Á vinnustöðum Reykjavíkurborgar (þar sem 80% starfsmanna eru konur) er klámvæðingin og kynferðisleg áreitni svo stórt vandamál að borgin sá ástæðu til að gefa út sérstakan bækling um málið. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Klámpostular
Klámenglar og dónapúkar
Nei, ég var ekki að gefa villandi mynd af klámvæðingartalinu með þessum samanburði.
Ég fékk þá athugasemd við síðustu færslu að þessi púkabúningur væri ekkert líkur þeim búningum sem deilt hefur verið á í fjölmiðlum. Ég hefði auðvitað átt að útskýra í hvað ég var að vísa. Halda áfram að lesa
Klámvæðing merkir…
…að þetta Halda áfram að lesa
Slakið á paranojunni plís
Ég búning sem er næstum eins og þessi.
Ég keypti hann í erótískri búð í Reykjavík.
Ég hef notað hann einu sinni.
Ekki í kynlífsleik heldur á grímuballi.
Þetta er nefnilega grímubúningur
en ekki hórugalli. Halda áfram að lesa
Klámvæðingarleikföng 2
Af brennandi tittlingum og ÁTVR
Samfélag sem einkennist af klámvæðingu, eiturlyfjaneyslu og ofbeldi, þarf á siðvæðingu að halda. Og þar sem Íslendingar eru svo heppnir að eiga sér siðvæðingarfrömuði, er von til þess að þeim sé viðbjargandi. Ólíkustu aðilar hafa tekið að sér baráttu gegn klámi og öðrum dónaskap, þ.á.m. feministahreyfingin, Snorri í Betel og ÁTVR.
Það er út af fyrir sig ánægjulegt að fyrirtæki eins og ÁTVR skuli hefja siðvæðinguna hjá sjálfu sér og nú þegar hefur siðanefndin afstýrt tveimur stórslysum; annarsvegar því að klámsíderinn Tempt 9 yrði markaðssettur á Íslandi og nú nýverið var rauðvíni með nafni hljómsveitarinnar Motörhead hafnað.
Klámvæðingarþversögnin
Stundum stangast það sem við teljum okkur vita á við raunverulega reynslu okkar. T.d. „Ég veit að hann elskar mig, ég bara finn það í hjarta mínu“ enda þótt hinn heittelskaði sýni þess engin merki að hafa áhuga. Halda áfram að lesa
Er klámvæðingin goðsögn?
Þessi hljómsveit var sú alkúlasta þegar ég var í 5. bekk. Halda áfram að lesa
Þakkaðu það klámvæðingunni
Þrettán hópnauðganir og skýringin er náttúrulega einföld; það er klámvæðingin ógurlega sem á sökina. Óþarft er að styðja þá kenningu nokkrum rökum, andstæðingar tjáningarfrelsisins eru einfaldlega búnir að ákveða að klám sé undirrót alls ills, einkum ofbeldis. Enda eru þær hópnauðganir sem tíðkast í óklámvæddum samfélögum mun huggulegri en hinar ofbeldisfullu hópnauðganir vestrænna klámhunda, sem eflaust væru bara að spila bingó á laugardagskvöldum ef ekki væri allt þetta klám. Og ekki var konum nú nauðgað á miðöldum, meðan klám þreifst hvergi nema kannski í klaustrum -eða hvað? Halda áfram að lesa
Hugtakaskýring handa lesendum leyniskyttunnar
Þessi bloggari kærir sig ekki um að heyra álit annarra og leyfir því ekki umræður á blogginu sínu en þar sem vera má að einhverjir þeirra sem hafa velt sömu hugtökum fyrir sér hafi meiri áhuga á samræðu en einræðu, skal ég taka að mér að útskýra þessi hugtök sem að hobbýfemisma undanskildum falla undir það sem ég kalla „dólgafeminisma“ (vulgar feminism) þ.e. feminisma sem setur hugsjónina ofar heilbrigðri skynsemi og valtar yfir rétt annarra. Halda áfram að lesa