Björgum Jóni Gnarr

lydur

Svei okkar samfélagi sem hlutgerir lifandi manneskjur, jafnvel heilu samfélagshópana.

Svei þeim sem framleiða íþróttastjörnur, poppstjörnur, kvikmyndastjörnur, fegurðardísir, america’s-next-top-model, viðskiptajöfra og tölvunörda. Hvað er Jón Gnarr í hlutverki Lýðs Oddssonar annað en tákn fyrir taumlausa efnishyggju, eyðslusemi, eigingirni, innistæðulausa sjálfumgleði byggða á auðæfum sem hann fékk upp í hendurnar án þess að hafa nokkuð fyrir þeim sjálfur? Er Lýður Oddsson trúverðug ímynd? Ónei, hann er ýkt staðalmynd, erkitýpa búin til til þess að kitla hégómagirnd okkar. Við viljum allt sem Lýður Oddsson hefur en erum þess samt fullviss að við séum ekki alveg jafn lágkúruleg.

Jón Gnarr kann að halda því fram að hann hafi tekið hlutverk Lýðs að sér sjálfviljugur og að hann sé ánægður í starfi plebbaleikarans. En hafði hann nokkurt raunverulegt val þegar honum bauðst þetta hlutverk? Er ekki maðurinn gjaldþrota vesalingur sem hlýtur að taka hverju verkefni fagnandi? Athugum líka að þarna fékk Íslensk getspá til liðs við sig mann sem opinberlega hefur lýst því yfir að hann hafi misst stjórn á fjármálum að því marki að það verði að teljast sjúklegt. Þarna er því verið að níðast á veikleika manns sem á við geðsjúkdóm að stríða. Mótmælum harðlega þeirri misnotkun sem aðstandendur Íslenskrar getspár beittu Jón Gnarr með því að tæla hann með gylliboðum til að koma fram sem hinn dæmigerði plebbi, handbendi kapítalisma og karlrembu. Látum ekki viðgangast að gróðapungar fái óáreittir að hösla fórnarlömb úr röðum íslenskra skuldasafnara.

Jón Gnarr kann að halda því fram að hann vilji alls ekki láta bjarga sér frá þessu hlutverki en látum ekki blekkjast af hans áliti. Margt bendir nefnilega til þess að þeir sem missa stjórn á efnishyggjunni í sér á fullorðinsárum hafi hlotið skaðlegt viðhorf til fjármála með uppeldinu. Hugsanlega hafa foreldrar Jóns litla spillt honum með ofdekri eða það sem verra er, vanrækt hann tilfinningalega og reynt að bæta það upp með efnislegum hlutum. Látum ekki fórnarlamb vanrækslu og ofdekurs ákveða sjálft hvaða starfsvettvang það velur sér á fullorðinsárum.

Íslendingar sameinumst: Björgum Jóni Gnarr úr viðjum siðspillandi og niðurlægjandi hlutverks efnishyggjuplebbans.

—————————–

Á þeim tíma sem þetta var ritað stór Jón Gnarr í heilagri herferð gegn klámi. Hafði m.a. sett upp dagskrá í Borgarleikhúsinu sem var sérstaklega beint gegn klámi.

One thought on “Björgum Jóni Gnarr

  1. ———————————————————-

    sko…
    í fyrsta lagi þá er ég nokkuð viss um að Jón Gnarr hafi gert þennan karakter (lýð oddsson) alveg sjálfur. Honum finnst gaman að leika fávita og hann gerir það vel. Jón Gnarr er ekki svo dessperate í að fá peninga með því að taka hvaða tilboð sem bíðst honum heldur gerir það með glöðu geði ef það er eitthvað varið í það sem verið er að gera. Jón Gnarr er meistari á þessu landi, hann veit hvað er fyndið og hvað ekki og sjaldan sem sem aldrei hef ég séð hann í eitthverju cheep og lélegu bara afþví að honum vantar svo mikið pening! En afhverju er það svona óeðlilegt? Hann á fullt fullt af börnum og þarf að sjálfsögðu að sjá fyrir þeim og konunni sinni, hann er heimilisfaðir sem er að halda uppi heimili og fjölskildu.

    Takk fyrir.!

    Posted by: hlutlaus. | 30.01.2009 | 11:00:57

    ——————————————————–

    Þú hefur dottið inn á þessa færslu án þess að átta þig á því í hvaða samhengi hún birtist. Hún var semsagt skrifuð sem svar við bakþankapistli Jóns Gnarr, þar sem hann tjáði sig um klámiðnaðinn og sagði beint eða lét að því liggja að allar konur sem ynnu við slíkt, hlytu að vera fórnarlömb. Ég tel út í hött að fullyrða slíkt um allar þær milljónir kvenna sem vinna í klám- og kynlífsgeiranum.

    Posted by: Eva | 30.01.2009 | 11:48:32

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.