Frekja

Viku eða 10 dögum fyrir páska var ægilega fínum sportbíl lagt við Norðurstíginn, þannig að hann tók tvö stæði. Ég fann ygglibrúnina síga þegar ég sá hann en tók þá eftir því að eitt dekkið var sprungið. Ég hugsaði sem svo að eigandinn hlyti að hafa lent í vandræðum og væri væntanlegur á hverri stundu með nýtt dekk og myndi svo færa bílinn. Þar skjátlaðist mér.

Í meira en viku stóð þessi sami bíll þarna með sprungið dekk í tveimur stæðum. Ég átti nú frekar bágt með að trúa því að þetta væri einskær óheppni en það var auðvitað hugsanlegt að eigandinn hefði lent á sjúkrahúsi eða eitthvað annað hræðilegt komið fyrir.

Daginn fyrir páskafrí hafði bílstjórinn myndast til að færa bílinn í eitt stæði og líklega væri ég búin að gleyma þessu núna ef hann hefði haldið sig í einu stæði síðan en viti menn, á laugardaginn hafði hann bætt um betur og lagt bílnum alveg þvert svo nú tók hann ekki tvö stæði heldur þrjú! Bæði á sunnudag og mánudag stóð þessi sami bíll í þremur stæðum og ég held að sá maður sé vandfundinn sem heldur því fram að nóg sé af bílastæðum í miðbænum.

Ég hef enga trú á því lengur að þetta eigi sér „eðlilega“ skýringu. Bílstjórinn er einfaldlega frekjusnúður og ég vona að þessi snobbbíll hans bræði úr sér einhversstaðar utan þjónustusvæðis. Helst um miðja nótt, einmitt þegar hann er að elta dindilinn á sér til Trékyllisvíkur.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Frekja

  1. ——————————————————

    urr hvað ég þekki þetta vandamál. Eini mínusinn við að búa í miðbænum er einmitt þetta bílastæðadæmi og ekki hjálpa svona fífl!

    Posted by: hildigunnur | 10.04.2007 | 10:25:48

    ——————————————————

    fífl hjálpa aldrei.

    Posted by: inga hanna | 10.04.2007 | 12:44:41

    ——————————————————

    Ég myndi nú bara njóta eigin pirrings og rispa bíldrusluna, eða krota á hana formælingarnar.

    Posted by: Gillimann | 10.04.2007 | 23:29:05

    ——————————————————

    Ég get skilið skemmdarverk sem svar við ofbeldi og kúgun en maður rispar ekki bíl einhvers annars bara af því að hann er tillitslaus. Það er bara enginn klassi yfir því.

    Posted by: Eva | 11.04.2007 | 6:55:43

Lokað er á athugasemdir.