https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151871960957963
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151872186342963
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151871960957963
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151872186342963
https://www.facebook.com/eva.hauksdottir.norn.is/posts/10151871847892963
Kannski er hugmyndin um áhrifamátt bundins máls á undanhaldi en hún hefur lengst af verið áberandi í íslenskri menningu. Hún birtist til að mynda í galdratrú þar sem ákvæðakveðskapur skipar stóran sess og eins hefur skáldskapur löngum þótt áhrifarík leið til að kveða niður drauga. Halda áfram að lesa
Var að fá reikning frá kortafyrirtækinu og sé að ég hef tekið út skotsilfur í síðasta mánuði. Í alvöru, þetta stendur á reikningum; skotsilfur. Sé fyrir mér miðaldariddara með silfurpeninga í leðurpyngju. Finnst einhverveginn að fimmþúsundkall afgreiddur úr hraðbanka hljóti að heita reiðufé en ekki skotsilfur.
Annars er orðið skotsilfur ekki að finna í Orðsifjabókinni. Skot eitt og sér getur merkt fjárframlag svo líklega er tengingin þaðan. Nema skotsilfur eigi eitthvað skylt við skotaskuld. Ellegar andskota. Það er náttúrulega alltaf doldið unskot að þurfa að borga reikningana sína.
—-
Þegar ég fann þessa stuttu færslu frá árinu 2005 hugsaði ég fyrst að kortafyrirtækin hlytu að hafa uppfært orðaforðann sinn síðan. En skotsilfrið virðist enn í fullu gildi.
Í íslensku eru til nokkur orð þar sem fólki sem sýnir neikvæða hegðun er líkt við einhverskonar poka eða ílát. Halda áfram að lesa
Markmið mannanafnalaga er að stuðla að því að Íslendingar beri nöfn sem falla að beygingar- og hljóðkerfinu, lúti almennum stafsetningarreglum og séu fólki sæmandi.
Þegar listinn yfir leyfð mannanöfn er skoðaður kemur þó í ljós að undantekningarnar frá reglunum eru svo margar að reglurnar eru nánast ónothæfar. Það sem er leyfilegt í einu tilviki er bannað í öðru og þegar upp er staðið eru einu rökin þau að við séum orðin vön því að heyra annað nafnið en ekki hitt.
Ég fnæsti dálítið á Vísi þegar ég sá þessa frétt. Henni hefur verið breytt en upphaflega var textinn svona: