{"id":1296,"date":"2007-01-18T12:54:31","date_gmt":"2007-01-18T12:54:31","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/?p=1296"},"modified":"2017-08-27T13:05:49","modified_gmt":"2017-08-27T13:05:49","slug":"saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/","title":{"rendered":"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga"},"content":{"rendered":"<p>Einu sinni var ma\u00f0ur sem vissi ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1tti a\u00f0 st\u00edga. Hann kunni ekki a\u00f0 ganga, steig bara \u00ed h\u00e6gri f\u00f3t og vinstri til skiptis. \u00deannig haf\u00f0i hann komi\u00f0 s\u00e9r upp \u00fe\u00e6gilegri rugghreyfingu sem var svo sefandi a\u00f0 enda \u00fe\u00f3tt hann g\u00e6ti ekki gengi\u00f0, var hann eiginlega ekkert sorgm\u00e6ddur.<!--more--><\/p>\n<p>Ma\u00f0urinn bj\u00f3 einn \u00ed r\u00famg\u00f3\u00f0um k\u00e6lisk\u00e1p me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri fl\u00faorl\u00fdsingu og \u00fear h\u00e9kk hann tv\u00edst\u00edgandi daginn \u00fat og daginn inn. \u00dear sem hann kunni ekki a\u00f0 ganga f\u00f3r hann n\u00e1nast aldrei \u00fat \u00far sk\u00e1pnum, ekki nema einhver s\u00e6kti hann og leiddi hann \u00fat fyrir. Reyndar l\u00edka\u00f0i manninum vel a\u00f0 vera leiddur \u00fat \u00far k\u00e6lisk\u00e1pnum \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var fremur tilbreytingarlaust til lengdar a\u00f0 standa \u00fear og tv\u00edst\u00edga allan daginn. Auk \u00feess var honum stundum d\u00e1l\u00edti\u00f0 kalt og \u00fe\u00e1 \u00feurfti hann a\u00f0 tv\u00edst\u00edga svo hratt a\u00f0 honum var\u00f0 \u00f3glatt.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3tt l\u00edfi\u00f0 \u00ed k\u00e6lisk\u00e1pnum v\u00e6ri svol\u00edti\u00f0 einh\u00e6ft var ma\u00f0urinn samt s\u00e1ttur vi\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00deessi gr\u00ed\u00f0arst\u00f3ri k\u00e6lisk\u00e1pur var nefnilega fullur af gr\u00e1\u00f0osti sem hann gat g\u00falla\u00f0 \u00ed sig a\u00f0 vild sinni. \u00dea\u00f0 ger\u00f0i \u00edssk\u00e1psdv\u00f6lina svo enn\u00fe\u00e1 \u00fe\u00e6gilegri a\u00f0 \u00fear sem st\u00f3r hluti af ostinum var or\u00f0inn illa k\u00e6stur vildi hann enginn annar og \u00feessvegna \u00feurfti ma\u00f0urinn aldrei a\u00f0 spyrja; hver t\u00f3k ostinn minn. \u00dei\u00f0 sj\u00e1i\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta var \u00ed rauninni gott l\u00edf. Stundum fannst honum hann n\u00e6stum \u00fev\u00ed hamingjusamur.<\/p>\n<p>Samt var ma\u00f0urinn ekki fullkomlega viss um hamingju s\u00edna. Stundum \u00e1 vorin greip hann eitthvert undarlegt eir\u00f0arleysi, svona eins og hann langa\u00f0i \u00ed s\u00edgarettu, e\u00f0a meiri gr\u00e1\u00f0ost, e\u00f0a kannski langa\u00f0i hann a\u00f0 vera hj\u00e1 konu. J\u00fa, l\u00edklega var \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0. L\u00edklega vanta\u00f0i hann bara konu. Mj\u00faka konu sem brag\u00f0a\u00f0ist eins og gr\u00e1\u00f0ostur. \u00deegar ma\u00f0urinn var\u00f0 svona eir\u00f0arlaus, reykti hann margar s\u00edgarettur \u00e1 me\u00f0an hann tv\u00edst\u00e9. Ef \u00fe\u00e6gileg rugghreyfingin n\u00e1\u00f0i ekki a\u00f0 hugga hann, \u00e1tti hann \u00fea\u00f0 til a\u00f0 opna k\u00e6lisk\u00e1pinn og l\u00edta a\u00f0eins \u00fat fyrir til a\u00f0 g\u00e1 hvort hann s\u00e6i nokkra konu. Hann s\u00e1 enga. \u00de\u00e1 f\u00e9kk ma\u00f0urinn s\u00e9r meiri gr\u00e1\u00f0ost og h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 tv\u00edst\u00edga.