me\u00f0 kj\u00f3la \u00e1 heilanum og st\u00f3r hluti dagsins f\u00f3r \u00ed a\u00f0 sko\u00f0a kj\u00f3la, m\u00e1ta kj\u00f3la, afskrifa kj\u00f3la sem henni l\u00edku\u00f0u ekki, reyna a\u00f0 \u00fer\u00f6ngva kj\u00f3lum sem h\u00fan var hrifin af en &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/","og_site_name":"Birta","article_published_time":"2007-01-21T12:55:52+00:00","article_modified_time":"2017-08-28T09:03:09+00:00","author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"10 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum","datePublished":"2007-01-21T12:55:52+00:00","dateModified":"2017-08-28T09:03:09+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/"},"wordCount":1925,"articleSection":["Allt efni","S\u00f6gur"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/","name":"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum - Birta","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website"},"datePublished":"2007-01-21T12:55:52+00:00","dateModified":"2017-08-28T09:03:09+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-prinsessunni-sem-er-med-hinn-fullkoma-kjol-a-heilanum\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Saga handa prinsessunni sem er me\u00f0 hinn fullkoma kj\u00f3l \u00e1 heilanum"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/","name":"Birta","description":"Evukv\u00e6\u00f0i","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1299","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1299"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1299\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1420,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1299\/revisions\/1420"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1299"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1299"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1299"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}