Ef væru einhver tengsl milli nauðgana og klæðaburðar þá væri nunnum og muslimakonum aldrei nauðgað. Ofbeldi hefur bara ekkert með það að gera. Ekki klámvæðinguna heldur.
Posted by Eva Hauksdottir on 28. febrúar 2012
Greinasafn fyrir merki: kynferðisbrot
Köllum hlutina sínum réttu nöfnum
Hefði hvarflað að nokkrum manni að réttlæta þetta ef engir peningar hefðu verið inni í myndinni? Væri ekki rétt að hætta…
Posted by Eva Hauksdottir on 17. febrúar 2012
Undarlegur dómur
Smugan greinir frá því að í Oslo hafi nauðgunardómur verið mildaður vegna heyrnarleysis nauðgarans.
Það er bara ein lausn á þessu vandamáli, að taka upp alþjóðlegt tákn um að nauðgun sé afþökkuð og tattóvera það á ennið á öllum konum. Auðvitað kæmi til greina að kenna öllum konum að segja nei á táknmáli en þar sem getur verið erfitt um vik að nota táknmál rétt á meðan einhver er að draga mann inn í húsasund, dugar sú aðferð ekki.
Annars vekur þetta líka spurningar um það hvort útlendingar eigi ekki að fá refsiafslátt. Hvað ef nauðgarinn kann ekki orð í Norðurlandamálum eða ensku, er þá nokkuð hægt að ætlast til þess að hann átti sig á því hvað konan á við þegar hún gargar, lemur frá sér, berst um, grætur, biður, lippast niður eða frýs af skelfingu?
Einfaldari lausnir takk
Maður sem að mati sálfræðings þarf margra ára meðferð til þess að nokkur von sé um að hann láti af því athæfi sínu að eiga kynmök við krakka, fær „hátt í 70 sálfræðiviðtöl“ á þremur árum. Eftir að hafa barist fyrir því sjálfur. Halda áfram að lesa
Hengjum bakarann!
Afurbataróni á Jesúflippi sprengir í nokkrar útlifaðar en afdópaðar og landinn kemur rækilega upp um skyldleika sinn við Gluggagægi og Gáttaþef. Myndbönd birt á netinu, Lille ven verður endalaus uppspretta gamanmála og skáldskapar. Þetta þykja mun áhugaverðari fréttir en tillögur Bandaríkjamanna um afnám mannréttinda þeirra sem eru ósáttir við utanríkisstefnu þeirra.
Börnin vita
Ég var fyrst núna að horfa á Kompássþáttinn alræmda með Guðmundi í Byrginu. Gullkorn þáttarins; „börnin mín vita að ég stunda ekki BDSM“. Halda áfram að lesa
Er píkutalsaðferðin vísindaleg?
Ég veit ekki hver setti fram þá kenningu að klám hvetti til kynferðislegs ofbeldis en píkutal antiklámhunda drægi hins vegar úr því. Ég veit heldur ekki með hvaða rökum.
Ef nauðgarar ákveða að finna sér geðslegra áhugamál eftir að sjá alþingiskonur gera sér upp fullnægingu á sviði er það vel. Ef það heldur aftur af dónaköllum að heyra lítil börn lýsa því yfir í sjónvarpi að þeir megi ekki dónast í þeim þá er sjálfsagt að nota þá aðferð. Halda áfram að lesa