{"id":1275,"date":"1999-07-11T11:43:37","date_gmt":"1999-07-11T11:43:37","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/birta\/?p=1275"},"modified":"2017-08-28T09:15:53","modified_gmt":"2017-08-28T09:15:53","slug":"fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/","title":{"rendered":"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu"},"content":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er \u00feannig me\u00f0 sumt f\u00f3lk a\u00f0 \u00fea\u00f0 er einfaldlega fyndi\u00f0. Mill\u00fd var \u00feannig. Allt sem h\u00fan sag\u00f0i var\u00f0 einhvernveginn fyndi\u00f0 og ekki n\u00f3g me\u00f0 \u00fea\u00f0 heldur fannst henni l\u00edka allt sem vi\u00f0 hin s\u00f6g\u00f0um vera fyndi\u00f0. H\u00fan hl\u00f3 miki\u00f0. Og svo var h\u00fan s\u00e6t l\u00edka. Allt sem h\u00fan ger\u00f0i var anna\u00f0 hvort fyndi\u00f0, sex\u00fd e\u00f0a s\u00e6tt.<!--more--> Ef eitthvert okkar hinna hef\u00f0i sett r\u00f6r \u00ed bj\u00f3rinn sinn til a\u00f0 gera \u201cblubblur\u201d hef\u00f0i \u00fea\u00f0 veri\u00f0 \u00e1liti\u00f0 merki um barnaskap en \u00feegar Mill\u00fd ger\u00f0i \u00fea\u00f0 var \u00fea\u00f0 fyndi\u00f0. Reyndar var \u00fea\u00f0 ekkert oft sem vi\u00f0 drukkum bj\u00f3r \u00e1 \u00feessum t\u00edma og \u00e9g held \u00e9g svona eftir \u00e1 a\u00f0 hyggja a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 Mill\u00fd sem stj\u00f3rna\u00f0i \u00fev\u00ed eins og \u00f6llu \u00f6\u00f0ru. H\u00fan var l\u00edti\u00f0 fyrir \u00e1fengi sj\u00e1lf og vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um tilhneigingu til a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem h\u00fan stakk upp \u00e1. Okkur lei\u00f0 vel n\u00e1l\u00e6gt henni. \u00d6fundu\u00f0um Ing\u00f3. \u00c9g og Haffi allavega.<\/p>\n<p>F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu l\u00ed\u00f0ur m\u00e9r seint \u00far minni. Ekki svo a\u00f0 skilja a\u00f0 neitt merkilegt hafi gerst. \u00dea\u00f0 var bara \u00feetta kv\u00f6ld sem breytti samskiptum okkar vi\u00f0 Mill\u00fd varanlega. \u00dea\u00f0 hlaut au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 koma a\u00f0 \u00fev\u00ed en \u00fea\u00f0 var samt svol\u00edti\u00f0 s\u00e1rt.<\/p>\n<p>Klukkan var a\u00f0 ganga 9. Vi\u00f0 Ing\u00f3 s\u00e1tum vi\u00f0 bor\u00f0stofubor\u00f0i\u00f0 og p\u00e6ldum \u00ed gegnum st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i 212, (best a\u00f0 lj\u00faka \u00feeim fjandans hryllingi af fyrir helgi) Haffi var r\u00e9tt a\u00f0 koma inn og Mill\u00fd sat \u00ed s\u00f3fanum inni \u00ed stofu, horf\u00f0i \u00e1 fr\u00e9ttirnar og reykti. \u00deegar st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0in var fr\u00e1 var helgin byrju\u00f0 og \u00e9g var \u00f3endanlega gla\u00f0ur. Vi\u00f0 \u00e1ttum eftir verkefni \u00ed \u00f6\u00f0rum f\u00f6gum en \u00feau myndum vi\u00f0 hrista \u00feau fram \u00far erminni. \u00dea\u00f0 var bara st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0in sem alltaf l\u00e1 \u00e1 okkur eins og mara. Kannski var \u00fea\u00f0 \u00feessvegna sem m\u00e9r fannst Ing\u00f3 ekki hafa neina afs\u00f6kun til a\u00f0 vera ekki fullkomlega hamingjusamur \u00feegar vi\u00f0 loksins vorum b\u00fanir. En \u00fea\u00f0 var stutt \u00ed f\u00fdluna \u00ed honum. \u00deegar vi\u00f0 komum inn \u00ed stofu var Haffi a\u00f0 nudda t\u00e6rnar \u00e1 Mill\u00fd og \u00fea\u00f0 f\u00f3r greinilega \u00ed taugarnar \u00e1 Ing\u00f3. Hann sag\u00f0i a\u00f0 v\u00edsu ekkert en \u00e9g s\u00e1 \u00feyngja yfir honum.<\/p>\n<p>Fr\u00e9ttat\u00edmanum var a\u00f0 lj\u00faka me\u00f0 fr\u00e9tt af n\u00fdju b\u00f3luefni vi\u00f0 sjaldg\u00e6fum sj\u00fakd\u00f3mi \u00ed f\u00edlum. Efni\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0 reynt \u00ed d\u00fdragar\u00f0i \u00e1 Sp\u00e1ni.<br \/>\n\u201cHey! Ing\u00f3. \u00deetta er d\u00fdragar\u00f0urinn sem vi\u00f0 sko\u00f0u\u00f0um \u00ed sumar.\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd. \u201cSj\u00e1\u00f0u. \u00deetta er sami f\u00edllinn, er \u00fea\u00f0 ekki.\u201d<br \/>\n\u201cJ\u00fa, svei m\u00e9r \u00fe\u00e1\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3 og brosti.<br \/>\n\u201cDj\u00f6full var gaman!\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd og Ing\u00f3 kinka\u00f0i kolli til sam\u00feykkis. \u201cJ\u00e1, eiginlega,\u201d sag\u00f0i hann sposkur og vi\u00f0 Haffi \u00f6fundu\u00f0um hann af \u00f6llu hjarta af \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa veri\u00f0 einn me\u00f0 Mill\u00fd \u00e1 fjarl\u00e6gri str\u00f6nd. H\u00f6f\u00f0um margheyrt s\u00f6gurnar \u00far fer\u00f0inni. S\u00f6guna af \u00fev\u00ed \u00feegar \u00feau l\u00f6g\u00f0u b\u00edlnum \u00ed vegkanti og \u00e1lpu\u00f0ust f\u00f3tgangandi inn \u00ed l\u00edti\u00f0 fjalla\u00feorp um mi\u00f0ja n\u00f3tt. Villtust og \u00feurftu a\u00f0 vekja \u00feorpsb\u00faa, sem t\u00f6lu\u00f0u ekki eitt or\u00f0 \u00ed ensku, til a\u00f0 f\u00e1 hj\u00e1lp vi\u00f0 a\u00f0 finna b\u00edlinn. S\u00f6guna af \u00fev\u00ed \u00feegar m\u00f3torhj\u00f3lagengi elti Ing\u00f3 b\u00e6jarenda \u00e1 milli vegna einhvers misskilings. Ing\u00f3 ger\u00f0i a\u00f0 v\u00edsu l\u00edti\u00f0 \u00far \u00f3gurleika \u00feessara sp\u00e6nsku t\u00f6ffara en fr\u00e1s\u00f6gn Mill\u00fdar var sveipu\u00f0 mun \u00e6vint\u00fdralegri bl\u00e6.<\/p>\n<p>\u201cHver \u00e6tlar a\u00f0 panta pizzu?\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd og Ing\u00f3 rauk \u00ed s\u00edmann. Pizza var or\u00f0inn fastur li\u00f0ur \u00e1 f\u00f6studagskv\u00f6ldum og \u00f3\u00fearfi a\u00f0 spyrja hva\u00f0a \u00e1legg vi\u00f0 vildum. Vi\u00f0 veltum fyrir okkur hvernig vi\u00f0 \u00e6ttum a\u00f0 verja kv\u00f6ldinu. Leigja v\u00edde\u00f3sp\u00f3lu? E\u00f0a spila Risk?<br \/>\n\u201cEr ekki or\u00f0i\u00f0 langt s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 h\u00f6fum fari\u00f0 \u00ed b\u00e6inn \u00e1 f\u00f6studagskv\u00f6ldi? Hvernig v\u00e6ri a\u00f0 skreppa a\u00f0eins \u00e1 r\u00fantinn?\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd. H\u00fan st\u00f3\u00f0 upp \u00far s\u00f3fanum og teyg\u00f0i sig svo rau\u00f0 peysan lyftist upp fyrir naflann og stinnir magav\u00f6\u00f0var bl\u00f6stu vi\u00f0.<br \/>\n\u201cMill\u00fd, \u00fe\u00fa ert vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slega sex\u00fd \u00ed \u00feessari peysu\u201d sag\u00f0i Haffi og augnar\u00e1\u00f0 hans smaug undir belti\u00f0 og ofan \u00ed gallabuxurnar hennar. H\u00fan hl\u00f3 og fleyg\u00f0i fallega d\u00f6kkbr\u00fana h\u00e1rinu s\u00ednu aftur fyrir axlir me\u00f0 \u00feokkafullri sveiflu.<br \/>\n\u201cGetur\u00f0u ekki hugsa\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0ru en tittlingnum?\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3 eiturf\u00fall.<br \/>\n\u201cSlappa\u00f0u af ma\u00f0ur!