Um fordóma gegn ljóskum
Bubbi Morteins er geđveikt ţreyttur á fordómum gagnvart ljóshćrđum konum. Heldur ţví fram ađ t.d. Anna Mjöll hafi liđiđ fyrir ađ vera ljóshćrđ og sé vanmetin vegna ţess.
Af einhverjum ástćđum virđist ţađ alveg hafa fariđ fram hjá mörgum konum í kvikmynda og tónlistarbransanum ađ ljóst hár sé ţessi ógurlegi dragbítur á velgengni ţeirra. Má ţar nefna Gwyneth Paltrow, Meryl Streep, Reese Witherspoon, Jennifer Anistone, Kim Novak, Meg Ryan, Sharon Stone, Jodie Forster, Cameron Diaz, Eva Cassidy, Britney Spears, Katherine Jenkins og margar fleiri sem eflaust hafa alveg efni á ţví ađ skella sér á hárgreiđslustofu og láta lita háriđ á sér dökkt.
Bubbi nefnir ţetta klassíska dćmi af Marilyn Monroe sem sagt er ađ hafi veriđ vanmetin. Sú kona sýndi ósköp lítil tilţrif sem leikkona, sem stendur nú kannski í sambandi viđ ţau hlutverk sem hún fékk. Á móti má nefna tugi og jafnvel hundruđ leikkvenna sem hafa fengiđ prýđilega dóma ţrátt fyrir ljóst hár.
Vel má vera ađ sakleysislegt útlit standi í vegi fyrir konum sem sćkjast eftir valdastöđum. Kona í stjórnunarstöđu er líklegri til ađ slétta á sér háriđ og ganga í snytilegri drakt en ađ koma fram í gervi Önnu Mjallar. Sú ranghugmynd ađ samband sé milli útlits og gáfnafars og stjórnunarhćfileika er nefnilega nokkuđ útbreidd og bitnar alls ekki eingöngu á konum. Smávaxnir karlmenn međ sakleysisleg andlit eru t.d. fáséđir í valdastöđum.
Ekkert bendir ţó til ađ ljóst hár eđa önnur útlitseinkenni sem ţykja kynţokkafull dragi neitt úr vinsćldum kvenna í afţreyingargeiranum, sennilega hjálpar ljósa háriđ til ef eitthvađ er og ég efast um ađ Anna Mjöll fengi neitt meiri viđurkenningu ţótt hún liti út eins og Ragna Árnadóttir. Skýringin á ţví ađ Anna Mjöll er ekki eins vinsćl og Bubba finnst hún verđskulda hefur ekkert međ háriđ á henni ađ gera. Ekki frekar en ađ Bubbi er ofmetinn út á skallann á sér.
Tjásur
Góđ!
Posted by: Hulda H. | 19.07.2011 | 10:57:29
Ég er Paris Hilton trúar.
Posted by: Ţórleifur Ugluspegill Ásgeirsson | 19.07.2011 | 23:26:15