Viltu sjá rassinn á mér?

female-idf-b

Ísraelski herinn notar kynþokkafullar konur til að bæta ímynd sína.
Ástralski herinn greiðir brjóstastækkanir fyrir hermenn.
Ég reikna fastlega með að femínistar taki brátt til við safna í bálköst fyrir mig en mér finnst þetta æðislegt!

Mér finnst dálítið dapurlegt hve margir karlar og enn fleiri konur líta svo á að klámvæðingin sé í sjálfu sér, alltaf og í öllu tilliti, árás á konur. Vissulega hefur klámiðnaðurinn sína viðbjóðslegu hlið, eins og reyndar allur iðnaður, en almenningur virðist lítið kippa sér upp við þrælahald, (jafnvel barnaþrælkun) ofbeldi og kúgun á fíklum og fátæklingum, nema brjóst og píkur séu í aðalhlutverkum. Sama fólk og fordæmir allan kynlífsiðnað á forsendum mannréttinda, sér ekkert athugavert við að versla við fyrirtæki á borð við Nike, Coca Cola, Nestlé og Alcan.

Hin hliðin á kynlífsvæðingunni opinberar hið gífurlega vald sem konur hafa yfir körlum. Hlutgerving hvað? Samkvæmt þeirri ímynd sem klámiðnaðurinn dregur upp af körlum verða þeir algerlega viljalaus verkfæri í návist píku. Hvaða kona sem er gæti fengið meðalmanninn til að elta dindilinn á sér til Trékyllisvíkur og jafnvel í hernaði gegnir pungheilastarfsemi karlmanna nógu stóru hlutverki til þess að útvega konum fríar brjóstastækkanir.

Hvernig ætli heimurinn yrði ef við konur nýttum okkur veikleika loðnara kynsins í stað þess að berjast gegn þeim? Hveru langan tíma tæki t.d. að afmá óútskýrðan launamun kynjanna ef við tækjum okkur saman um allsherjar kynlífsverkfall?

Ég býð hér með rassinn á mér til ágóns (ath að ég hef fimmta sætasta rass í heimi, samkvæmt úrskurði sérstaks rassaáhugamanns úr Jökuldalnum) fyrir hvern þann karlmann sem fær Friðrik Zophusson til að falla frá hugmyndum um Urriðafossvirjkun.

8 thoughts on “Viltu sjá rassinn á mér?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.