Komin heim

Kom heim frá Íslandi í gott veður! Og Bjartur búinn að sjæna heimilið, þvo áklæðið af sófanum hvað þá annað og sjóða saman húsgagn sem hefur verið í henglum síðan ég flutti.

Anja var týnd. Hvorki Bjatur né Hulla höfðu séð hana í 3 daga. Við vorum hrædd um að hún hefði orðið fyrir bíl eða rebbi hefði náð í hana en hún kom heim í gærkvöld og hefur ekki farið út fyrir húsdyrnar síðan nema til að pissa.

Ætla út með naglaklippur og snyrta ponkulitla, sæta garðinn minn á morgun, EF veðrið verður gott.

Rauðvín í glasi, peysa á prjónunum, malandi kisa í fanginu á mér og Bjartur á leiðinni. Lífið er gott.

Best er að deila með því að afrita slóðina