Hugleiðing um fórnarlömb

dolgur

Stór meirihluti flóttamanna er karlkyns og þær konur sem flýja eiga töluvert meiri líkur á að fá aðstoð af mannúðarástæðum.

Stór meirihluti heimilslausra er karlkyns.

Mun algengara er að karlar svipti sig lífi.

Víða á Vesturlöndum er mun hærri fjárhæða varið til rannsókna og forvarna gegn kynbundnum sjúkdómum kvenna en kynbundnum sjúkdómum karla.

Mun algengara er að feður en mæður séu sviptir umgengni við börn sín.

Karlar verða mun oftar fyrir ofbeldi en konur og það þykir ekki nærri eins alvarlegt að karl verði fyrir líkamsárás.

Drengir eru í mun meiri hættu á að flosna upp úr skóla en stúlkur.

Karlar eru í meirihluta þeirra sem vinna hættuleg störf, allsstaðar í heiminum.

Piltar eru líklegri til að ánetjast vímuefnum en stúlkur.

Á Norðurlöndunum ljúka talsvert færri karlar en konur framhaldsnámi.

Vinnuveitendur sýna minna umburðarlyndi gagnvart fjarvistum og yfirvinnutegðu karla vegna fjölskylduaðstæna en fjarvistum kvenna af sömu ástæðum.

Drengur sem hegðar sér ‘stelpulega’, klæðist ‘stelpufötum’ og leikur sér að ‘stelpuleikföngum’ á frekar á hættu að verða fyrir áreitni vegna þess en stelpa sem hegðar sér samkvæmt stöðluðum hugmyndum um stráka.

Meiri líkur eru á að karl verði fyrir höfnun vegna slæmra félagslegra aðstæðna, lágra launa eða veikra líkamsburða, hvort sem er í vinnu eða félags- og tilfinningalega.

Deildu færslunni

Share to Facebook