Stykkishólmur er fallegri en ég hélt. Við höfðum hugsað okkur að fara í stutta siglingu um Breiðafjarðareyjar ef veðrið yrði gott. Stutta siglingin reyndist ekki vera í boði en þar sem veðrið var eiginlega of gott til að fara ekki í siglingu tókum við 2ja og hálfstíma ævintýraferð og sjáum sko ekki eftir því. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir flokkinn: Sögulegt efni
Helgafellssveit
Skjöldur
Þegar ekið er fram hjá vegslóðanum að Kerlingarskarði blasir þingstaður Helgfellinga við. Þar er bær sem heitir Skjöldur en sagt er að hann dragi nafn sitt af lögun Arnarhóls sem er eiginlega alveg eins og skjaldarbóla. Halda áfram að lesa
Snorralaug
Myndin er af Wikimedia Commons
Heiti potturinn hans Snorra er rétt hjá Snorrastofu. Eftirfarandi umfjöllum er tekin beint héðan en stytt lítillega: Halda áfram að lesa
Á slóðum Snorra
Frá Borgarnesi lá leiðin í Reykholt á slóðir Snorra Stulusonar.Reyndar var spáð góðu veðri í nágrenni Reykholts en þetta varð betra en við áttum von á. Nema auðvitað Hulla, hún efast aldrei um að hún fái það veður sem hún pantar. Halda áfram að lesa
Skallagrímsgarður
Skallagrímsgarður er lítill en mjög fallegur. Það var reyndar ekki mikið pláss í honum því þar lá kona í sólbaði þar og hún fyllti næstum út í garðinn. Við kunnum ekki við að taka mynd af henni.
Skallagrímsgarður. Myndin er af vefsíðu Markaðsstofu Vesturlands