Bleikt klám

Ég hef verið kölluð klámsinni, af því að ég er mótfallin ritskoðun. Af því að þótt mér kunni að þykja einhver list og dægurmenning vond og lágkúruleg, finnst mér tjáningarfrelsið of dýrmætt til að fórna því á altari smekklegheita og siðsemi.

Það er hinsvegar sitthvað ritskoðun og ritstjórn. Sumu efni hæfa bara ekkert hvaða miðlar sem er og klám er meðal þess efnis sem maður á að geta fulla stjórn á hvort maður verður var við eða ekki. Það er þessvegna sem dagblöð og aðrir almennir fréttamiðlar birta ekki hópreiðarsögur og innanpíkumyndir.

Undarlegt nokk virðist þessi ritstjórnarstefna þó eingöngu gilda um blátt klám. Það er hinsvegar orðið fátítt að ég opni íslenskan netmiðil, án þess að við mér blasi bleikt klám af einhverjum toga. Fréttir af einkalífi fólks sem hefur unnið sér það til frægðar að vera duglegt að djamma. Myndir af þessu sama fólki og tenglar á fróðleiksmola af bleikt.is. Ég held að Smugan sé eini miðillinn sem ég skoða reglulega sem hlífir mér við áreiti af þessu tagi.

Þeir sem hafa áhuga á þessu efni hafa greiðan aðgang að því og ekki vil ég að bleikt klám verði bannað frekar en blátt. Mér þætti hinsvegar við hæfi að fréttamiðlar sem vilja láta taka sig alvarlega, slepptu því að troða þessum hroða upp á lesendur sína.

Styðjum frelsið!

Ég hvet alla sem er annt um heilbrigði þjóðarinnar til að kjósa Frjálslyndaflokkinn í komandi alþingiskosningum. Við Íslendingar erum gífurlega hraust þjóð (og harðdugleg) og það gengur auðvitað ekki að við séum að flytja inn í stórum stíl pestargemlinga frá öðrum heimshlutum. Halda áfram að lesa

Þarf ég limágræðslu?

penisÉg var rétt í þessu að opna tölvupóstinn minn sem ég hafði ekki litið á í 3 daga. Í pósthólfinu vor 15 skilaboð, öll frá fyrirtæki sem síðustu vikur hefur oft á dag sent mér bréf þess efnis að ég eigi kost á að kaupa eitthvert töfralyf sem stækkar typpi og eykur stinningu. Ég hef aldrei svarað slíkum pósti heldur eytt honum jafn óðum enda hef ég ekki typpi (hvað þá typpi sem ég vil láta stækka) og þekki engan og hef aldrei þekkt neinn sem mér finnst þurfa á slíku töfraefni að halda. Halda áfram að lesa