Tsssjúh!

Áður en ég fór í jólafrí sagði ég Búðarsveininum að ég ætlaði að nota tækifærið og taka út öll veikindi sem mætti búast við næsta árið fyrst ég væri heima í afslöppun hvort sem væri. Ég veiktist þó ekki fyrr en í gær og er búin að vera eins og draugur í dag. Hnerrandi draugur með hálsbólgu. Druslaðist ekki í vinnuna fyrr en um 11 leytið. Við Anna vorum búnar að plana skrabblkvöld en ég ákvað að fara frekar heim í bælið og ná þessu úr mér.

Fullt tungl í dag. Ég eyddi einu símanúmerinu enn úr gemsanum mínum. Það er ótrúlega árangursríkur smágaldur sem útheimtir hvorki þekkingu né viljastyrk.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

One thought on “Tsssjúh!

  1. ———————————————–

    Þetta er það sem gerist þegar maður leyfir sér að slaka á….. passaðu bara að ná þessu alveg úr þér – áður en þú ferð af stað.

    Kona með reynslu talar.

    Posted by: lindablinda | 4.01.2007 | 10:20:46

Lokað er á athugasemdir.