Annir hjá tmd

Ég er farin að finna til með Grími. Manngarmurinn virðist bara alltaf vera í vinnunni. Allavega var einhver hjá tmd (sama ip-tala og sú sem Grímur notaði til að tjá sig á kerfinu mínu) farinn að skoða sápuóperuna mína upp úr kl 9 í gærmorgun og fór inn á hana reglulega allan daginn, alltl til 9:32 um kvöldið. Var svo kominn inn aftur kl 6:01 í morgun. Þessi mikla viðvera vekur spurningar um hvort Grímur sé með svefnpoka á starfsstöðinni. Sama ip tala kemur nefnilega stundum inn af og til alla nóttina líka en Grímur hefur líklega fengið frí frá næturvaktinni í nótt og hangið í tölvunni heima hjá sér í staðinn.

Nema skýringin sé sú að Grímur og kolllegar hans séu á vöktum við að runka sér yfir blogginu mínu, því ? Nei, það getur nú ekki verið. Líklega þarf ég að fá lyf gegn þessari vænisýki.

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Annir hjá tmd

  1. —————————–
    „just because you’re paranoid, it doesn’t mean they’re not out to get you“
    -philip k. dick

    Posted by: siggimus | 12.01.2009 | 9:46:08

     —————————–

    Væntanlega er ip-talan sem þú sérð s.k. gateway hjá Tölvumiðstöð dómsmálaráðuneytisins og þess vegna sjást allar tölvur sem tengjast netinu í gegnum tmd sem þessi tala. Þetta geta þess vegna verið starfsmenn hinna ýmsu lögregluembætta, ráðuneyta og fleiri stofnana, en alltaf sama talan…

    Posted by: HT | 12.01.2009 | 9:48:45

     —————————–

    Hey þetta er fyndið með ip dæmið… algjör snilld…….þú átt aðdáanda þar

    Posted by: Einar Bragi | 12.01.2009 | 13:25:05

     —————————–

    Djókið með þennan mann… þetta er örugglega Björn sjálfur… hver annar vinnur svona mikið í ráðuneytinu?

    Posted by: Siggadís | 12.01.2009 | 20:52:23

Lokað er á athugasemdir.