<\/p>\n<p>Kv\u00f6ld nokkurt einmitt \u00feegar ma\u00f0urinn st\u00f3\u00f0 \u00ed vinstri f\u00f3tinn og var \u00f6nnum kafinn vi\u00f0 a\u00f0 flytja \u00feungann yfir \u00e1 \u00feann h\u00e6gri, opnu\u00f0ust dyrnar \u00e1 k\u00e6lisk\u00e1pnum og kona nokkur ste\u00f0ja\u00f0i inn. H\u00fan sag\u00f0i manninum a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri \u00e1lfadrottningin og a\u00f0 h\u00fan skyldi uppfylla \u00ferj\u00e1r heitustu \u00f3skir hans ef hann \u00ed sta\u00f0inn fylgdi henni hvert sem h\u00fan vildi eina n\u00f3tt. \u00deetta fannst manninum hi\u00f0 besta bo\u00f0 og hann var ekki lengi a\u00f0 \u00f3ska s\u00e9r. Fyrsta \u00f3skin var s\u00fa a\u00f0 hann fengi st\u00e6rri k\u00e6lisk\u00e1p til umr\u00e1\u00f0a. Helst me\u00f0 klakav\u00e9l af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tti honum flott. N\u00e6st \u00f3ska\u00f0i hann s\u00e9r \u00feess a\u00f0 hann fengi meiri gr\u00e1\u00f0ost, j\u00e1 hann \u00f3ska\u00f0i \u00feess a\u00f0 hann fengi gr\u00e1\u00f0ostabirg\u00f0ir sem myndu endast honum alla \u00e6vina. \u00deri\u00f0ja \u00f3skin var ofurl\u00edti\u00f0 erfi\u00f0ari. \u00c1tti hann a\u00f0 \u00f3ska s\u00e9r \u00feess a\u00f0 einhver kona vildi flytja inn \u00ed \u00edssk\u00e1pinn til hans? E\u00f0a gat \u00fea\u00f0 ekki or\u00f0i\u00f0 b\u00f6lva\u00f0 vesen? Kannski \u00e6tti hann frekar a\u00f0 \u00f3ska \u00feess a\u00f0 konur \u00e6ttu oftar lei\u00f0 fram hj\u00e1 sk\u00e1pnum hans svo hann \u00e6tti frekar kost \u00e1 a\u00f0 hitta \u00fe\u00e6r ef honum henta\u00f0i. Hann hugsa\u00f0i sig um d\u00e1litla stund en valdi svo fyrri kostinn. Sems\u00e9 a\u00f0 til hans flytti kona sem v\u00e6ri engin h\u00f3ra, heldur falleg og mj\u00fak og hl\u00fd og lykta\u00f0i d\u00e1l\u00edti\u00f0 l\u00edkt og gr\u00e1\u00f0ostur.<\/p>\n<p>\u00c1lfkonan horf\u00f0i angdofa \u00e1 manninn. H\u00fan sag\u00f0i ekki or\u00f0, heldur leiddi hann \u00fat \u00far k\u00e6lisk\u00e1pnum. \u00de\u00e1 var\u00f0 manninum hl\u00fdtt og \u00fea\u00f0 fannst honum skr\u00fdti\u00f0 \u00fev\u00ed hann var alls ekki vanur \u00fev\u00ed. \u00c1lfkonan sag\u00f0i honum a\u00f0 \u00f3skirnar yr\u00f0u uppfylltar n\u00e6sta dag en a\u00f0 \u00feessa n\u00f3tt yr\u00f0i hann a\u00f0 fylgja henni eins og \u00e1\u00f0ur var um sami\u00f0. Svo sl\u00f3 h\u00fan hann blindu og hann fann hvernig h\u00fan leiddi hann \u00e1fram, yfir g\u00f6tuna og ni\u00f0ur bratta, bratta brekku, \u00e1n \u00feess a\u00f0 hann s\u00e6i neitt, \u00e1n \u00feess a\u00f0 hann hef\u00f0i hugmynd um hvert hann var a\u00f0 fara. Samt var hann ekki hr\u00e6ddur \u00fev\u00ed hann vissi a\u00f0 h\u00fan myndi lei\u00f0a hann. \u00feegar hann f\u00e9kk sj\u00f3nina aftur, var hann staddur inni \u00ed \u00e1lfaborg. N\u00e1nar tilteki\u00f0 \u00ed dyngju drottningarinnar. \u00dear var undarlega hl\u00fdtt. \u00dear loga\u00f0i lj\u00f3s \u00e1 kerti. \u00dear var enginn gr\u00e1\u00f0ostur en h\u00fan hellti ofurlitu rau\u00f0v\u00edni \u00ed glas og bau\u00f0 honum a\u00f0 drekka. Hann \u00fe\u00e1\u00f0i \u00fea\u00f0 og var hissa \u00e1 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sakna ekki alls gr\u00e1\u00f0ostsins sem bei\u00f0 hans heima \u00ed k\u00e6lisk\u00e1pnum bjarta og g\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p><span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">-\u00de\u00fa getur fengi\u00f0 \u00f3skirnar \u00fe\u00ednar uppfylltar ef \u00fe\u00fa vilt en \u00fe\u00fa hefur enn\u00fe\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 skipta um sko\u00f0un og \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 m\u00e9r \u00feykir \u00fe\u00fa n\u00fdta \u00fe\u00e6r illa \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt.<\/span>\u00a0sag\u00f0i \u00e1lfadrottningin. Ma\u00f0urinn hugsa\u00f0i sig um andartak en hann var henni \u00f3samm\u00e1la. hva\u00f0 \u00ed \u00f3sk\u00f6punum \u00e6tti hann svosem a\u00f0 vilja anna\u00f0 \u00ed l\u00edfinu? \u00c1lfkonan horf\u00f0i \u00fereytulega \u00e1 hann. L\u00edkt og hann v\u00e6ri heimskur sk\u00f3lakrakki en ekki fullor\u00f0inn ma\u00f0ur sem \u00e1tti sinn eigin k\u00e6lisk\u00e1p.<\/p>\n<p><span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">-\u00dea\u00f0 eru bara litlar m\u00fds sem s\u00e6tta sig vi\u00f0 a\u00f0 b\u00faa \u00ed k\u00e6lisk\u00e1p og lifa \u00e1 mygluosti einum saman. Hefur \u00fe\u00e9r ekkert dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 \u00f3ska eftir t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 komast \u00fat \u00far sk\u00e1pnum? Hefur ekkert fl\u00f6gra\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 vera til eitthva\u00f0 eftirs\u00f3knarver\u00f0ara \u00ed ver\u00f6ldinni en gr\u00e1\u00f0ostur? Kannski camenbert, e\u00f0a jafnvel ostur sem er ekki farinn a\u00f0 mygla? Kannski bara lambakj\u00f6t, e\u00f0a fiskur, kannski s\u00fakkula\u00f0ikaka e\u00f0a jafnvel gr\u00e6meti?<\/span><\/p>\n<p>Ma\u00f0urinn hugsa\u00f0i sig um. Hann var ekki lengur viss um a\u00f0 honum li\u00f0i vel hj\u00e1 \u00feessari \u00e1lfkonu sem spur\u00f0i \u00f3\u00fe\u00e6gilegra spurninga og dr\u00f3 hann me\u00f0 s\u00e9r burt fr\u00e1 k\u00e6lisk\u00e1pnum, inn \u00ed \u00e1lfaborg \u00fear sem b\u00e6\u00f0i l\u00fdsingin og hitastigi\u00f0 var framandlegt. Hann vi\u00f0urkenndi samt a\u00f0 lokum, dr\u00e6mlega \u00fe\u00f3, a\u00f0 eitthva\u00f0 af \u00feessu kynni a\u00f0 hafa hvarfla\u00f0 a\u00f0 honum. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri bara svo tilgangslaust a\u00f0 l\u00e1ta sig dreyma sl\u00edka vitleysu, \u00fev\u00ed \u00feegar allt k\u00e6mi til alls, \u00fe\u00e1 kynni hann ekki a\u00f0 ganga.<\/p>\n<p>\u00c1lfkonan sag\u00f0i honum a\u00f0 l\u00edklega v\u00e6ri hann a\u00f0 mikla vandann fyrir s\u00e9r. \u00cd raun v\u00e6ri hreint ekki svo erfitt a\u00f0 ganga. Galdurinn f\u00e6list \u00ed raun ekki \u00ed \u00f6\u00f0ru en \u00fev\u00ed a\u00f0 setja annan f\u00f3tinn fram fyrir hinn og fylgja honum eftir me\u00f0 eigin \u00feunga.<\/p>\n<p><span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">-\u00c9g veit \u00fea\u00f0, sag\u00f0i ma\u00f0urinn, \u00fev\u00ed \u00e9g ekkert heimskur \u00fe\u00f3tt \u00e9g kunni ekki a\u00f0 ganga. M\u00e1li\u00f0 er bara a\u00f0 einu sinni endur fyrir l\u00f6ngu \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 pr\u00f3fa a\u00f0 ganga. \u00c9g lyfti \u00f6\u00f0rum f\u00e6tinum og setti hann fram fyrir hinn. En um lei\u00f0 og \u00e9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 flytja l\u00edkams\u00feungann yfir \u00e1 fremri f\u00f3tinn, missti \u00e9g jafnv\u00e6gi\u00f0 og datt. \u00deessvegna get \u00e9g ekki gengi\u00f0, \u00e9g dett bara ef \u00e9g reyni \u00fea\u00f0.<\/span><\/p>\n<p>\u00deetta \u00fe\u00f3tti \u00e1lfkonunni sorgleg saga. H\u00fan st\u00f3\u00f0 upp og stakk tappanum \u00ed rau\u00f0v\u00ednsfl\u00f6skuna, sl\u00f3 manninn blindu og leiddi hann gegnum v\u00f6lundarh\u00fas \u00e1lfheima, allalei\u00f0 til l\u00e6kninga\u00e1lfsins sem bj\u00f3 \u00ed \u00f6\u00f0rum hluta borgarinnar. H\u00fan sag\u00f0i l\u00e6kninga\u00e1lfinnum fr\u00e1 a\u00f0st\u00e6\u00f0um mannsins og ba\u00f0 hann um a\u00f0 l\u00edta \u00e1 f\u00e6tur mannsins, athuga hj\u00e1 honum jafnv\u00e6gisskyni\u00f0 og kenna honum a\u00f0 ganga.