Á miðvikudeginum tókum við morguninn rólega, gengum frá bústaðnum og fórum svo að Hítarvatni. Hægt er að komast tvær leiðir að Hítarvatni og liggur önnur þeirra yfir Hítardalsheiði. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Þjóðsögur
Víkingasushi
Í góðu veðri er gaman að skoða fallegar eyjar en ekki skemmdi það stemninguna að sjá skelfisk dreginn upp með plóg og fá meira að segja að smakka á góðgætinu.
Halda áfram að lesa
Elliðaey og Hrappsey
Elliðaey – myndin er af vef Wikipedia
Elliðaey
Áður en hafmeyjan Þóra í Þórishólma hvarf í hafið eignuðust þau Jón dóttur sem var nefnd Þórunn. Hún bjó í Elliðaey og þótti undarleg. Sat flestum stundum á klettasillu og spann þráð ofan í sjóinn. Sagt er að margir snældusnúðar hafi fundist fyrir neðan klettinn. Halda áfram að lesa
Ævintýrasigling
Stykkishólmur er fallegri en ég hélt. Við höfðum hugsað okkur að fara í stutta siglingu um Breiðafjarðareyjar ef veðrið yrði gott. Stutta siglingin reyndist ekki vera í boði en þar sem veðrið var eiginlega of gott til að fara ekki í siglingu tókum við 2ja og hálfstíma ævintýraferð og sjáum sko ekki eftir því. Halda áfram að lesa
Helgafellssveit
Skjöldur
Þegar ekið er fram hjá vegslóðanum að Kerlingarskarði blasir þingstaður Helgfellinga við. Þar er bær sem heitir Skjöldur en sagt er að hann dragi nafn sitt af lögun Arnarhóls sem er eiginlega alveg eins og skjaldarbóla. Halda áfram að lesa