Að rjúfa þessa ærandi þögn

klamfrettir
Í íslenskum fjölmiðlum er tilfinnanlegur skortur á nauðgunarfréttum. Að vísu fann ég nokkrar fréttir frá síðustu dögum en margar þeirra eru frekar litlar og lítið áberandi. Auk þess er ekki alveg að marka síðustu vikuna því margar af klámfréttum síðustu viku snúast eiginlega meira um dónakalla og háskóla en um glæpi dónakalla.  Frá mánaðamótum hef ég t.d. ekki rekist á nema eina opnuumfjöllun um nauðganir í DV, eina fimm síðna í Kjarnanum og  eina þrettánsíðna í Nýju lífi.

Nauðsynlegt er að rjúfa þessa ærandi þögn um kynferðisofbeldi. Því ættu íslenskir fjölmiðlar að setja sér það markmið að gefa aldrei út blað nema hafa minnst eina opnuumfjöllun um nauðganir og dónakalla.