<\/p>\n<p>L\u00e6kninga\u00e1lfurinn kanna\u00f0i ekki jafnv\u00e6gisskyn mannsins og hann skrifa\u00f0i heldur ekki upp \u00e1 neina t\u00f6framixt\u00faru til a\u00f0 l\u00e6kna hann. Hann \u00feag\u00f0i bara lengi og l\u00e9t gleraugun s\u00edga ni\u00f0ur \u00e1 nef. Hann lyfti br\u00fanum og horf\u00f0i \u00e1 manninn yfir gleraugun. Svo d\u00e6sti hann \u00e1\u00f0ur en hann kva\u00f0 upp \u00farskur\u00f0 sinn.<\/p>\n<p><span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">-Til \u00feess a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 ganga er tvennt sem \u00fe\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 gera. \u00de\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 bor\u00f0a eitthva\u00f0 anna\u00f0 en bara endalausan gr\u00e1\u00f0ost. Gr\u00e1\u00f0ostur er g\u00f3\u00f0ur svo langt sem \u00fea\u00f0 n\u00e6r og myglan varnar vissulega sj\u00fakd\u00f3mum en f\u00f3lk sem lifir bara \u00e1 einni f\u00e6\u00f0utegund ver\u00f0ur alltaf veikbur\u00f0a \u00e1 endanum. \u00cd \u00f6\u00f0ru lagi ver\u00f0ur \u00fe\u00fa bara a\u00f0 l\u00e1ta \u00feig hafa \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00fa dettir \u00ed fyrstu skiptin sem \u00fe\u00fa reynir. \u00dea\u00f0 gera allir. \u00dea\u00f0 er hluti af ferlinu. S\u00e1 sem \u00feorir ekki a\u00f0 mei\u00f0a sig l\u00e6rir aldrei a\u00f0 ganga og s\u00e1 sem kann ekki a\u00f0 ganga l\u00e6rir aldrei a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00e1falli\u00f0 sem fylgir \u00fevi a\u00f0 mei\u00f0a sig. \u00dea\u00f0 er ekkert a\u00f0 l\u00edkama \u00fe\u00ednum, \u00fea\u00f0 er ekkert athugavert vi\u00f0 jafnv\u00e6gisskyni\u00f0 \u00feitt, \u00fe\u00fa bara \u00fearft a\u00f0 koma \u00fe\u00e9r \u00fat \u00far k\u00e6lisk\u00e1pnum og l\u00e6ra a\u00f0 ganga.<\/span><\/p>\n<p>Ma\u00f0urinn sem vissi ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1tti a\u00f0 st\u00edga st\u00f3\u00f0 upp og h\u00f3f sitt taktbundna rugg,<\/p>\n<p><span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">-\u00c9g g\u00e6ti l\u00edklega l\u00e6rt \u00fea\u00f0,<\/span>\u00a0sag\u00f0i hann,\u00a0<span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">en vandam\u00e1li\u00f0 er bara a\u00f0 \u00fear sem \u00e9g hef aldrei gengi\u00f0, veit \u00e9g ekki hvort \u00e9g er r\u00e9ttf\u00e6ttur e\u00f0a \u00f6rvf\u00e6ttu. \u00c9g hreinlega veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn \u00e9g \u00e1 a\u00f0 st\u00edga.<br \/>\n-\u00de\u00fa kemst a\u00f0 \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0i minn<\/span>, sag\u00f0i l\u00e6kninga\u00e1lfurinn.\u00a0<span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">Um lei\u00f0 og \u00fe\u00fa l\u00e6rir a\u00f0 setja annan f\u00f3tinn fram fyrir hinn, svo \u00fe\u00fa komist hj\u00e1lparlaust \u00fat \u00far k\u00e6lisk\u00e1pnum, muntu finna sj\u00e1lfur hvor f\u00f3turinn er sterkari.<\/span><\/p>\n<p>Ma\u00f0urinn leit n\u00fa \u00e1 \u00e1lfadrottninguna. A\u00f0 v\u00edsu var hann ekkert viss um a\u00f0 sig langa\u00f0i a\u00f0 fara mj\u00f6g langt fr\u00e1 k\u00e6lisk\u00e1pnum s\u00ednum r\u00famg\u00f3\u00f0a og bjarta e\u00f0a lifa \u00e1 einhverju \u00f6\u00f0ru en gr\u00e1\u00f0osti en \u00e1 \u00feessari stundu allavega, fannst honum eitthva\u00f0 eftirs\u00f3knarvert vi\u00f0 a\u00f0 eiga valkosti. L\u00edklega v\u00e6ri \u00feetta \u00fer\u00e1tt fyrir allt t\u00e6kif\u00e6ri l\u00edfs hans og hann \u00feyrfti svosem ekkert a\u00f0 sp\u00edgspora um allar jar\u00f0ir frekar en hann vildi \u00fe\u00f3tt hann g\u00e6ti \u00fea\u00f0 ef til k\u00e6mi.