Teljarinn sýnir

Teljarinn á síðunni minni gefur ýmsar bráðskemmtilegar upplýsingar. T.d. hefur einhver fundið hana með því að biðja um eitthvað „offensive“. Hann (eða hún) hefur skoðað fullt af eldgömlum færslum en einhvernveginn segir mér svo hugur um að vonir hafi staðið til að finna eitthvað svolítið meira krassandi.

Svo er ríkisskattstjóri orðinn ástfanginn af mér. Ef hann bara vissi um satanískar fyrirætlanir mínar myndi hann sennilega verja tíma sínum til að skoða skattframtöl mín í staðinnn fyrir að hanga tímunum saman á blogginu. Eitt af mikilvægustu markmiðum mínum, fyrir utan þau að verða ríkt gamalmenni og fallegt lík, er nefnilega það að gera skattstofuna gjaldþrota. Ég ætla að byrja með því að fara með gömlu strigaskóna hans Darra í Kolaportið og selja þá á okurverði án þess að greiða krónu í skatt.

Ennfremur sýnir teljarinn að einhver hefur lent inni á síðunni með því að slá orðið „páfagaukurinn“ inn í leitarvél -og varið næstu 2 tímum til að skoða sápuna mína. Helvítið er kannski ekki alslæmt, allavega virðist hann afla mér aðdáenda.

Best er að deila með því að afrita slóðina