Hverskonar pönkarar stjórna þessu réttarkerfi?

Ég er hneyksluð. Ekki í fyrsta, annað eða tíunda sinn sem ég er hneyksluð á vinnubrögðum réttarkefisins.

Á Geir Haarde skilið að fá á baukinn?
Fokk já, hann á það skilið, biggtæm.

En halló! Hversu mikið sem einhver verðskuldar að fá á baukinn, þá á hann samt heimtingu á réttlátri málsmeðferð.

Það er Alþingi sem ákærir í málinu og Alþingi fór svo heimskulega að ráði sínu að breyta lögunum rétt áður en ákæran var gefin út, nokkru eftir að ákveðið hafði verið að ákæra manninn. Hvort sem manni er vel eða illa við Geir Haarde þá er hann nú samt manneskja, manneskja sem á rétt á sanngjarni málsmeðferð, hvort sem hann verðskuldar það eða ekki. Ég hélt að málinu yrði vísað frá út á það. Ég hélt að Geir fengi allavega ofurlítið sanngjarnari meðhöndlun en t.d. nímenningarnir og sonur minn. Ekki svo að skilja að hann eigi meiri heimtingu á því, en það að brotið sé á aðgerðasinnum réttlætir ekki það að brjóta á stjórnmálamönnum. En nei, vanhæfni þessa andskotans réttarkerfis virðist ekki eiga sér nein takmörk.

Gjörningurinn hefur verið réttlættur með því að hann hafi ekki áhrif á málsmeðferðina gagnvart Geir. Það er í fyrsta lagi umdeilanlegt en þó svo að það væri gulltryggt, eru það engin rök í málinu. Sé þetta leyfilegt þá erum við þar með að bjóða heim hættunni á því að einhver minni bógur en Geir verði fyrir því að lögum sé breytt eftir á og kannski til verulegs skaða fyrir þann sem í hlut á.

Mannréttindi voru ekki fundin upp fyrir góða fólkið, heldur fyrir þá sem yfirvöld líta á sem vonda fólkið. Landsdómur er sérdómstóll með mjög sérhæft hlutverk og mun aldrei reyna mjög mikið á hann. Hvert fordæmi hefur því meira gildi en ella og því sérstök ástæða til þess að vanda til verka og gefa borgurunum enga ástæðu til þess að vantreysta dómstólnum. Vinnubrögð Alþingis voru einfaldlega óhæfa og það breytir því ekkert þótt sú óhæfa hafi ekki haft afleiðingar. Þessvegna hefði átt að vísa þessu máli frá og láta æstan skrílinn um að refsa Alþingi fyrir að klúðra málinu.

 

Share to Facebook

One thought on “Hverskonar pönkarar stjórna þessu réttarkerfi?

  1. ————————-

    Þeim til varnar vil ég benda á að þetta er í fyrsta sinn sem Landsdómur kemur saman.

    Posted by: Elías Halldór | 6.09.2011 | 21:57:52

    ————————-

    Elías finnst þér ástæða til að verja þetta?

    Ég er ekki hrifnari af Geir en þú sjálfur en andskotakornið, alþingi sem löggjafarvald lagar lögin svo þau falli betur að þörfum þess sem ákæruvalds. Finnst þér þetta í lagi?

    Posted by: Eva | 6.09.2011 | 22:19:53

    ————————-

    Afsakið að ég spurji einsog fáfróður þöngulhaus… en hvað er málið? Hvað gerðist?

    Posted by: Þórður Ingvarsson | 7.09.2011 | 0:33:28

    ————————-

    Eftir efnahagshrunið ákærði alþingi Geir Haarde fyrir að stórkostlega vanrækslu á ráðherraábyrgð. Þetta er í fyrsta sinn sem mál fer fyrir landsdóm. Einum eða tveimur dögum áður en honum var birt stefnan var lögum um landsdóm breytt. Á mánudag var frávísunarkröfu hafnað. Auk þurfti maðurinn að margítreka kröfur sínar um að honum yrði skipaður verjandi og það er fleira í þessu máli athugavert.

    Þessi óhæfa, að breyta lögunum eftir að það liggur fyrir að mál verði höfðað, hefur verið réttlætt með því að lagabreytingarnar komi sér ekki illa fyrir Geir. Það skiptir bara ekki minnsta máli. Þetta snýst ekki bara um það hvort verið er að pönkast á Geir, heldur líka hvað yfirvöld geta leyft sér gagnvart þeim sem þurfa að díla við réttarkerfið. Ef þetta má, þá getum við allt eins reiknað með að næst breyti menn lögum um meðferð sakamála, eftir að búið er að ákæra einhver nóboddý.

    Posted by: Eva | 7.09.2011 | 6:37:45

    ————————-

    Það er margt fleira athugavert við þetta mál en það er þó ekkert nýtt að mál dragist óhóflega á langinn, að ákæruefni séu óljós, að sakborningar og verjendur fái ekki að sjá málsgögn og að saksóknari eða dómari sé vanhæfur. Þessháttar afglöp eru bara fastaliður. En að lögum sé breytt eftir að mál er farið af stað, það er held ég áreiðanlega nýtt.

    Posted by: Eva | 7.09.2011 | 6:44:07

Lokað er á athugasemdir.