Fréttir af máli mannsins sem er ákærður fyrir að hafa banað barni sínu, með því að hrista það, vekja margháttaðan óhugnað. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Menning, listir og fjölmiðlar
Vigdís ósátt við fjölmiðla
Formaður fjárlaganefndar, Vigdís Hauksdóttir, virðist ekki par hrifin af því að sjá á einum stað þau ummæli sjálfar sín sem mesta athygli hafa vakið síðan hún komst á þing. Halda áfram að lesa
Blaðamannaverðlaunin afhent
Blaðamannaverðlaun Evu Hauksdóttur voru afhent í fyrsta sinn sunnudagskvöldið 22. desember. Þrír blaðamenn hlutu viðurkenningar að þessu sinni. Halda áfram að lesa
Hvor fréttin er röng?
Þeir stóðu sig vel
Þeir stóðu sig vel við erfiðar aðstæður. Kastljóssmenn. Halda áfram að lesa
Hólmsteinn, lækin og feministarnir
Kæri Hannes Hólmsteinn
Ég fyrirlít sumar pólitískar skoðanir þínar. Það er ekkert persónulegt. Ef ég sæi þig standa við stöðumæli og snúa vösunum út, myndi ég rétta þér tíkall. Ég fyrirlít samt brauðmolakenninguna, hugmyndina um einkavæðingu auðlinda, stóriðjustefnu og margt fleira sem pilsfaldakapítalistar boða. Halda áfram að lesa
Til hamingju með Kjarnann
Kjarninn lofar góðu.
Engar munnmælasögur, því síður rassmælasögur. Ekki yfirborðslegar smelludólgafréttir heldur vönduð, ítarleg umfjöllun.
Og frábær árangur að fá yfirvaldið upp á móti sér strax með fyrsta tölublaði. Endilega dreifum þessum leyniupplýsingum sem víðast.
Sannleikurinn er hættulegur, einkum ef hann fær að koma fyrir sjónir almennings. Þessvegna þurfum við fólk eins og aðstandendur Kjarnans.
Til hamingju Kjarni.
Til hamingju Ísland.
Norska aðferðin í fréttamennsku?
Ég fnæsti dálítið á Vísi þegar ég sá þessa frétt. Henni hefur verið breytt en upphaflega var textinn svona:
Skemmtiþjófar á Facebook – hópar
Eitt af því sem er verulega slæmt við Facebook er að maður er stundum skráður í hópa án þess að vera spurður álits. Einu sinni var hægt að senda fólki boð um að skrá sig í hóp en ég sé þann möguleika ekki lengur. Flestum finnst það öllu kurteislegra og mér finnst líklegt að margir telji sig vera að senda boð þegar þeir skrá einhvern í hóp. (Það er hinsvegar hægt að bjóða fólki að læka síðu en það er efni í annan pistil.)
Skemmtiþjófar á Facebook – fréttaveitan
Er fréttaveitan þín full af kisumyndum og vondum húmor svo þú þarft að leita í kraðakinu til að sjá áhugaverðar umræður? Eða sérðu ekki íþróttastatusa fyrir reiðilegri pólitískri gagnrýni frá grautfúlum álitshöfum? Halda áfram að lesa