\u201d sag\u00f0i Haffi. \u201cJ\u00fa, \u00e9g v\u00e6ri alveg til \u00ed a\u00f0 fara \u00e1 r\u00fantinn.\u201d b\u00e6tti hann vi\u00f0 og m\u00e6ndi \u00e1 Mill\u00fd.<br \/>\n\u201cTil hvers?\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3<br \/>\n\u201cK\u00edkja \u00e1 flott brj\u00f3st\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd glettnislega.<br \/>\n\u201cV\u00fa\u00fa\u00fa! Hefur\u00f0u gaman af brj\u00f3stum?\u201d sag\u00f0i \u00e9g<br \/>\n\u201cBara a\u00f0 horfa \u00e1 \u00feau sag\u00f0i Mill\u00fd. M\u00e9r s\u00fdnist n\u00fa \u00e1 \u00f6llu a\u00f0 Ing\u00f3 g\u00e6ti haft gaman af a\u00f0 sj\u00e1 brj\u00f3st.\u201d<br \/>\n\u201c\u00c9g hef\u00f0i gaman af a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1kve\u00f0in brj\u00f3st\u201d sag\u00f0i Haffi og horf\u00f0i greddulega \u00e1 Mill\u00fd.<br \/>\n\u201cJ\u00fa visshh!\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd.<br \/>\n\u201cDj\u00f6s perri getur\u00f0u veri\u00f0!\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3 og br\u00fanin \u00e1 honum l\u00e9ttist ekki hi\u00f0 minnsta \u00feegar Haffi spur\u00f0i hva\u00f0 v\u00e6ri eiginlega langt s\u00ed\u00f0an hann hef\u00f0i fengi\u00f0 a\u00f0 r\u00ed\u00f0a.<br \/>\n\u201c\u00c9g \u00e6tla ekki a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00ednar r\u00ed\u00f0ingar fyrir framan hana. Me\u00f0 fullri vir\u00f0ingu!\u201d sag\u00f0i hann sn\u00fa\u00f0ugt. Mill\u00fd greip fyrir eyrun.<br \/>\n\u201c\u00c9g skal ekki hlusta\u201d sag\u00f0i h\u00fan og veltist um af hl\u00e1tri \u00feegar Ing\u00f3 kasta\u00f0i \u00ed hana p\u00fa\u00f0a.<br \/>\nDyrabjallan hringdi og Ing\u00f3 f\u00f3r fram a\u00f0 s\u00e6kja pizzuna.<\/p>\n<p>\u201cHaffi. \u00c9g held a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e6ttir a\u00f0 l\u00e1ta \u00fea\u00f0 vera a\u00f0 dj\u00f3ka svona vi\u00f0 mig fyrir framan Ing\u00f3. Hann tekur \u00feetta greinilega n\u00e6rri s\u00e9r,\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd \u00e1 me\u00f0an Ing\u00f3 var frammi.<br \/>\n\u201cBlessu\u00f0 g\u00f3\u00f0a, \u00feetta er bara \u00ed n\u00f6sunum \u00e1 honum\u201d sag\u00f0i Haffi.<br \/>\n\u201cNei, \u00fea\u00f0 held \u00e9g ekki\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd \u201c\u00cd alv\u00f6ru Haffi, \u00e9g \u00feekki Ing\u00f3 betur en nokkur annar og \u00feetta kemur eitthva\u00f0 illa vi\u00f0 hann. \u00dea\u00f0 er \u00f3\u00fearfi a\u00f0 ergja hann.\u201d Ing\u00f3 kom inn me\u00f0 pizzuna og Haffi sat \u00e1 s\u00e9r. Mill\u00fd t\u00e6tti af s\u00e9r brandara yfir pizzunni og Ing\u00f3 hl\u00f3 ekki minna en vi\u00f0 Haffi. Augnablik var eins og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 r\u00e6tast \u00far kv\u00f6ldinu.<\/p>\n<p>\u201cEigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 fara \u00ed b\u00e6inn?\u201d sag\u00f0i Haffi \u00feegar Pizzan var upp\u00e9tin.<br \/>\n\u201cFari\u00f0 \u00fei\u00f0. \u00c9g nenni ekki me\u00f0\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3 og f\u00f3r fram \u00ed eldh\u00fas. \u00dea\u00f0 var eitthva\u00f0 \u00ed svip hans og m\u00e1lr\u00f3mi sem ger\u00f0i okkur lj\u00f3st a\u00f0 \u00fea\u00f0 var eitthva\u00f0 miki\u00f0 a\u00f0 hj\u00e1 honum. Mill\u00fd \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 fara fram \u00e1 eftir honum en \u00e9g stoppa\u00f0i hana.