« Af dræsum og dándikonum í póltík | Forsíða | Kapítalismi er anarkismi »

Það getur verið stórhættulegt að pissa

Svona til nánari skýringar fyrir þá sem kann að bregða við að sjá myndina af honum Darra mínum á snjáldrinu:

Þau Dana María fóru ásamt tveimur íslenskum vinkonum Dönu á skemmtistað í Aabenraa föstudagskvöldið 7. maí. Stelpurnar töluðu við einhverja gesti þar inni, bara um daginn og veginn. Allt var í góðu og þau skemmtu sér vel en Darri sem er almennt hlédrægur og óvanur því að tjá sig á dönsku, blandaði sér ekki í samræðurnar.

Þegar staðurinn lokaði um fjögur leytið, ákváðu þau að fara á næturklúbb í nágrenninu. Nokkrir aðrir gengu sömu leið og þau, þeirra á meðal maður sem stelpurnar höfðu spjallað aðeins við inni á staðnum. Darri skaust inn í húsasund til að pissa og á meðan biðu stelpurnar og spjölluðu við umræddan mann. Á meðan Darri var að pissa kemur einhver ókunnugur gaur, veður beint að honum og ýtir við honum. Ekki beinlínis árás, bara svona bögg, segir Darri. Honum bregður eðilega enda átti þessi maður ekkert sökótt við hann en það eina sem honum dettur í huga að segja er 'hey dude!' í gremjutón. Gaurinn ýtir aftur við honum og Darri segist hafa tekið því það alvarlega að hann hafi hætt að pissa og ákveðið að koma sér burt. Gaurinn fer svo að kýla svona aðeins í hann og ber sig dólgslega. Darri segist ekki gera sér grein fyrir því hversu alvarlegt það var, eða hvort höggin lentu í andlitinu. Hann man bara að hann bar hendurnar fyrir sig og var mjög ráðvilltur, skildi ekki hvað manninum gekk til og vildi komast burt úr þessum fáránlegu aðstæðum.

Stelpurnar taka eftir því sem er að gerast og ein þeirra sér árásarmanninn taka um kverkarnar á Darra. Þær ganga á milli og segja Darra að hlaupa burt. Á sama tíma ber fleira fólk að. Gaurinn fer út úr portinu og fer að tala við þennan sem hafði gefið sig á tal við stelpunar og þeir rölta burt. Einn vegfarenda segir stelpunum að kalla á sig ef rugludallurinn komi aftur.

Stelpurnar finna Darra og þau halda áfram eftir götunni. Stuttu síðar kemur maðurinn sem hafði spjallað við stelpurnar hlaupandi með portgaurinn á hælunum. Spjallarinn vindur sér að Darra og segir að gaurinn sé litli bróðir sinn. Darri fær svo hnefa í smettið og allt í einu liggur hann í götunni. Hann gerir sér ekki grein fyrir því hversu mörg högg hann fékk í andlitið og þar sem hann hugsaði mest um að hylja á sér andlitið sá hann ekki mikið en hann segist hafa fundið spörk úr tveimur áttum í einu og stelpurnar staðfesta að þeir hafi báðir sparkað í hann m.a. í höfuðið á honum. Fleira fólk var á staðnum og hlýtur að hafa séð hvað gerðist.

Stelpurnar reyna að stöðva mennina en ráða ekkert við ástandið. Þær kallar til vegfarenda og maðurinn sem hafði boðið fram aðstoð sína kemur. Ein stelpnanna biður hann að hringja í lögguna. Fleira fólk drífur að og þá hætta árásarmennirnir. Þeir labba svo bara burt í rólegheitunum. Enginn stöðvar þá, enda almennt viðurkennt að það sé bara í verkahring löggunnar að elta glæpamenn. Bæði Darri og stelpurnar voru í uppnámi og datt ekki í hug á þeirri stundu að taka nöfn og símanúmer vitna. Árásarmennirnir voru horfnir, einnig maðurinn sem ætlaði að hringja í lögguna. Engin lögga var komin svo þau vita ekki enn hvort hann gerði það.

Dana hringdi í lögrugluna og tilkynnti líkamsrárás. Sá sem varð fyrir svörum sagði henni að fyrst mennirnir væru farnir gætu þeir ekkert gert, en þau skyldu fara upp á slysó og koma svo og kæra daginn eftir.

Darri eftir aras.jpg


Darri slapp tiltölulega vel frá þessari árás. Hann er allur marinn, með malbiksfar á vinstri hluta andlitsins og bólgnaði mikið. Andlitið á honum var nánast þrefalt hægra megin til að byrja með en hann lítur mun betur út núna. Hann hefur mikla verki, gengur á sterkum verkjalyfjum en það dugar ekki til. Hann hefur líka kastað upp. Hann er með skurð í andlitinu, kinnbeinsbrotinn (sem betur fer lokað brot svo hann losnar vonandi við að gangast undir lýtaaðgerð) og það eru margar grunnar sprungur í beininu kringum hægra augað. Mikil mildi að augað sjálft skuli hafa sloppið. Tennur losnuðu og hann á ennþá erfitt með bíta og tyggja. Önnur framtönnin er orðin grá og það verður hans fyrsta verk þegar hann kemur til Íslands í dag að panta tíma hjá tannlækni. Læknar segja honum að reikna með að verkirnir muni vara í margar vikur og að hann verði með doðabletti í andlitinu í heilt ár.

Á laugardeginum fór ég svo með Darra til að leggja fram ákæru og stelpurnar komu líka með til að gefa skýrslu. Ég fór með Darra inn til að túlka. Hann var ennþá í sjokki og átti svo erfitt með að lýsa upplifun sinni að það tók um 80 mínútur að fá söguna upp úr honum. Mér fannst löggugaurinn leggja fullmikla áherslu á það hvað og hversu mikið Darri hefði drukkið en hann tók því með þolinmæði hvað hann átti erfitt með að koma sögunni frá sér.

