Hvað veit maður ekki?

Hún virti mig fyrir sér og spurði hvort ég væri ekki vinkona Stebba. Ég þekki engan Stebba og sagði henni það.
-Nú, varst það ekki þú sem komst einnu sinni með honum á fund hjá Sóló? sagði hún og ég kveikti auðvitað um leið.

Ég var eins og asni. Stefán tilheyrir mínum næstinnsta (og afskaplega fámenna) vinahring, þeim sem kemur næst á eftir fjölskyldunni en ég hafði ekki hugmynd um að hann væri kallaður Stebbi. Það sem meira er, það hefur aldrei hvarflað að mér. Væri samt rökrétt er það ekki? Eru ekki flestir Stefánar kallaðir Stebbar? Kannski er ekki aveg í lagi með mig.

Kannski er þetta alltaf svona. Kannski eru einhver grundvallaratriði sem maður veit ekki og hefur aldrei leitt hugann að. Og svo er spurning hvort slík grundvallaratriði skipta einhverju máli. Allavega finnst mér ótrúlegt að við Stefán værum neitt meiri vinir þótt ég kallaði hann Stebba.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Hvað veit maður ekki?

  1. _______________________________________________

    Já það er ekki von.

    Stundum bara fer fólk að kalla mann gælunofum þó svo að maður kynni sig með nafni. Þetta skeði einmitt í þessum félagsskap og nú er ég orðin Stebbi.

    Þetta er svo sem ekkert mál fyrir mér þar sem ég er kallaður Stebbi af æsku vinunum en alla tíð síðan Stefán.

    það er svo ótrúlega margt sem maður veit ekki.

    Posted by: Stefán | 20.09.2007 | 15:56:14

Lokað er á athugasemdir.