<br \/>\n\u201cNei. L\u00e1ttu mig fara,\u201d sag\u00f0i \u00e9g, \u201c\u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 betra.\u201d<\/p>\n<p>Ing\u00f3 sat inni \u00ed eldh\u00fasi og rei\u00f0in sau\u00f0 \u00ed honum.<br \/>\n\u201cHva\u00f0 er a\u00f0?\u201d sag\u00f0i \u00e9g<br \/>\n\u201cEkkert!\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3 me\u00f0 samanklemmdar varir.<br \/>\n\u201cIng\u00f3 l\u00e1ttu ekki svona, \u00e9g veit a\u00f0 \u00fea\u00f0 er eitthva\u00f0 a\u00f0.\u201d<br \/>\n\u201c\u00dea\u00f0 er ekkert a\u00f0. \u00dea\u00f0 fer bara \u00ed taugarnar \u00e1 m\u00e9r a\u00f0 h\u00fan skuli alltaf vera me\u00f0. Stundum finnst m\u00e9r \u00e9g ekki geta anda\u00f0. Og svo hvernig Haffi l\u00e6tur utan \u00ed henni.\u201d<br \/>\n\u00dea\u00f0 var alveg satt. \u00dea\u00f0 var \u00f3\u00fearfi af Haffa a\u00f0 l\u00e1ta hann sj\u00e1 \u00fea\u00f0. \u00c9g get svosem vel skili\u00f0 Haffa. Au\u00f0vita\u00f0 langa\u00f0i hann a\u00f0 sofa hj\u00e1 Mill\u00fd. Mig langa\u00f0i \u00fea\u00f0 reyndar l\u00edka. En Ing\u00f3 var n\u00fa einu sinni vinur okkar.<\/p>\n<p>\u201c\u00dea\u00f0 er ekkert \u00e1 milli hennar og Haffa. Hann l\u00e6tur bara svona\u201d sag\u00f0i \u00e9g<br \/>\n\u201c\u00deetta sn\u00fdst ekkert bara um \u00fea\u00f0. M\u00e9r finnst bara \u00fer\u00fagandi a\u00f0 hafa hana alltaf \u00ed eftirdragi. \u00c9g kann t.d. ekki vi\u00f0 a\u00f0 reyna vi\u00f0 stelpur fyrir framan hana og svo finnst m\u00e9r \u00feetta bara \u00f3\u00fe\u00e6gilegt. Af hverju getur h\u00fan ekki bara veri\u00f0 me\u00f0 vinkonum s\u00ednum um helgar?\u201d<br \/>\n\u201cIng\u00f3. Vi\u00f0 ver\u00f0um \u00f6ll svekkt ef \u00fe\u00fa kemur ekki me\u00f0.\u201d<br \/>\n\u201cVeistu \u00fea\u00f0, m\u00e9r er bara fokkings sama. \u00c9g nenni \u00feessu ekki.\u201d \u00dea\u00f0 var greinilegt a\u00f0 Ing\u00f3 var alvara.<br \/>\n\u201cIng\u00f3. Komdu me\u00f0 n\u00fana. Ger\u00f0u \u00fea\u00f0. Bara til a\u00f0 skemma ekki kv\u00f6ldi\u00f0. Svo anna\u00f0 kv\u00f6ld skulum vi\u00f0 detta \u00ed \u00fea\u00f0 og \u00fe\u00e1 t\u00f6kum vi\u00f0 hana ekki me\u00f0. \u00c9g lofa \u00fev\u00ed.\u201d \u00dea\u00f0 var\u00f0 \u00far a\u00f0 hann kom me\u00f0.<\/p>\n<p>\u201cF\u00f6rum \u00e1 m\u00ednum b\u00edl, hann er sk\u00e1rri en druslan hans Kidda\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd \u00e1 lei\u00f0inni \u00fat.<br \/>\n\u201c\u00c9g skal keyra\u201d sag\u00f0i Haffi.<br \/>\n\u201cEr ekki best a\u00f0 Mill\u00fd keyri? \u00deetta er hennar b\u00edll\u201d sag\u00f0i \u00e9g.<br \/>\n\u201c\u00c9g kem EKKI me\u00f0 ef h\u00fan ver\u00f0ur vi\u00f0 st\u00fdri\u00f0\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3.<br \/>\n\u201cHva\u00f0 er a\u00f0\u00f0\u00e9r mar?\u201d<br \/>\n\u201cH\u00fan er st\u00f3rh\u00e6ttuleg!\u201d<br \/>\n\u201cEr ekki allt \u00ed lagi me\u00f0 \u00feig Ing\u00f3 minn? \u00dea\u00f0 er n\u00fa ekki eins og \u00fe\u00fa s\u00e9rt neitt \u00f3vanur \u00fev\u00ed a\u00f0 sitja \u00ed b\u00edl hj\u00e1 m\u00e9r.\u201d Sag\u00f0i Mill\u00fd og hl\u00f3<br \/>\n\u201cKiddi getur eki\u00f0\u201d sag\u00f0i Ing\u00f3 og f\u00fdlan lak af honum.<br \/>\n\u201cKommon Ing\u00f3 vert\u00b4 ekki svona gr\u00f6mp\u00fd. \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 tsjilla me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00feegar \u00fe\u00fa l\u00e6tur svona\u201d sag\u00f0i Mill\u00fd<br \/>\n\u201cHva\u00f0 er a\u00f0 \u00fe\u00e9r manneskja! Getur\u00f0u ekki tala\u00f0 \u00edslensku!?!