Ég vaknaði og leit í spegilinn. Hárið á mér leit út eins og ég væri með kóngulóarvef á hausnum. Ég burstaði tennurnar, lagaði kaffi og leit aftur í spegilinn. Nei, ástandið hafði ekki skánað. Halda áfram að lesa
Mánaðarskipt færslusafn fyrir:
Pappírarnir í máli Darra týndir!
Dómarinn er búinn að týna pappírunum!
Lögreglan byrjaði á því að eyða gögnum (fyrir slysni), klikkaði á því að senda inn pappíra svo Darri fengi lögmann, gleymdi því tvisvar sinnum eftir að ég fór fram á það gleymdi að boða hann til réttarhalds boðaði hann í rangan réttarsal og gleymdi að senda saksóknara ferilskrá bófanna. Og nú er dómarinn búinn að týna bótakröfunni og öllum skjölum sem henni fylgja. Halda áfram að lesa
Miðaldurskrísa
-Fårikål, hvað mér finnst ergilegt að hafa svona óreglulegar blæðingar, segi ég.
–Já? Ertu kannski komin á breytingaskeiðið? svarar Bjartur kindarlega.
-Varla. Nema ég hafi verið á breytingaskeiðinu frá því að ég hætti á pillunni. Þá var ég 17 ára svo það er nú ekki líklegt. Halda áfram að lesa