Ég átti nú ekki von á því að löggan hefði mikinn áhuga á málinu en þar sem ein stelpnanna hafði náð mynd af öðrum hrottanum var nú kannski smá smuga að fjölskyldan gæti gengið í málið sjálf. En viti menn! Löggufávitinn sem tók skýrslu af stelpunni, eyddi myndinni úr vélinni hennar.

Hvað í fjandanum á fólk að gera til að takmarka tækifæri ójafnaðarmanna til að berja mann og annan þegar löggan eyðir gögnum? Við þyrftum auðvitað ekkert að hugsa um það ef fólk liti almennt svo á að það bæri einhverja ábyrgð gagnvart meðbræðrum sínum og samfélagi. Ef ekki væri búið að telja fólki trú um að því komi ekki við hvað er að gerast fyrir framan nefið á því og gera þessa rotnu, ógeðslegu, yfirvaldsþjónkunarstofnun ómissandi, með einkavæðingu valdbeitingar, þá hefði það fólk sem varð vitni að atburðinum ekki bara látið mennina ganga burt óáreitta.

Ég varð þokkalega brjáluð þegar ég heyrði að myndinni hefði verið eytt. Ég setti mig í samband við lögregluna og bað um leiðbeiningar um það hvert ég ætti að snúa mér til að kæra þá. Ég fékk reyndar ekki upplýsingar um það en var sagt að þetta hefði verið óvart og það væri hægt að ná eyddum myndum aftur en auk þess væri verið að rannasaka málið.

Það kom mér þægilega á óvart að lögreglan rannsakaði þetta raunverulega. Þeir voru búnir að finna mennina á miðvikudagsmorgni. Sá sem sá um rannsóknina var virkilega almennilegur og ég get svarið það að ég fann votta fyrir trausti hjá mér. Hrottarnir játa að slagsmál hafi átt sér stað og málið fer væntanlega fyrir rétt í sumar. Ég er hinsvegar hrædd um að þeir fái sýndardóm, þar sem það er ekki á hreinu hvor þeirra (eða hvort það voru þeir báðir) sparkaði í andlitið á honum. Þessvegna erum við að leita að fleiri vitnum. Ég lét lögguna vita af því að ég ætlaði að auglýsa eftir vitnum á facebook og sá sem ég talaði við áleit það vera góða hugmynd. Ég vona bara að komi eitthvað út úr því.

Tjásur

En ömurlegt að heyra þetta, bróðir minn lenti í svipuðu á Laugaveginum fyrir nokkrum árum. Algerlega tilefnislaus árás, bara einhverjir hálfvitar að "skemmta sér". Vona sannarlega að þessir skíthælar sem lömdu Darra fái sína refsingu fyrir ódæðið. Batakveðjur til sonarins!

Drottinn minn hvurslags... Ég á bara ekki eitt einasta orð. Maður vonar bara að drengurinn nái sér og þessir ruddar fái skýr skilaboð frá dómskerfinu. Knús til Darra og ykkar allra.

Ég geri ráð fyrir að þetta hafi verið mistök hjá lögreglunni.
Myndirnar (xx.jpg) eru áfram á minniskortinu þótt skráin sem vísar á þær (F.A.T) sé skemmd eða hafi strokast út.
Gögnin hverfa fyrst þegar teknar eru nýjar myndir. Þá er skrifað yfir gömlu gögnin.
Gömlu myndirnar hverfa fyrst alveg þegar minniskortið er "formatterat".
Það er mjög erfitt að gera slíkt "óviljandi".
Geri þessvegna ráð fyrir að myndirnar séu ennþá til á minniskortinu þótt ekki sé hægt að lesa þær á venjulegan hátt.
Það á að vera hægt að lesa myndirnar af minniskortinu með sérstökum hugbúnaði sem getur lesið framhjá F.A.T. eða endurskapað F.A.T. skrána.
Margar Laptop tölvur eru med inbyggðan lesara fyrir minniskort sem hægt er að nota. En það þarf einnig sérstakan hugbúnað til að gera þetta.

Ég googlaði á "data recovery freeware" eða "FAT data Recovery and Unformat tool"

http://www.freebyte.com/filediskutils/#datarecovery
http://www.freewaredatarecovery.org/
etc.

Etv er hægt að fá hjálp við þetta hjá framköllunarþjónustum sem taka við stafrænum myndum.
Einnig eru til serhæfð fyrirtæki sem endurvinna tölvugögn af skemmdum tölvudiskum og minniskortum.

Það er hægt að ná í myndirnar aftur en þess gerist ekki þörf í þessu tilviki því löggan fann mennina sjálf. Það kom mér mjög á óvart, ég var alveg búin undir það að við fjölskyldan þyrftum að hafa uppi á þeim.

Ég trúi því að þetta hafi verið mistök, þótt ég hafi reyndar verið mjög skeptísk fyrst, komandi f´r alandi þar sem lögreglan notar einmitt þessa aðferð tila ð næra eigin spillaingaröfl. Það hefðu þó verið eðlileg viðbrögð hjá þeim sem eyddi myndinni að hafa samband við tæknideildina strax í stað þess að sgja bara úps, farið!

Lögreglan hér kemur mér þægilegaá óvart. Svo er bara að sjá hvernig dómskerfið stendur sig. Ég er almennt á því að refsingar þjóni litlum tilgangi en ofbeldismenn eru ekki samfélagshæfir og þeim þarf að kippa út úr samfélaginu og helst að veita þeim einhverskonar enduruppeldi.

Skrifa tjásu