Þegar Borgarahreyfingin ákvað að fara í framboð var ég mjög svekkt. Mér fannst gjörsamlega fráleit hugmynd að ætla að breyta kerfinu innan frá og leysa svo flokkinn upp og það var mér beinlínis áfall að missa jafn öflugan aðgerðasinna og Birgittu Jónsdóttur inn á þing. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: kosningar
Þessvegna eiga fíflin að fá að kjósa
Ég er ekkert ‘forundrandi’ þótt fólk sem fyrir nokkrum mánuðum vildi helst þjóðaratkvæðagreiðslur um sem flest mál, ásaki forsetann nú um ‘einræðistilburði’. Þegar allt kemur til alls er fólk fífl og það er nú það sem menn óttast. Lýðræðið er hættulegt þar sem lýðurinn samanstendur af fíflum. Halda áfram að lesa
Kaus ekki
Ég kaus ekki. Ég er þegar búin að slíta viðskiptasambandi við Ísland og gefa þannig mjög afdráttarlaust svar um að ég ætli ekki að greiða skuldir einkafyrirtækja sem ég hef aldrei gengist í neina ábyrgð fyrir. Mér finnst rétt að þeir sem ætla að búa á landinu áfram ráði því sjálfir hvort og hvernig þeir borga skuldir annarra. Ég myndi hinsvegar taka þátt í kosningu um málefni sem varða hagsmuni alheimsins. Halda áfram að lesa
Sigurvegarinn er sá sem vinnur
Vinstri græn eru ekki sigurvegarar kosninganna. Það er auðvitað gaman fyrir stjórnmálaflokk að bæta við sig fylgi en eini sigurvegari kosninganna er sá sem fær að ráða. Sjálfstæðisflokkurinn.
Umhverfissjallar
Ég er afar ánægð með nýtilkomna umhverfisstefnu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ég ætla rétt að vona að þetta sé alvöru hugarfarsbreyting en ekki bara pólitísk brella til að lappa upp á ímynd flokksins rétt fyrir þingkosningar. Halda áfram að lesa
Fjöldaflutningar
Ég er nú ekki svo viss um að það gangi vel að fá botn í þetta mál. Annaðhvort fluttu 700 kosningabærra manna til Hafnarfjarðar nokkrum vikum fyrir kosningarnar eða ekki og það ætti að vera lítið mál að komast að því. Ef ekki, nú þá er málið dautt. Halda áfram að lesa
Lýðræðishúmbúkk
Margir líta á kjördag sem einhverskonar hátíð. Voða spenntir og jafnvel í sparifötum. Halda áfram að lesa