Þórainn S. Andrésson tók þessar myndir á mótmælunum. Við gengum síðan að húsi Rögnu Árnadóttur. Hún kom út í glugga og talaði við okkur en hvort þetta hefur einhver áhrif á eftir að koma í ljós.

Mánaðarskipt færslusafn fyrir:
A piece of my heart
Hildigunnur klukkaði mig á facebook.
Ég tek oft þátt í svona netleikjum en þar sem eitt af því sem gerir mig að mér er tregða til að fara eftir uppskriftum, leyfi ég mér oft að breyta einhverju. Þessi leikur býður upp á óttalegt bull og ég hef ekki nægan aulahúmor fyrir það svo ég ákvað bara að gera þetta eftir mínu höfði. Halda áfram að lesa
Áttu arin?
Ég fer út á mánudaginn. Ef einhver sem les þetta á arinn, þá er ég með helling af góðu, þurru timbri sem ég þarf að losna við.Ég þarf á því að halda að koma mér burtu en núna þegar kemur í ljós að þeir eru byrjaðir að selja vatnsréttindin, þá finnst mér ég svona varla hafa rétt til þess. Halda áfram að lesa
Pikköpp
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/58571683113
Fjölskyldusamkoma hjá Borghildi
Út vil ek
Búin að bóka flug og undarlegt nokk, mér líður bara strax miklu betur. Óvissa getur verið skemmtileg að vissu marki en til lengdar skiptir máli að hafa þótt ekki sé nema eitt atriði varðandi framtíðina á hreinu. Ég er allavega að fara út um mánaðamótin, a.m.k. í smátíma og kannski lengur. Halda áfram að lesa
Appelsínuhúð
Einhverju sinni kom upp umræða um appelsínuhúð í mínum vinahóp. Aðal spjátrungurinn, maður sem skipti áreiðanlega oftar um bólfélaga en nærbuxur, yppti öxlum og sagðist aldrei hafa verið með konu með appelsínuhúð. Ég gat engan veginn lagt trúnað á að jafn víðriðinn maður hefði aldrei þreifað á ófögnuði af þessu tagi en þegar ég gekk á hann kom í ljós að þegar hann talaði um appelsínuhúð, þá átti hann við mörköggla á stærð við vínber. Halda áfram að lesa
6 orða meme handa byltingunni
Meme handa byltingunni:
Reis upp, barði búsáhöld, lagðist niður
Af hverju barnamyndir?
Hvað er fólk að reyna að segja með því að nota smábarnamyndir af sjálfu sér sem prófílmyndir á vefbókum eða facebook? Halda áfram að lesa
Hittum AGS
Hitti AGS gær ásamt Árna Daníel. Þetta var mikið froðusnakk.
Ingó tók myndina og eftir á fórum við þrjú og fengum okkur bjór saman. Kom í ljós að Ingó var orðinn of seinn með að skila inn ljósmyndum sem áttu að fara á sýningu í Miami. Var sko ekki einu sinni byrjaður að taka þær og eiginlega bara að leita að módeli.
Nújæja, við höfum svosem rætt möguleikann á því að ég pósi fyrir hann og það varð úr. Nóttin fór í tökur og myndvinnslu en hann náði að skila inn.
Fokk gaman að vinna með honum og nokkuð víst að við eigum eftir að vinna meira saman.
Afmælisgjöf
Mig vantar afmælisgjöf handa konunni minni, sagði kúnninn. Klukkuna vantaði 4 mínútur í 6 og frúin þegar komin heim.
Við ráðlögðum honum að kaupa góða nuddolíu. Fara svo heim og taka almennilega til, skipta á rúminu, láta renna í dekurbað fyrir konuna og enda rómantíska kvöldstund á því að gefa henni gott nudd.
Málið var í rauninni dautt þegar Spúnkhildur notaði orðalagið „dekra við“ og um leið og ég nefndi tiltekt, byrjaði hann að fikra sig í átt að dyrunum.
Demantar virka líka, kallaði Spúnkhildur á eftir honum.
Ég skal veðja að hann hefur farið niður í Blómálf og keypt pottaplöntu.
Uhhh!
Rifjaði upp hvers vegna ég henti viðbótinni „Are you interested“ út síðasta sumar.
Úrvalið hefur lítið breyst. Hvern á maður nú helst að skoða betur? Þennan sem er með prófílmynd af hundinum sínum? Þennan sem er með prófílmynd af sjálfum sér 3ja ára? Eða þennan sem er með prófílmynd af sjálfum sér og konunni sinni í faðmlögum?
Fann reyndar fallega lopapeysu á Y og klikkaði á ‘browse people like me’. Fékk upp vatnsgreiddan fermingardreng frá Aberdeen, feitan kana um fimmtugt, hest…
Prófaði enn eina ferðina að máta Braga Valdimar Skúlason inn í erótíska fantasíu, en það er það væri bara eitthvað svo sjúkt og rangt við að sænga hjá manni sem kann á greiðu.
Nornabúðin lokar
Nornabúðin lokar formlega um næstu mánaðamót. Fram að því er það sem eftir er af lagernum til sölu á kostnaðarverði og húsgögn, skreytingar, leirtau, veggtjöld og annað smálegt á því verði sem hver og einn getur greitt.
Ef einhver vill ráða mig sem málfarsráðunaut, sagnaþul eða hafa mig á launum við að gera það sem mér bara sýnist hverju sinni, er viðkomandi beðinn að hafa samband. Einnig ef einhver reyklaus einhleypingur sem hyggst slíta stjórnmálasambandi við Ísland, er á förum til Stavanger og vantar leigufélaga.
Inngróinn
-Skrýtið að hrífast af konu sem maður þekkir ekki nema í gegnum facebook og fjölmiðla en sannleikurinn er sá að ég hef gert mér erindi í búðina bara til að sjá þig og ég leita að þér á Austurvelli á laugardögum, sagði hann, og þótt hún sæi hann ekki í gegnum tölvuskjáinn og kæmi honum ekki fyrir sig, ímyndaði hún sér að hann væri lítil, úfin lopapeysa með döðluaugu og þykkar varir. Hún vissi að það gat ekki verið, því þá myndi hún eftir honum en hún ímyndaði sér það samt, því það var skemmtilegra þannig. Jafnvel þótt þykku varirnar og döðluaugun tilheyrðu allt annarri lopapeysu, sem hún vissi að hefði aldrei talað við hana í gegnum facebook, og jafnvel þótt sú hin sama lopapeysa væri af dramvarnarlegum ástæðum ekki inni í myndinni. Halda áfram að lesa
Vantar kött
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/54578888371
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/59232016147
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/56593792359
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/53405829145
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/55906403569
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/59101396629
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/67254638928
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/55309033533
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/71623255860
Mission accomplished
Kastljósið fjallar um AGS í kvöld.
Ég var búin að segja að ég gæti ekki tekið mér frí fyrr en almenningur væri búinn að fá almennilegar upplýsingar.
Þeir ætla að tala við mann sem er vel inni í málunum í kvöld og svo fremi sem það klikkar ekki, þá er ég frá og með 10 mínútum eftir að Kastljósi lýkur í kvöld, komin í pásu frá pólitík allavega fram að hádegi á fimmtudag.
Hver sem heyrir mig nefna Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eða Borgarahreyfinguna fram að því, er beðinn um að troða upp í mig óhreinni borðtusku.
Eymd
Ég fékk svar frá Kastljósinu.
Þeir sögðu já!
Þeir ætla að fjalla almennilega um AGS.
Ég er alveg glöð og allt það en einhvernveginn of útbrunnin til að njóta þess. Halda áfram að lesa



