Í morgun stöðvaði ég bílinn tvisvar sinnum til að hleypa gangandi fólki yfir götu. Í bæði skiptin sáu ökumenn bílanna fyrir aftan mig ástæðu til að þenja flautuna. Í öðru tilvikinu stoppaði ég á grænu gangbrautarljósi. Í hitt skiptið við elliheimili. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Ég er brjáluð
Nýtt vandamál?
Þegar ég var lítil fékk ég stundum ís í brauðformi með súkkulaðidýfu.
Fullkominn ís, sem leit út eins og á mynd í skólabók. Kramarhúsið niður, ísinn upp, dýfan heill hjúpur. Maður hélt utanum kramarhúsið, beit súkkulaðihjúpinn varlega utan af og sleikti ísinn.
Ég bið enn um það sama þegar ég fæ mér ís. Ís í brauðformi með dýfu. Ekkert kurl eða neitt svoleiðis. Halda áfram að lesa