Systkina (af hverju er það ekki stafsett systkyni?) tvíeykið hélt upp á afmælin sín í gær. Fyrst með fjölskylduvænu kaffiboði síðdegis og svo var partý um kvöldið. Halda áfram að lesa
Mánaðarskipt færslusafn fyrir:
Spúnkhildur að flytja
Spúnkhildur er að flytja. Var búin að tæma herbergið sitt þegar ég kom heim í dag. Ég er að því leyti glöð að Öryrkinn hefur farið æ meira í taugarnar á mér síðustu vikurnar. Það er mér hulin ráðgáta hvað þessi skemmtilega kona sér við hann. Halda áfram að lesa
Bösl í hösli
Þegar letin kemst á það stig að maður nennir ekki einusinni að fróa sér er orðið tímabært að gera eitthvað í málinu. Ég fór inn á einkamal.is og auglýsti eftir skuldbindingarlausum skyndikynnum. Viðbrögðin urðu mun betri en þegar ég auglýsti eftir nothæfum eiginmanni. Að vísu nokkuð margir giftir og graðir en líka nokkrir í svipaðri aðstöðu og ég sjálf. Ég tók fram að ég gerði skýlausa kröfu um að viðfang væntanlegra skyndikynna væri áhorfanlegt og ekki meira að umfangi en svo að ég næði utan um það. Halda áfram að lesa
Búllmundur elskar mig ekki
Búllmundur vill ekki ráða mig sem súludansara. Ég skil ekkert í honum. Eins og gekk nú ljómandi vel hjá mér þessa einu vakt sem ég tók áður en ég veiktist. Mér skilst að það standi í einhverju sambandi við það hvað útlensku stelpurnar eru óánægðar með kaup og kjör. Halda áfram að lesa
Til eignar eða afnota
Nú er ég löngu búin að jafna mig eftir hálsbólgu, berkjubólgu og geðbólgu sumarsins en mér leiðist ennþá. Halda áfram að lesa