\u201d hreytti Ing\u00f3 \u00fat \u00far s\u00e9r.<br \/>\nMill\u00fd hl\u00f3. \u201cM\u00e6l manna heilastur Ing\u00f3lfr landn\u00e1msma\u00f0r. V\u00e9r munum m\u00e6la \u00e1 gullaldartungu \u00ed \u00f6kufer\u00f0 \u00feessari.\u201d Haffi t\u00f3k hana \u00e1 or\u00f0inu og \u00feau t\u00f6lu\u00f0u \u00e1 fornm\u00e1li \u00fea\u00f0 sem eftir var kv\u00f6ldins. \u00dea\u00f0 var reyndar mj\u00f6g fyndi\u00f0 og \u00e9g reyndi a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt en fann a\u00f0 Ing\u00f3 lei\u00f0 illa og naut \u00feess ekki sem skildi. Hann pilla\u00f0i st\u00f6\u00f0ugt \u00e1 Mill\u00fd og \u00fe\u00f3tt h\u00fan virtist ekki taka eftir \u00fev\u00ed f\u00e9kk \u00fea\u00f0 d\u00e1l\u00edti\u00f0 \u00e1 okkur Haffa. Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00f3venju snemma heim.<\/p>\n<p>\u201cDj\u00f6full er Ing\u00f3 t\u00e6pur ma\u00f0ur\u201d sag\u00f0i Haffi \u00feegar \u00e9g skutla\u00f0i honum heim upp \u00far mi\u00f0n\u00e6tti.\u201c\u00c9g meina, hvernig hann l\u00e9t vi\u00f0 Mill\u00fd \u00ed kv\u00f6ld. Hann \u00e1 vi\u00f0 eitthvert alvarlegt vandam\u00e1l a\u00f0 str\u00ed\u00f0a drengurinn.\u201d<br \/>\n\u201c\u00c9g er ekki viss um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 hann. \u00c9g held a\u00f0 vandam\u00e1li\u00f0 s\u00e9 hj\u00e1 henni\u201d sag\u00f0i \u00e9g.<br \/>\n\u201cN\u00fa?!\u201d<\/p>\n<p>\u201cJ\u00e1. \u00deetta er skr\u00fdti\u00f0 me\u00f0 hana Mill\u00fd. H\u00fan er n\u00e1tt\u00farulega fr\u00e1b\u00e6r. \u00ddkt skemmtileg og gaman a\u00f0 hafa hana me\u00f0 og allt \u00fea\u00f0. En \u00ed alv\u00f6ru, \u00fea\u00f0 er eins og h\u00fan vilji alls ekki sleppa hendinni af Ing\u00f3. Kannski er h\u00fan bara hr\u00e6dd vi\u00f0 a\u00f0 vera ein e\u00f0a svona hr\u00e6dd um a\u00f0 hann komi s\u00e9r \u00ed einhver vandr\u00e6\u00f0i.&#8220;<\/p>\n<p>Haffi virtist aldrei hafa hugsa\u00f0 \u00fat \u00ed \u00feann m\u00f6guleika svo \u00e9g h\u00e9lt \u00e1fram:<br \/>\n&#8222;\u00c9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00feessvegna sem h\u00fan heg\u00f0ar s\u00e9r eins og unglingur og er alltaf me\u00f0 okkur. Til a\u00f0 geta haft st\u00f6\u00f0ugt eftirlit me\u00f0 honum. \u00c9g skil Ing\u00f3 alveg. Held allavega a\u00f0 \u00e9g bryg\u00f0ist alveg eins vi\u00f0 ef h\u00fan v\u00e6ri mamma m\u00edn.\u201d<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er \u00feannig me\u00f0 sumt f\u00f3lk a\u00f0 \u00fea\u00f0 er einfaldlega fyndi\u00f0. Mill\u00fd var \u00feannig. Allt sem h\u00fan sag\u00f0i var\u00f0 einhvernveginn fyndi\u00f0 og ekki n\u00f3g me\u00f0 \u00fea\u00f0 heldur fannst henni l\u00edka allt sem vi\u00f0 hin s\u00f6g\u00f0um vera fyndi\u00f0. H\u00fan hl\u00f3 miki\u00f0. &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,3],"tags":[],"class_list":["post-1275","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allt-efni","category-sogur"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.5 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu - Birta<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu - Birta\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00dea\u00f0 er \u00feannig me\u00f0 sumt f\u00f3lk a\u00f0 \u00fea\u00f0 er einfaldlega fyndi\u00f0. Mill\u00fd var \u00feannig. Allt sem h\u00fan sag\u00f0i var\u00f0 einhvernveginn fyndi\u00f0 og ekki n\u00f3g me\u00f0 \u00fea\u00f0 heldur fannst henni l\u00edka allt sem vi\u00f0 hin s\u00f6g\u00f0um vera fyndi\u00f0. H\u00fan hl\u00f3 miki\u00f0. &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Birta\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"1999-07-11T11:43:37+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-08-28T09:15:53+00:00\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"9 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu\",\"datePublished\":\"1999-07-11T11:43:37+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-28T09:15:53+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/\"},\"wordCount\":1849,\"articleSection\":[\"Allt efni\",\"S\u00f6gur\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/\",\"name\":\"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu - Birta\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\"},\"datePublished\":\"1999-07-11T11:43:37+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-28T09:15:53+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/\",\"name\":\"Birta\",\"description\":\"Evukv\u00e6\u00f0i\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/birta\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu - Birta","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu - Birta","og_description":"\u00dea\u00f0 er \u00feannig me\u00f0 sumt f\u00f3lk a\u00f0 \u00fea\u00f0 er einfaldlega fyndi\u00f0. Mill\u00fd var \u00feannig. Allt sem h\u00fan sag\u00f0i var\u00f0 einhvernveginn fyndi\u00f0 og ekki n\u00f3g me\u00f0 \u00fea\u00f0 heldur fannst henni l\u00edka allt sem vi\u00f0 hin s\u00f6g\u00f0um vera fyndi\u00f0. H\u00fan hl\u00f3 miki\u00f0. &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/","og_site_name":"Birta","article_published_time":"1999-07-11T11:43:37+00:00","article_modified_time":"2017-08-28T09:15:53+00:00","author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"9 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu","datePublished":"1999-07-11T11:43:37+00:00","dateModified":"2017-08-28T09:15:53+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/"},"wordCount":1849,"articleSection":["Allt efni","S\u00f6gur"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/","name":"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu - Birta","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website"},"datePublished":"1999-07-11T11:43:37+00:00","dateModified":"2017-08-28T09:15:53+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/fostudagskvoldid-thegar-ingo-for-i-fylu\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"F\u00f6studagskv\u00f6ldi\u00f0 \u00feegar Ing\u00f3 f\u00f3r \u00ed f\u00fdlu"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/","name":"Birta","description":"Evukv\u00e6\u00f0i","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/8f1d4f3f379bbe5cdcc53fac0b01db372008abff552bfdb18e597a370bfe1d4b?s=96&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1275","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1275"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1275\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1424,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1275\/revisions\/1424"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1275"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1275"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/birta\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1275"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}