Af nýstárlegum löggæsluaðferðum Þvagleggs sýslumanns

Þvagleggur sýslumaður er frumlegur maður. Maður sem hugsar út fyrir kassann og beitir áður óþekktum aðferðum í baráttunni gegn glæpum. Þolendur kynferðisbrota hafa nú eignast nýjan og öflugan málsvara í þessum óvenjulega fulltrúa réttlætisins og gleður það mig ósegjanlega.

Þvagleggur sýslumaður hefur nefnilega útskýrt þá ákvörðun sína að láta barnaníðing ganga lausan, þrátt fyrir gögn sem renndu sterkum stoðum undir sekt hans. Hann var semsagt að vernda þolandann gegn fjölmiðlafári.

Mikið er nú gott til þess að vita að Þvagleggur sýslumaður beri nógu mikla umhyggju fyrir fórnarlömbum kynferðisglæpamanna til að vernda þau fyrir árásum fjölmiðla á glæpamenn. Ég þekki nokkrar fjölskyldur á verndarsvæði Þvagleggs, og er af hjarta fegin að vita öryggi þeirra tryggt á svo nýstárlegan og traustvekjandi máta.

Þvagleggur yfirfærir væntanlega þessa verndarstefnu sína á brotaþola í öðrum málaflokkum líka og verndar þannig þolendur auðgunarbrota gegn því að fjölmiðlar fjalli um þjófnaðinn og ríkið sjálft gegn því að fjölmiðlar fjalli um fíkniefnabrot, að sjálfsögðu með þeirri frumlegu aðferð að að láta þjófa og dópsala ganga lausa.

Share to Facebook

One thought on “Af nýstárlegum löggæsluaðferðum Þvagleggs sýslumanns

  1. ———————————–

    Samkvæmt Þvaglegg sjálfum var hann að vernda réttindi konunar sem hann lét með nauðung setja þvaglegg í.
    Hún bar því við að hafa rétt fyrir akstur drukkið áfengi og væri ekki farinn að finna fyrir áhrifum. Með því að þvinga fram þvagrufu, gat hann hjálpað henni með þann framburð.
    Blóðprufa myndi mögulega ekki sanna hennar framburð.
    Hvað næst? Vatsborðsaðferð til að vera viss um framburð?

    Posted by: Skuggi | 30.06.2011 | 12:11:15

Lokað er á athugasemdir.