<\/p>\n<p><span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">-\u00c9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 r\u00e9tt hj\u00e1 \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti kannski a\u00f0 n\u00fdta \u00f3skirnar betur. \u00c9g \u00e6tla frekar a\u00f0 \u00f3ska \u00feess a\u00f0 \u00e9g kunni a\u00f0 ganga,<\/span>\u00a0sag\u00f0i hann.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 leit \u00e1lfkonan \u00e1 hann d\u00f6pur \u00e1 svip.<\/p>\n<p><span data-blogger-escaped-style=\"font-style:italic;\">-Elsku \u00f3g\u00e6fusama mannvera, sag\u00f0i h\u00fan, \u00e9g er \u00e1lfur en ekki sendit\u00edk. \u00c9g uppfylli \u00f3skir en vinn ekki vinnuna fyrir letihauga og gungur. Allt sem \u00fe\u00fa \u00f3skar \u00fe\u00e9r getur\u00f0u fengi\u00f0, nema au\u00f0vita\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa getur or\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fati um af sj\u00e1lfd\u00e1\u00f0um. L\u00e6r\u00f0u n\u00fa bara a\u00f0 ganga. Byrja\u00f0u \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 smakka eitthva\u00f0 anna\u00f0 en \u00feennan endalausa bl\u00e1mygluost sem enginn hefur \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 fr\u00e1 \u00fe\u00e9r. Settu svo annan f\u00f3tinn fram fyrir hinn og stattu upp og reyndu aftur \u00feegar \u00fe\u00fa mei\u00f0ir \u00feig. \u00feegar \u00fe\u00fa ert farinn a\u00f0 ganga kem \u00e9g aftur og \u00fe\u00e1 skal \u00e9g uppfylla \u00f3skirnar \u00fe\u00ednar. Allar \u00ferj\u00e1r, jafnvel fleiri. En \u00fe\u00f3 get \u00e9g sagt \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00f3v\u00edst a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fearfnist \u00feess. Um lei\u00f0 og \u00fe\u00fa ert b\u00fainn a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 ganga getur\u00f0u sj\u00e1lfur or\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fati um st\u00e6rri k\u00e6lisk\u00e1p og meiri ost. Jafnvel slikimj\u00faka gr\u00e1\u00f0ostakonu ef \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa vilt. Ef \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa vilt. Ef \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa vilt&#8230;<\/span><\/p>\n<p>Eftir \u00e1 vissi ma\u00f0urinn ekki almennilega hva\u00f0 haf\u00f0i gerst. Hann mundi ekki hvernig hann komst heim aftur. Vissi bara a\u00f0 allt \u00ed einu st\u00f3\u00f0 hann aftur \u00ed k\u00e6lisk\u00e1pnum, horf\u00f0i \u00e1 hillurnar sneisafullar af misjafnlega k\u00e6stum gr\u00e1\u00f0osti og vissi ekki alveg \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1tti a\u00f0 st\u00edga.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Einu sinni var ma\u00f0ur sem vissi ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1tti a\u00f0 st\u00edga. Hann kunni ekki a\u00f0 ganga, steig bara \u00ed h\u00e6gri f\u00f3t og vinstri til skiptis. \u00deannig haf\u00f0i hann komi\u00f0 s\u00e9r upp \u00fe\u00e6gilegri rugghreyfingu sem var svo sefandi &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-1296","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allt-efni","category-sogur"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga - Birta<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga - Birta\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Einu sinni var ma\u00f0ur sem vissi ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1tti a\u00f0 st\u00edga. Hann kunni ekki a\u00f0 ganga, steig bara \u00ed h\u00e6gri f\u00f3t og vinstri til skiptis. \u00deannig haf\u00f0i hann komi\u00f0 s\u00e9r upp \u00fe\u00e6gilegri rugghreyfingu sem var svo sefandi &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Birta\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2007-01-18T12:54:31+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-08-27T13:05:49+00:00\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"10 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga\",\"datePublished\":\"2007-01-18T12:54:31+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-27T13:05:49+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/\"},\"wordCount\":2018,\"articleSection\":[\"Allt efni\",\"S\u00f6gur\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/\",\"name\":\"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga - Birta\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\"},\"datePublished\":\"2007-01-18T12:54:31+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-27T13:05:49+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\",\"name\":\"Birta\",\"description\":\"Evukv\u00e6\u00f0i\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga - Birta","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga - Birta","og_description":"Einu sinni var ma\u00f0ur sem vissi ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1tti a\u00f0 st\u00edga. Hann kunni ekki a\u00f0 ganga, steig bara \u00ed h\u00e6gri f\u00f3t og vinstri til skiptis. \u00deannig haf\u00f0i hann komi\u00f0 s\u00e9r upp \u00fe\u00e6gilegri rugghreyfingu sem var svo sefandi &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/","og_site_name":"Birta","article_published_time":"2007-01-18T12:54:31+00:00","article_modified_time":"2017-08-27T13:05:49+00:00","author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"10 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga","datePublished":"2007-01-18T12:54:31+00:00","dateModified":"2017-08-27T13:05:49+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/"},"wordCount":2018,"articleSection":["Allt efni","S\u00f6gur"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/","name":"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga - Birta","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website"},"datePublished":"2007-01-18T12:54:31+00:00","dateModified":"2017-08-27T13:05:49+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/saga-handa-manninum-sem-veit-ekki-i-hvorn-fotinn-hann-a-ad-stiga\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Saga handa manninum sem veit ekki \u00ed hvorn f\u00f3tinn hann \u00e1 a\u00f0 st\u00edga"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/","name":"Birta","description":"Evukv\u00e6\u00f0i","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1296","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1296"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1296\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1297,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1296\/revisions\/1297"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1296"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1296"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1296"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}